Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Síða 12
Helgarblað 10.–13. mars 201712 Fréttir Emelía fæddist á 23. viku meðgöngu n Einn minnsti fyrirburi sem fæðst hefur hér á landi n Alheilbrigð í dag n „Ótrúlega þakklát“ A llt þetta ferli er búið að vera svakalegur rússíbani og það er eiginlega fyrst núna að maður er komast niður á jörðina. Ég er ótrúlega þakklát, sérstaklega þegar ég hugsa til þess að tölfræðilega séð átti hún engar líkur á því að lifa,“ segir Guðrún Björg Brynjólfsdóttir en dóttir hennar Emelía Rós kom í heiminn á 23. viku meðgöngu og er því einn minnsti fyrirburi sem fæðst hefur hér á landi og lifað af. Hún er í dag alheilbrigð. Emelía Rós er dóttir Guðrúnar og Andra Viðars Víglundssonar en fyrir á Guðrún þau Díönu Sól, 14 ára, Sigurð Eystein, 7 ára, og Elínu Perlu, 5 ára. „Ég hafði aldrei áður átt barn fyrir tímann, ég var ein af þeim konum sem komu á spítalann og eignuðust barn og voru farnar heim tveimur tímum seinna. Meðgangan var hins vegar öðruvísi með Emelíu, og það blæddi töluvert þessar vikur sem ég gekk með hana.“ Kom í heiminn í sjúkrabíl Ekki hefur fengist útskýrt hvers vegna Guðrún fór óvænt af stað, kvöld í eitt í upphafi 23. viku meðgöngunnar, þann 9. september 2015. „Þetta var bara venjulegt kvöld heima í Hafnarfirðinum með börnunum mínum. Svo fékk ég þessa skelfilegu verki sem versnuðu stöðugt. Ég hringdi tvisvar upp á deild og var þá sagt að koma til þeirra. Ég hringdi hins vegar í þriðja skiptið stuttu seinna og kvaðst hreinlega ekki geta keyrt fyrir verkjum og yrði því að fá sjúkrabíl. Þá var gripið til þess ráðs að hringja í heimafæðingaljósmóður, og það vildi svo til að hún bjó við hliðina á mér.“ Emelía Rós kom í heiminn á fimmta tímanum um nóttina – í sjúkrabíl sem lagt var fyrir utan heimili fjölskyldunnar. Í fyrstu benti allt til að hún myndi ekki lifa af, enda ekki viðeigandi búnaður til staðar í bílnum til að bjarga lífi hennar. „Það var auðvitað ekki hægt að gefa henni súrefni af því að öndunargríman var alltof stór. Björgunarbúnaður- inn í sjúkrabílum gerir ekki ráð fyr- ir að það fæðist barn á 23. viku. Ég hélt á henni og bað fyrir henni, og sömuleiðis hjúkrunarfræðingurinn sem tók á móti henni. Það var það eina sem var hægt.“ Á vökudeild Landspítalans mat vakthafandi læknir það svo að Em- elía ætti nógu miklar lífslíkur til þess að grípa skyldi til aðgerða en Guðrún telur að þar hafi einnig haft áhrif að óvart hafði verið ritað í sjúkraskýrsl- una að hún væri gengin 24 vikur en ekki 23. Hafa þurfti hraðar hendur við að gefa Emelíu súrefni og koma henni fyrir í hitakassa. Því næst tók við hefðbundið ferli á vökudeildinni. „Hún var skírð mjög fljótt af því að ég vildi að hún myndi ná að fá nafnið sitt. Svo var bara tekinn einn dagur í einu. Ég bað vin minn, sem er prestur, að koma og biðja með mér. Maður beið bara og vonaði, enda lítið annað hægt. En svo fór hún að styrkjast,“ segir Guðrún. Þær mæðgur dvöldu næstu vikur á vöku- deildinni. Þann 7. janúar var síðan komið að heimkomu, en það var degi eftir að Emelía hefði átt að fæðast eft- ir fulla meðgöngu. Emelía hefur síðan þá verið undir ströngu eftirliti á Barnaspítalanum. „Hún er með teymi í kringum sig og hefur eins og aðrir fyrirburar þurft að gangast undir alls kyns þroskapróf og hitt fjöldann allan af sérfræðing- um, augnlækni, eyrnalækni, hjarta- lækni, sjúkraþjálfara og talmeina- fræðing,“ segir Guðrún og bætir við að þótt ótrúleg megi virðast hafi öll próf- in komið eðlilega út. Emelía stendur því fyllilega jafnfætis jafnöldrum sín- um í bæði andlegum og líkamlegum þroska. Margar spurningar sem vakna DV greindi í síðustu viku frá breytingatillögum starfshóps vel- ferðarráðuneytisins hvað varðar gildandi lög um fóstureyðingar en meðal annars er þar lagt til að fóstur- eyðing verði heimil að ósk konu fram að lokum 22. viku þungunar eða þar til fóstur telst hafa náð lífvænlegum þroska. Guðrún kveðst vissulega vera hugsi yfir þessum breytingum, eftir að hafa eignast barn sem kom í heiminn aðeins nokkrum dögum eftir umrædd tímamörk. „Að sjálfsögðu er fóstureyðing val hvers og eins, og aðstæður fólks eru mismunandi. Og skiljanlega eru ýmsar siðferðislegar spurningar sem vakna, og endalaust er hægt að deila um, eins og hvenær fóstur teljist vera barn eða hvort líf kvikni við getnað. Þess vegna vil ég gjarnan að fólk sjái myndirnar af henni. Ég held að það sé allt í lagi að fólk sé upplýst um það að barn sem fæðist á 23. viku lítur svona út og á raunverulega möguleika á að lifa. Ef Emelía hefði fæðst sólarhring áður hefði hún fæðst á 22. viku. Þess vegna sló það mig svolítið að heyra af þessum breytingum.“ Guðrún segir persónuleika og skapgerð dótturinnar augljóslega bera þess merki að hún háði baráttu upp á líf og dauða á fyrstu vikum ævinnar. „Hún er rosalega ákveðin, og veit alveg hvað hún vill. Þetta verð- ur krefjandi þegar hún er orðin eldri! Hún er algjör gleðigjafi og bara yndis- leg í alla staði. Þetta er svo mikil gjöf, að hún þurfi ekki lifa við skerðingar og eigi eftir að eiga jafn gott líf og allir aðrir. Framtíðin er björt. Við duttum einfaldlega í lukkupottinn með hana, það er ekki flóknara en það.“ n Fimmtán prósenta líkur Á Íslandi fæðast árlega um sex prósent barna áður en 37 vikna meðgöngu er náð. Þetta kemur fram á vefsíðu Félags fyrirburaforeldra. Um er að ræða svipað hlutfall og annars staðar á Norður- löndum og í Evrópu. Flestir fyrirburar koma í heim- inn eftir 34 vikur eða síðar. Fimm prósent fyrirbura eru fædd eftir minna en 28 vikna meðgöngu. Samantekt sem gerð var árið 2008 um niður- stöður margra rannsókna sýndi að börn fædd fyrir 23 vikna meðgöngu áttu sér nær enga lífsvon. Þau sem fæddust eftir 23 vikur höfðu 15 prósenta lífslíkur, eftir 24 vikur 55 prósenta og eftir 25 vikur 79 prósenta lífslíkur. Lífslíkur fyrirbura hafa farið stöðugt batnandi undanfarin ár, sérstaklega barna sem fæðast eftir um 23–25 vikur. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Óvænt Ekki er vitað hvað varð til þess að Guðrún fór af stað í september 2015. Hraust Emelía stendur jafnöldrum sínum jafnfætis. M y n d G u n n A r L ei fu r JÓ n A ss o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.