Fréttablaðið - 25.08.2017, Síða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
RAppAR & pLÖTUSNúÐUR
Ragga Holm pLAY FOLLOW
LAG
Grace Jones Pull Up To The Bumper
The Streets Let’s Push Things Forward
Drake & PARTYNEXTDOOR With You
Mura Masa & A$AP Rocky Love$ick
Leikeli47 $
THEY U-RITE
Reykjavíkurdætur Kalla mig hvað?
Tommy Genesis Angelina
Stylo G & Sister Nancy Badd
Malaa Bylina
FLYTJANDI
Föstudags-
playlisti
Lífsins
Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna
á Spotify undir notandanafninu Vísir.
Ragga Holm, plötusnúður og rappari, frumsýndi á miðvikudaginn mynd-
band við lag sitt og RVK DTR, Reppa heiminn. „Fjölbreytni er krúsjal atriði
fyrir mig. Ég hef vanið mig á að spila á ólíkum skemmtistöðum þótt sér-
fræði mín liggi í hiphop-tónlist. Allt frá popp/diskó/reggae drottningunni
Grace Jones í sick dropp með Malaa. Föstudagsplaylisti sem er möst að
hlusta á í réttri röð!“
Þetta byrjar þannig að Amanda Gorence hjá Refinery 29 hefur sam-band við mig og kynnir þessa hugmynd fyrir mér,“ segir ljósmyndar-
inn Helga Nína Aas aðspurð hvernig
það kom til að hún tók þátt í verk-
efninu sem heitir Take back the
beach sem snýst um líkamsímynd
kvenna.
„Þetta eru sem sagt portrett-
myndir af konum í sundfötunum
og svo fylgir smá texti með hverri
mynd. Í textanum er frásögn
kvennanna um hvernig hefur verið
talað um líkama þeirra, hvernig þær
horfa á líkama annarra kvenna og
bara líkamsímynd almennt,“ segir
Helga Nína þegar hún er beðin um
að lýsa verkefninu.
„Ég held að fjölmiðlar hafi alveg
svakalega áhrif á okkur og margt
fólk er rosalega upptekið af því að
passa inn í ákveðið box hvað varðar
útlit. Og við erum oft upptekin
af því að flokka fólk eftir útliti,“
útskýrir Helga Nína.
Helga Nína segir markmið
verkefnisins vera að vekja fólk til
umhugsunar og sjálf er hún orðin
meðvitaðri um útlitsdýrkun og lík-
amsímynd síðan hún tók þátt í því.
„Verkefnið á að fá okkur til að pæla
aðeins í því hvernig við hugsum um
og lítum á líkama. En þetta er stans-
laus barátta því maður dettur gjarn-
an í það að horfa á fólk t.d. á netinu
og hugsa: „Vá hvað þessi er flott,
vel klædd, með flottan líkama,“ og
svo framvegis. En maður verður
að stoppa sig af og minna sig á að
maður er ekki í neinni samkeppni.
Ég hef alltaf haft þessar pælingar
í undirmeðvitundinni en núna er
ég að reyna að spá meira í þetta.
Núna reyni ég öllum stundum að
meta hvort hugsanir mínar og hug-
myndir séu heilbrigðar. Það er ekki
nóg að velta þessu fyrir sér einu
sinni, maður þarf stöðugt að minna
sig á þessa hluti.“
Lítið mál að finna þátttakendur
Spurð út í hvernig hún fann konur
til að taka þátt í Take back the
beach-verkefninu segir Helga Nína:
„Ég setti inn opinbera auglýsingu
á Facebook og á nokkrum klukku-
tímum fékk ég fullt af umsóknum.
Það var rosalega mikill áhugi fyrir
þessu. Þetta eru allt konur sem vilja
vera partur af þessari hreyfingu: að
brjóta niður þetta „bodyshaming“
sem er svo algengt. Þessar konur
stóðu bara fyrir framan myndavél-
ina og sýndu sig nákvæmlega eins
og þær eru,“ útskýrir Helga Nína
sem segir það hafa verið lítið mál
að finna opnar konur sem voru til-
búnar að taka þátt í verkefninu.
„Ein þeirra sem tók þátt hefur til
dæmis orðið fyrir einelti alla sína
ævi og þetta var mikil áskorun fyrir
hana. En hún vildi taka þátt og sýna
að hún þarf ekkert að skammast sín
fyrir að líta út eins og hún gerir.“
Spurð út í hvað sé á döfinni segist
Helga hafa áhuga á að vinna áfram
með þetta þema. „Mig langar að
vinna áfram með þetta verkefni,
mér finnst þetta áríðandi. Ég hef
líka verið að velta fyrir mér press-
unni sem karlmenn eru undir. Ég er
að heyra sögur og hef lesið athuga-
semdir á netinu um karlmenn, við
erum öll undir einhverjum þrýstingi
hvað varðar útlit og vöxt.“
gudnyhronn@365.is
Verkefnið á að
vekja fólk
til umhugsunar
Ljósmyndarinn Helga Nína Aas hefur undan-
farna daga birt á Instagram ljósmyndir sínar
af íslenskum konum í sundfötum. Ljós-
myndirnar eru unnar í samstarfi við banda-
ríska vefinn Refinery 29 og verkefnið á að
vekja fólk til umhugsunar um líkamsímynd.
Það er ekki nóg að
Velta Þessu Fyrir
sér einu sinni, maður ÞarF
stöðugt að minna sig á
Þessa hluti.
Helga segir Take back the beach-verkefnið hafa breytt hugsunarhætti sínum.
Sýnishorn úr myndaþættinum sem Helga Nína tók fyrir vefinn Refinery29. MYND/REFINERY29
2 5 . á g ú s t 2 0 1 7 F Ö s t U D A g U R34 l í F i ð ∙ F R É t t A B l A ð i ð
2
5
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
1
-C
5
5
C
1
D
9
1
-C
4
2
0
1
D
9
1
-C
2
E
4
1
D
9
1
-C
1
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K