Fréttablaðið - 19.08.2017, Side 84

Fréttablaðið - 19.08.2017, Side 84
Einhver metnaðarfyllsta en um leið óraunhæf-asta hugmynd Íslands-sögunnar var Alaska-ævintýri ritstjórans Jóns Ólafssonar á ofanverðri nítjándu öld. Tildrögin voru þau að árið 1867 keypti ríkisstjórn Banda- ríkjanna Alaska af Rússum. Kaup- verðið var af mörgum talið hátt og óljóst að margir fengjust til að flytj- ast til hinna hrjóstrugu og afskekktu landssvæða í norðrinu á meðan enn væri gnótt lands að finna annars staðar í Bandaríkjunum. Ævintýramaðurinn Jón Ólafsson sá í þessu sóknarfæri. Jón hrökklaðist frá Íslandi til Vesturheims árið 1873 eftir að hafa lent upp á kant við yfir- völd vegna hvatvíslegra blaðaskrifa sinna. Í Ameríku dvaldist hann næstu tvö árin og þar kviknaði hug- myndin um að beina Íslendingum, sem um þær mundir fóru til Kanada í stríðum straumum, frekar til Alaska. Jón sá fyrir sér að í Alaska yrði til nýtt Ísland, þar sem íslensk tunga og menning yrðu í öndvegi. Í krafti eðlislægra yfirburða sinna og auðugra náttúruauðlinda á nýja staðnum yrðu Íslendingar stórþjóð og myndu jafnvel með tímanum ráða stórum hluta Norður-Ameríku. Slík var sannfæring ritstjórans í málinu að honum tókst að hrífa bandaríska ráðamenn með sér, kjaftasagan hermdi jafnvel að Jón hefði komist á rækilegt fyllerí með Grant forseta í Washington, þar sem Alaskaland- námið var handsalað. Hvað svo sem er hæft í því féllst Bandaríkjastjórn á að lána skip til að kanna landkosti og studdi útgáfu ritlings þar sem hvatt var til stofnunar Íslendinga- nýlendunnar. Þótt Alaskahugmyndir Jóns hljómi eins og hálfgerðir skýjakastalar, þá áttu þær sér fyrirmyndir eða í það minnsta samsvaranir. Nokkrum árum fyrr hafði svipuðu verkefni verið hrint af stokkunum, sem byggði á keimlíkri hugmyndafræði. Þar voru á ferðinni þjóðernissinnar í Wales og fyrirheitna landið var öllu sunnar á veraldarkúlunni. Velsk vakning Iðnbyltingin hafði í för með sér mikið samfélagslegt umrót í Wales. Gamlir búskaparhættir létu undan síga en fram kom stétt róttækra verkamanna, einkum í kolanámu- geiranum. Í trúmálum náðu smá- söfnuðir utan ensku biskupa- kirkjunnar sterkri stöðu og urðu lykilstofnanir í sjálfsmynd Wales- verja, sem fannst menningu og tungu sinni ógnað af sívaxandi enskum áhrifum í landinu. Í hugum margra var baráttan í raun töpuð, velskan dæmd til að víkja fyrir enskunni á öllum sviðum og Wales til að verða jaðarsvæði innan Stóra-Bretlands. Einn þeirra fyrstu til að veita mót- spyrnu var prestur að nafni Michael D. Jones, sem fæddur var árið 1822. Hann ferðaðist ungur til Bandaríkj- anna, þangað sem ófáir landar hans höfðu flutt á liðnum árum. Jones var gallharður velskur þjóðernissinni og var því á báðum áttum í afstöðu sinni til vesturfara. Honum fannst að sönnu illt að missa ungt fólk úr landi, en leit þó svo á að fólksflutningar til Y Wladfa Skólabörn í velska samfélaginu í Argentínu. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um óvenjulega þjóðflutninga. Snyrtistofan Hafblik OKKAR SÉRSVIÐ ER Háræðaslitsmeðferðir HENDUR – ANDLIT – HÁLS – BRINGA Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 Ameríku væru óhjákvæmilegt fyrir- bæri sem vonlaust væri að berjast gegn. Jones rann hins vegar til rifja hversu hratt velsku innflytjendurnir virtust gleyma siðum sínum og menningu. Enskan var allsráðandi í nýbúasamfélögum þeirra vestan- hafs og í stað þess að halda hópinn virtist fólkið kappkosta að hverfa í fjöldann. Niðurstaða klerksins var einföld: til þess að standa vörð um menn- ingu og gildi Walesverja yrðu þeir að byggja ný samfélög sín í einangrun og án of mikillar blöndunar við aðra hópa, einkum enskumælandi. Í þessu skyni tók Jones að svipast um eftir vænlegum búsvæðum. Vancouver- eyja á Kyrrahafsströnd Kanada þótti fýsilegur kostur, með mildu loftslagi og ýmsum landkostum. Önnur hug- mynd, sem rædd var af fullri alvöru, var á þá leið að flytja á Biblíuslóðir í Palestínu. Sú hugmynd hafði augljós- lega fremur trúarlegar skírskotanir en hagnýtar, enda fátt sameiginlegt með staðháttum í Wales og Palestínu. Hálfri öld eftir að Michael D. Jones leitaðist við að skapa þjóð sinni nýtt þjóðarheimili lagði ungverski gyð- ingurinn Theodor Herzl grunn að zíonismanum þegar hann kynnti hugmyndir sínar um að stórir hópar evrópskra gyðinga flyttust búferlum og kæmu sér upp nýju ríki. Herzl endaði á að velja Palestínu sem væn- legasta kostinn, en hafði áður velt fyrir sér fjölmörgum möguleikum, þar á meðal í Afríku og á sléttum Patagóníu í Argentínu. Það var hins vegar nákvæmlega þar sem Michael D. Jones kaus hinni nýju velsku nýlendu stað. Samningar náðust við ríkisstjórn Argentínu, sem sá sér hag í að fá evrópska landnema til að setjast að á sléttum Patagóníu. Landið var nær einvörðungu byggt fámennum hópum innfæddra og ekki talið sér- lega búsældarlegt. Útsendarar stjórn- arinnar hikuðu þó ekki við að gylla það fyrir hinum verðandi nýbúum og Jones og félagar hófu að prédika land- kosti svæðisins fyrir löndum sínum og sögðu það minna mjög á blómlega dalina í sunnanverðu Wales. Skrykkjótt gæfa Skipuleggjendur Argentínufararinn- ar tóku skip á leigu árið 1865 fyrir á annað hundrað manns sem vildu freista gæfunnar í nýju landi. Hið fyrirhugaða skip til fararinnar kom hins vegar of seint á brottfararstað í Liverpool og þurfti því í skyndingu að bjarga öðrum farkosti, hálfgerðum fúadalli sem ekki hafði verið ætlaður til farþegaflutninga, með reynslulitla áhöfn og skipstjóra sem var betur fallinn til að flytja varning en mann- eskjur. Eftir erfiða tveggja mánaða sigl- ingu kom hópurinn að landi í Suður- Ameríku nánast með tvær hendur tómar. Fólkið hafði litlar vistir og vantaði flest tæki og tól til að fóta sig á ókunnum slóðum og fljótlega kom í ljós að loforðin um blómlegu bújarð- irnar voru orðum aukin. Margir létu lífið fyrstu mánuðina og hætt er við að landnámið hefði farið algjörlega út um þúfur ef ekki hefði komið til aðstoð vinveittra frumbyggja sem veittu góð ráð varðandi lífið á slétt- unni. Eftir nokkurra missera barning og hokur við erfiðar aðstæður á ræktar- landi sem var hálfgerð eyðimörk, fór landið að rísa. Rachel Jenkins, eiginkona helsta forystumanns land- nemanna, hafði frumkvæði að því að koma upp áveitukerfi með því að veita vatni úr nálægu fljóti á ræktar- lönd. Með því móti urðu til afbragðs- góðir akrar til ræktunar á hveiti og öðrum landbúnaðarvörum. Fregnir af velgengni hópsins bárust til heima- landsins og næstu áratugina bættust stórir hópar Walesverja við sam- félagið í „Nýlendunni“ eða Y Wladfa eins og hún nefndist á velsku. Stofnendur nýlendunnar höfðu búist við að öðlast mikið pólitískt sjálfstæði í nýja landinu, en ekki leið á löngu uns ráðamenn í Argentínu vildu færa nýju landnemabyggðirnar undir miðstjórnarvald sitt. Járnbraut- arsamgöngur undir lok nítjándu aldar juku samskiptin milli héraðs- ins og stjórnarinnar í Buenos Aires og vöxtur landbúnaðarins dró til sín spænskumælandi íbúa Argentínu ekki síður en innflytjendur alla leið frá Wales. Með fyrri heimsstyrjöld- inni tók endanlega fyrir innflutning Walesverja til Argentínu og tengslin við gamla landið voru fljót að rofna. Tengslin endurvakin Argentínustjórn fyrirskipaði að spænska skyldi vera aðaltungumálið í öllum skólum og í opinberum sam- skiptum. Yngra fólkið sá ekki tilgang- inn með því að halda í velsk una og leit á hana sem fjötur um fót. Hægt og bítandi var velska samfélagið að renna inn í argentínskt þjóðfélag. Stöku siðir lifðu þó áfram, þar á meðal velska ávaxtakakan sem enn í dag er vinsælt bakkelsi víða í Arg- entínu. Þegar leið að aldarafmæli velska landnámsins jókst áhuginn á að rifja upp söguna. Stór sendinefnd frá Wales ferðaðist til Argentínu árið 1965 og ný tengsl mynduðust. Wales- verjum fannst mikið til þess koma að kynnast þessu litla velskumælandi samfélagi á suðurhveli Jarðar og áhugi þeirra varð líka örvandi fyrir Suður-Walesverjana að rækta menn- ingararfleifð sína. Á síðustu áratugum hefur miklu fé og orku verið varið í að varðveita og byggja upp patagóníska velsku. Hún er sérkennileg mállýska með spænskum hreim og fjölda spænskra tökuorða. Nokkur þúsund manns tala mállýsku þessa, en fáir eða engir þó sem fyrsta mál. Áhuginn er engan veginn bundinn við afkom- endur Walesverjanna sem fluttust til Patagóníu á sínum tíma og þykir nokkurt stöðutákn að geta slegið um sig á velsku. Tilkoma útvarps- og sjónvarpssendinga á tungumálinu á vegum BBC hefur sömuleiðis hjálpað til við varðveisluna. Að mörgu leyti minnir suður- velska samfélagið í Argentínu á hið vestur-íslenska í Kanada. Íbúar þeirra beggja skilgreina sig fyrst og fremst sem Argentínumenn og Kanadabúa, en finnst skemmtilegt að halda í ræturnar með gagnkvæmum heim- sóknum og með því að kunna hrafl í tungumálinu. En í hvorugu tilvikinu rættust draumarnir um nýtt fóstur- land sem að lokum yrði öflugt ríki með tungu og menningu gömlu ætt- jarðarinnar. Jón hefði komiSt á rækilegt fyllerí með grant forSeta … 1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R36 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 9 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 8 3 -F 4 E 0 1 D 8 3 -F 3 A 4 1 D 8 3 -F 2 6 8 1 D 8 3 -F 1 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.