Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Qupperneq 56
Helgarblað 10.–13. mars 2017
19. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hann sá
þó 57%
markanna!
Sautján ár
samfleytt
n Útvarpsmaðurinn Ívar Guð-
mundsson á Bylgjunni var meyr
í vikunni, en þá áttaði hann
sig á því að hann hefði unnið á
Bylgjunni samfleytt í sautján ár.
„Stundum er alveg magnað hvað
tíminn líður hratt þegar maður
er að gera það sem maður hefur
gaman af,“ sagði Ívar sem hóf störf
á Bylgjunni þann 1. mars árið
2000. „Ég er nú ekki sérfræðingur
í sögu útvarps á Íslandi
en held að enginn
hafi verið lengur á
sama tíma á sömu
stöð samfleytt,“
sagði Ívar sem
þakkaði hlust-
endum kær-
lega.
Næstkynþokka-
fyllstur og fór
því heim
n Á dögunum
birti vefsíðan
Bleikt lista yfir
kynþokkafyllstu
karlmenn lands-
ins sem hópur álitsgjafa hafði
komið sér saman um. Það kom
fáum á óvart að fréttamaðurinn
Einar Þorsteinsson átti sæti á
listanum enda með afbrigðum
föngulegur maður. „Eitthvað svo
voðalega passlegur og líka með
seiðandi rödd,“ var haft eftir
álitsgjafa. Vinir og samstarfs-
menn Einars hafa hent gam-
an að tilnefningunni og þegar
tilkynnt var um komu Måns
Zelmer löw, sænsku Eurovision-
stjörnunnar, í Útvarpshúsið
spurði fyrrverandi fjölmiðla-
maðurinn Guðfinnur Sigurvins-
son hvernig Einari liði að vera
ekki lengur sá kynþokkafyllsti í
húsinu. „Ég
fór heim,“
sagði
Einar
léttur.
Þ
etta var ótrúlega svekkjandi,“
segir Gunnar Theodór
Gunnarsson, ökukennari
með meiru, sem skellti sér
á leik Barcelona og Paris Saint-
Germain í 16-liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar á miðvikudag.
Leikurinn er einn sá eftirminni-
legasti í sögu keppninnar enda
þurfti Barcelona að vinna upp
fjögurra marka forskot frá fyrri
leiknum sem tapaðist 4-0. Þegar
þrjár mínútur voru eftir af venju-
legum leiktíma var staðan 3-1
Barcelona í vil og útlitið ekki bjart.
Á þeim tímapunkti þurfti Barcelona
að skora þrjú mörk til að komast á
áfram á þeim örfáu mínútum sem
eftir lifðu.
Gunnar taldi – eins og eflaust
margir – að Barcelona næði aldrei
að skora þrjú mörk á þeim mínút-
um sem eftir lifðu. Gunnar og félagi
hans sem var með honum á leikn-
um ákváðu því að drífa sig af vell-
inum til að komast hjá því að lenda
í mannþrönginni eftir leikinn. Það
hefðu þeir betur látið ógert.
„Þegar við vorum nýkomnir út
af vellinum heyrðust fagnaðar-
læti,“ segir Gunnar en þá var brasil-
íski snillingurinn Neymar búinn
að skora gullfallegt mark beint úr
aukaspyrnu og koma stöðunni í
4-1. „Svo heyrðum við önnur fagn-
aðarlæti stuttu síðar,“ bætir Gunnar
við en þá var Barcelona nýbúið að
skora fimmta markið og vantaði
því aðeins eitt mark til að komast
áfram.
„Svo vorum við komnir nokkuð
víðs fjarri þegar allt gjörsamlega
trylltist. Bílar flautuðu og það
varð allt vitlaust,“ segir Gunnar
sem missti af þessum ótrúlega
lokakafla, en sá þó sjötta markið
á skjá á nærliggjandi bar og þegar
flautað var til leiksloka.
Gunnar segir að það sé vissulega
svekkjandi að hafa misst af þessum
ótrúlega lokakafla sem fer í sögu-
bækurnar. Aldrei áður hefur liði
tekist að komast áfram í Evrópu-
keppni eftir að hafa tapað fyrri
leiknum með fjórum mörkum. n
einar@dv.is
Fór af vellinum í stöðunni 3-1
n Gunnar skellti sér á leik Barcelona og PSG n Missti af ótrúlegum lokakafla
Svekkelsi Gunnar og félagi hans fóru af
vellinum rétt áður en lokakaflinn hófst.