Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Side 18
Helgarblað 10.–13. mars 201718 Fréttir Erlent
Hrina ofbeldisglæpa tengist
alræmdum glæpasamtökum
n MS-13 eru ein stærstu gæpasamtök heims n Áhyggjur af vaxandi ofbeldi
Þ
etta er skelfilegt og allt að
því stjórnlaust,“ segir Edwin
C. Roessler, lögreglustjóri í
Fairfax-sýslu í Virginíuríki
í Bandaríkjunum, í samtali
við Washington Post. Bandarísk lög-
gæsluyfirvöld hafa vaxandi áhyggjur
af auknu ofbeldi sem tengist einu
stærsta glæpagengi heims, Mara
Salvatrucha, eða MS-13.
Fjölmörg mál
Fyrir skemmstu fundust líkams-
leifar tveggja ungmenna í Virginia
Park, en talið er að meðlimir MS-13
hafi myrt þau. Nokkrum mánuðum
áður hafði ungt par verið myrt í þess-
um sama garði og líkt og nú er talið
að morðin tengist MS-13. Fleiri mál
sem tengjast genginu hafa komið
upp í Bandaríkjunum undanfarnar
vikur. Tveir meðlimir samtakanna
voru handteknir á dögunum, grun-
aðir um rán og nauðgun á 14 ára
stúlku í Houston og morð á annarri
stúlku. Mennirnir, Diego Rivera og
Miguel Flores, eiga yfir höfði sér
dauðadóm. Í október voru um 35
meðlimir samtakanna handteknir
á Long Island í New York grunaðir
um morð og aðra glæpi og 16 til
viðbótar voru handteknir á dögun-
um grunaðir um morðin í Virginíu.
Fylgist með börnum sínum
Ekki hafa verið borin kennsl á
líkams leifar þeirra tveggja sem
fundust látnir í Virginíuríki í liðinni
viku, en lík hinna tveggja voru af
fimmtán ára stúlku og tuttugu og
eins árs karlmanni. Roessler hvatti
á blaðamannafundi foreldra til að
fylgjast með börnum sínum og vera
vakandi gagnvart þeim félagsskap
sem börnin sækja í. Timothy Slater,
fulltrúi bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI, í Washington, sagði
við Washington Post að gengjastarf-
semi MS-13 væri mikil í nágrenni
höfuðborgarinnar. Sömu sögu er að
segja af Texas og New York.
30 þúsund meðlimir
Talið er að meðlimir MS-13 á heims-
vísu séu um 30 þúsund talsins, en
samtökin eru með ítök víða í Banda-
ríkjunum og Mið-Ameríku. Sam-
tökin eiga rætur sínar að rekja til
níunda áratugar liðinnar aldar þegar
fjölmargir íbúar El Salvador flýðu
heimaland sitt og settust að í Banda-
ríkjunum eftir að borgarastyrjöld
braust út í landinu. Margir settust að í
Kaliforníu, Los Angeles og nágrenni,
og var félagsskapurinn stofnaður til
að vernda salvadorska innflytjendur
fyrir þeim gengjum sem fyrir voru á
svæðinu. Starfsemi samtakanna blés
út á níunda og tíunda áratug liðinnar
aldar og nú eru meðlimir frá mörgum
ríkjum; El Salvador, Bandaríkjunum,
Hondúras, Gvatemala og Mexíkó þar
á meðal og eru samtökin með starf-
semi í öllum þessum löndum.
Margir undir lögaldri
Sú hrina ofbeldisverka sem riðið
hefur yfir í Bandaríkjunum að
undanförnu er talin tengjast átök-
um innan samtakanna. Leiðtogar
MS-13 í El Salvador hafa kallað eftir
breytingum á æðstu stjórn sam-
takanna í Bandaríkjunum. Wash-
ington Post greindi frá þessu og
vísaði í hátt setta einstaklinga inn-
an bandarísku löggæslunnar sem
fylgst hafa með þróun mála. Þá hafi
samtökin átt auðvelt með að safna
nýliðum og þykja til dæmis ungir
innflytjendur auðveld skotmörk
samtakanna. Þannig hafi það kom-
ið lögreglu á óvart hversu ungir
einstaklingar væru meðlimir í sam-
tökunum, oftar en ekki óharðnaðir
unglingar. Þannig eru sex af þeim
sem handteknir voru vegna morð-
anna í Virginíu undir lögaldri.
Féll úr náðinni
Um miðjan febrúar fundust líkams-
leifar hinnar 15 ára Damaris A.
Reyes Rivas og hins 21 árs gamla
Christian Alexander Sosa Rivas.
Damaris hafði strokið að heiman
um miðjan desember og segir móð-
ir hennar við Washington Post að
hún hafi lent í slagtogi með með-
limum MS-13. Talið er að stúlkan
hafi verið lokkuð að iðnaðarsvæði
að kvöldi 8. janúar undir því yfir-
skini að þar ætlaði hópur vina að
reykja gras. Þegar þangað var komið
var stúlkan leidd burt og hún spurð
út í samband sitt við Rivas þar sem
það hafði spurst út að þau ættu í
ástarsambandi. Damaris er sögð
hafa gengist við því og í kjölfarið
verið stungin til bana. Nokkrum
dögum síðar fannst svo lík Rivas,
sem var meðlimur samtakanna en
hafði fallið úr náðinni nokkru áður
af ótilgreindum ástæðum.
Alþjóðleg glæpasamtök
Á undanförnum árum hafa fjöl-
margir einstaklingar, með tengsl við
MS-13, verið handteknir og dæmd-
ir fyrir glæpi í Bandaríkjunum. Há
glæpatíðni varð til þess að banda-
ríska alríkislögreglan stofnaði sér-
stakan vinnuhóp árið 2004 sem hef-
ur það eina hlutverk að uppræta
samtökin. Sem fyrr segir er talið að
meðlimir séu um 30 þúsund, þar af
eru um 6 þúsund í Bandaríkjunum,
og þekkjast þeir oftar en ekki á húð-
flúri eða fatnaði þar sem nafn sam-
takanna kemur fyrir. Árið 2012 varð
MS-13 fyrsta götugengið – og enn
sem komið er það eina – sem komst
á lista bandarískra stjórnvalda yfir
alþjóðleg skipulögð glæpasamtök.
Mikil ítök
Á síðustu árum hafa bandarísk yfir-
völd reynt ýmislegt til að stemma
stigu við útbreiðslu samtakanna,
meðal annars með því að vísa með-
limum samtakanna úr landi. Það
hefur aðeins stækkað vandamálið
utan Bandaríkjanna, til dæmis í El
Salvador þar sem samtökin hafa
gríðarlega mikil ítök. Því hefur
meira að segja verið haldið fram
að aðgerðir Bandaríkjamanna hafi
gert samtökin alþjóðleg, þúsund-
ir meðlima hafi verið sendir aftur
heim þar sem þeir héldu upptekn-
um hætti. Í El Salvador er morð-
tíðni enda ein sú hæsta í heiminum
og að miklu leyti er rakin til með-
lima MS-13. n
Fyrir dómi Diego Rivera og Miguel Flores eiga yfir höfði sér dauðadóm. Þeir eru ákærðir fyrir morð á ungri stúlku og mannrán og nauðgun gegn annarri. Mynd Houston CHroniCle
MS-13 virðast beita sífellt nýstárlegri að-
ferðum til að hagnast á glæpum sínum.
La Prense Gráfica, eitt stærsta dagblað El
Salvador, greindi frá því fyrir skemmstu
að lögreglan í El Salvador hefði upprætt
hóp innan samtakanna nýlega sem
neyddi ungar konur í hjónabönd.
Þessar konur áttu svo að hvetja
eiginmenn sína til að kaupa líftryggingu
eftir að í hjónaband var komið. Meðlimir
MS-13 myrtu svo eiginmennina og hirtu
þá peninga sem fengust úr tryggingun-
um. Þrjár konur, sem kallaðar voru svörtu
ekkjurnar, voru handteknar þann 24.
febrúar síðastliðinn en fimm manns, sem
sagðir eru skipuleggjendur, ganga enn
lausir.
Upp komst um málið eftir að tvær
konur stigu fram og sögðu lögreglu sögu
sína. Þær sögðust hafa fengið vinnu við
hreingerningar en síðan verið hnepptar
í ánauð af meðlimum MS-13. Þær hafi
verið neyddar til að ganga í hjónaband og
meðlimir samtakanna sannfært verðandi
eiginmenn um að kaupa líftryggingu, allt
í þeim tilgangi að hjálpa þeim að komast
til Bandaríkjanna. Ekki stóð steinn yfir
steini og voru mennirnir myrtir af útsend-
urum samtakanna. Talið er að MS-13 hafi
þénað fleiri milljónir á þessu.
einar Þór sigurðsson
einar@dv.is
Svörtu ekkjurnar