Fréttablaðið - 25.08.2017, Blaðsíða 22
Lilja var lengi vel fyrirliði Stjörnunnar í fótbolta. Hún annaðist sömuleiðis
þjálfun yngri flokka.
Lilja keppti fjórum sinnum í fitness.
Hún endaði þrisvar á verðlaunapalli
og einu sinni í fjórða sæti.
Við vitum öll að hreyfing og hollt mataræði skiptir sköpum fyrir heilbrigt og gott
líf en fæwrri vita nákvæmlega af
hverju og hvaða ferlar liggja þar að
baki. „Læknar og fræðimenn liggja
á ýmsum vísindauppgötvunum og
sem eiga mikið erindi við almenning
en oft dregst það á langinn að þær
komist til skila. Icelandic Health
Symposium, sem stendur á bak
við alþjóðlegar heilsuráðstefnur á
Íslandi, leitast við að brúa það bil
og er ég afar þakklát fyrir að fá tæki-
færi til að leggja mitt af mörkum,“
segir Lilja. Samtökin stóðu fyrir
ráðstefnunni Foodloose í fyrra en
þar fjölluðu hinir ýmsu fræði- og
áhugamenn um nýjustu uppgötvanir
tengdar mataræði og lífsstílssjúk-
dómum. Yfirskrift ráðstefnunnar í
ár er Who Wants to Live Forever en
þar verður fjallað um áhrif lífsstíls á
líkamann og hvað sé hægt að gera til
að bæði lengja og bæta líf.
Fyrirlesararnir í ár eru ýmist
vísindamenn, læknar, næringarfræð-
ingar eða lífsstílsráðgjafar. Lilja er
eini Íslendingurinn á mælendaskrá.
Keppti í fótbolta og fitness
Áhugi hennar á lífefnafræði hófst
snemma en hún tengir það við mik-
inn íþróttaáhuga í æsku. Hún er alin
upp í Stjörnunni, spilaði fótbolta með
öllum unglingalandsliðunum og var
fyrirliði liðsins um skeið. Hún þótti
sömuleiðis vel byggð og var reglulega
hvött til að fara í fitness. „Ég hlustaði
nú ekki á það í fyrstu. Ég var líka með
teina og gat ekki hugsað mér að flíka
þeim á sviði. Ég losnaði við þá þegar
ég var nítján og lét þá slag standa. Mér
var bent á einkaþjálfarann Svavar
Sigursteinsson í Betrunarhúsinu
í Garðabæ. Þá voru sjö vikur í mót
og hann kom mér á verðlaunapall,“
segir Lilja sem hafnaði í öðru sæti á
sínu fyrsta móti. „Ég er heppin með
byggingu og efnaskipti og þurfti ekki
að hafa mikið fyrir þessu auk þess
sem ég var í góðu formi fyrir.“ Lilja
og Svavar hófu í kjölfarið sambúð
og grínast stundum með að hún hafi
aldrei þurft að borga. Þau hafa verið
saman síðan, eru gift og eiga tvö börn.
Samhliða íþróttaiðkuninni gekk
Lilja í Fjölbraut í Garðabæ. „Ég hafði
alltaf átt auðvelt með nám en hafði
sérstakan áhuga á raungreinum,“
segir Lilja sem dúxaði í efnafræði
á stúdentsprófi. Þaðan lá leiðin í
lífefnafræði í Háskóla Íslands.
Eitt stærsta vandamál
samtímans
Lilja fór fljótt að einbeita sér að
efnaskiptum. „Sem íþróttamanneskja
ertu alltaf að hugsa hvað þú getur
borðað til að hafa orku fyrir og eftir
æfingar, mót og leiki. Ég er sannfærð
um að það hafi ýtt undir áhuga
minn á að kafa ofan í þessi mál. Í lok
námsins kynntist ég svo mólikúli
eða sameind sem ég varð yfir mig
ástfangin af. Hún kallast AMPK og
skynjar hver orkan í frumunni er
hverju sinni. Ef orkan er há slekkur
hún á ferlum sem nota mikla orku.
Ef hún er lág kveikir hún m.a. á
fitusýruoxun til að ná henni aftur
upp,“ útskýrir Lilja en þessi litla
sameind varð til þess að áhugi hennar
á sykursýki kviknaði.
Lilja hélt næst í doktorsnám til
Bandaríkjanna, nánar tiltekið í UT
Southwestern Medical Center í Dallas.
„Ég valdi að fara þangað vegna þess að
þar er mikið af prófessorum sem hafa
stúderað efnaskipti og sykursýki. Þetta
er líka flottur skóli með fjóra núlifandi
Nóbelsverðlaunahafa við störf.“ Þar
starfaði Lilja á rannsóknastofu sem
rannsakar Beta-frumur. Þær búa
til insúlín og eru menn að skoða af
hverju þær gefast upp í sykursýki
2. „Ég hafði mikið velt fyrir mér
fæðubótarefnum í tengslum við
fitness-ferilinn minn og ákvað að
skoða sérstaklega áhrif D-vítamíns
á heilsu þessara frumna.“ Lilja lauk
doktorsnámi 2011 en áhuginn á
sykursýki hafði síður en svo dofnað.
„Þetta er svo rosalega stórt vanda-
mál. Ekki aðeins fyrir þá einstaklinga
sem þjást heldur líka samfélagið og
efnahag,“ segir Lilja en að hennar sögn
er útlit fyrir að heilu samfélögin verði
að endingu gjaldþrota vegna þessa
eina sjúkdóms og afleiðinga hans.
Raunveruleg þörf á hreyfingu
Eftir að hafa skoðað frumurnar sem
búa til insúlínið langaði Lilju að
rannsaka vefina sem bregðast við
því. „Þegar þú borðar hækkar blóð-
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
sykurinn. Beta-frumurnar skynja það
og dæla insúlíni út í blóðið sem svo
talar við vöðva, fitu, lifur og aðra vefi
sem eru móttækilegir fyrir insúlíni
og segir þeim að lækka glúkósann.
Þannig virkar hringrásin. Mig langaði
að kanna þetta nánar og valdi rann-
sóknastofu við Duke University. Þar
fór ég að skoða hvatbera í vöðvum
en hvatberi er í raun orkuver hverrar
frumu. Næringarefnum er dælt inn
í hann og úr þeim býr hann til orku-
ríkar sameindir sem keyra líkamann
áfram. Ef hann er undir of miklu álagi
hættir hann að virka sem skyldi og
það getur aftur valdið insúlínónæmi.“
Að sögn Lilju sýna æ fleiri rannsóknir
að bein tenging sé á milli virkni
umrædds hvatbera, lífsstílssjúkdóma
og öldrunar og er til mikils að vinna
að halda honum heilbrigðum.
Hún komst að því að með því að dæla
meiri næringu en fruman notar inn í
hvatberann safnast næringarefni upp
og stífla hann.
„Þetta er eins og að kasta spreki
á bál. Það er nauðsynlegt svo það
lifi en ef þú hendir heilum bunka á
bálið slokknar það. Í þessu samhengi
segir Lilja mikilvægt að inna af
hendi vinnu á móti. „Þetta er eins
konar ofeldi og skiptir þá ekki
máli hvort um er að ræða kolvetni,
prótein eða fitu. Ef næringarefnum
er sífellt dælt inn í frumurnar en
engin hreyfing kemur á móti fyllist
hvatberinn af efnaskiptaefnum sem
komast hvorki lönd né strönd. Við
sjáum því á sameindagrunni hversu
nauðsynlegt er að hreyfa sig,“ segir
Lilja en bendir um leið á hversu
stórt vandamál hreyfingarleysi er
í nútímanum. „Ég æfi Bootcamp
þrisvar til fjórum sinnum í viku
sem þykir nú nokkuð gott. Að öðru
leyti er ég kyrrsetumanneskja á
rannsóknarstofu dögum saman.
Þannig er það hjá okkur flestum.“
Lilja var tvö og hálft ár í Duke
og náði að sögn flottri birtingu
um áhrif þessarar samsöfnunar
næringarefna í hvatberanum í Cell
Reports. Henni bauðst síðar starf
framkvæmdastjóra rannsóknar- og
þróunar hjá Genís á Íslandi sem þróar
fæðubótarefni og lækningatæki úr
rækjuskel. „Þar áttaði ég mig enn
betur á hvað hreyfing er mikilvæg.
Ekki síst fyrir stoðkerfið enda
leiddu rannsóknir okkar berlega í
ljós að þar sem hreyfing og álag á
beinagrindina er meira kemur bati
fyrr í ljós.“ Lilja starfar nú að sérstöku
beinaverkefni á Landspítalanum
með prófessor Halldóri Jónssyni Jr.
bæklunarskurðlækni.
Ótrúlegt hvað líkaminn getur
Lilja hefur kafað djúpt ofan í áhrif
mataræðis og hreyfingar á heilsuna
og segir í raun ótrúlegt hvað líkam-
inn getur gert til að lækna sig sjálfur
ef hann fær aðstæður og tækifæri
til. „Mig langar mikið til að fræða
fólk um það og leggja þannig mitt af
mörkum til lýðheilsunnar. Því finnst
mér ráðstefna eins og Who Wants to
Live Forever ómetanleg.“
Lilja mun fjalla um hvað sé hægt
að gera til að halda hvatberanum
unglegum þrátt fyrir hækkandi aldur
og hvernig skynsamleg hreyfing og
hollt mataræði geti viðhaldið heil-
brigðu stoðkerfi langt fram eftir aldri.
En aðhyllist hún sjálf eitthvert
ákveðið mataræði? „Ég hef farið
á stranga kúra í kringum fitness-
keppnir en komist að því að það
hentar mér illa. Við erum öll ólík
og hver og einn þarf að finna út
hvað hentar honum. Ég vel að hafa
nokkuð jafna skiptingu á milli pró-
teina, fitu og kolvetna en reyni þó
helst að sneiða hjá því síðastnefnda
og borða þeim mun meira grænmeti.
Ef það er einhver ein ráðlegging sem
ég get gefið er það að forðast sætindi
og einfaldan sykur. Hann gerir
engum gott.“
Aðspurð segir Lilja ekki ólíklegt að
hún leggi land undir fót á ný en hún
hefur meðal annars verið í viðræðum
við fyrirtæki sem hyggst þróa mæli-
tæki byggð á blóðprufum sem gefa
fólki vísbendingar um yfirvofandi
sjúkdóma þannig að hægt sé að grípa
inn í snemma í sjúkdómsferlinum.
„Það er mikill þróun í þá átt í öldr-
unarfræðunum en með slíkri tækni
er fólk í raun komið með vísindalega
ástæðu til að grípa inn í og breyta
lífsstílnum.“
Ráðstefnan Who Wants to Live
Forever verður haldin föstudaginn
8. september. Nánari upplýsingar er
að finna á www.liveforever.is
Lilja og Svavar, eiginmaður hennar, reyna hér við steinana í Dritvík ásamt
sonunum tveimur.
Framhald af forsíðu ➛
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 14-28
NÝ SENDING
MEÐ PEYSUM
Sjáðu úrvalið í netverslun ww.curvy.is
eða komdu í verslun okkar að Fákafeni 9
Opið alla virka daga frá kl. 11-18 og
Laugardaga frá kl. 11-16
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
5
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
1
-B
B
7
C
1
D
9
1
-B
A
4
0
1
D
9
1
-B
9
0
4
1
D
9
1
-B
7
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K