Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Qupperneq 10
10 Helgarblað 21.–24. apríl 2017fréttir
Hættuleg aðkoma Vart þarf að fjölyrða um hætturnar sem fylgja því ef börn
komast í þessar nálar.
M
annaskítur, kassar fullir af
notuðum sprautum, rusl
og annar óþrifnaður er
meðal þess sem íbúar í
nágrenninu hafa ítrekað
fundið á lóð atvinnuhúsnæðis við
Norðurbrún 2 í Reykjavík að undan-
förnu. Þeir hafa fengið sig fullsadda
af sóðaskapnum í kringum húsið
sem verið hefur í niðurníðslu síðan
verslun lagðist þar af fyrir nokkrum
misserum. Áhyggjufullir íbúar í
grenndinni hafa gert Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur
viðvart um málið.
Í tvígang tínt upp
nálar sjálf
Í samtali við DV segir kona
sem býr í nágrenninu að í
minnsta kosti þrígang hafi
fundist gulir förgunarkassar
fyrir sprautur og nálar við
húsið. Í tvígang hefur hún
persónulega farið um og
tínt hinar varhugaverðu
notuðu nálar upp. Fyrsta
tilfellið sem hún man eftir
var fyrir nokkrum mánuð-
um þegar nágranni hennar
fann nálar sem dreift hafði
verið við húsgaflinn.
„Ég tók til minna ráða,
fór í hanska, sótti ísbox og
tíndi þetta upp. Hélt auð-
vitað að þetta væri einstakt tilfelli. Það
er búið að vera afskaplega draslara-
legt þarna, húsið í niðurníðslu og
alltaf að verða ógeðfelldara. Síðan
gerðist það um daginn að þarna var
gulur förgunarkassi, opinn, og nálar
og sprautur bókstaflega úti um allt.
Aftur tíndi ég þetta upp og gekk frá
þessu. Loks var á dögunum búið að
planta þarna öðrum kassa, af stærstu
gerð, sem að vísu var ekki opinn. Það
er hreinlega eins og einhver sé að
skila af sér þarna úti á horni,“ segir
konan sem kveðst vön að umgangast
sprautur og nálar við hinar ýmsu að-
stæður.
„En fólk í kringum mig, sem ekki
er vant þessu, fer á taugum við að sjá
svona.“
Óhugnanlegt
Hún segir alltaf einhvern sóðaskap
vera þarna í kring og fólk sé að skila af
sér pokum og drasli, að því er virðist
í skjóli nætur. „Þetta er orðið verulega
óhugnanlegt.“ Konan segir að Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur hafi verið
tilkynnt um málið.
Vart þarf að fjölyrða um hætturnar
sem fylgt geta notuðum sprautunál-
um og því ef börn, fullorðnir eða fjór-
fætlingar stinga sig á þeim þegar þær
liggja eins og hráviði úti um
allt við fjölfarna götu.
Samkvæmt fasteignaskrá
er húsnæðið að Norðurbrún 2 í eigu
samnefnds félags, Norðurbrún 2 ehf.
Húsnæðið er um 460 fermetra versl-
unarhúsnæði sem hefur meðal annars
hýst nytjamarkað Vonar og bjarga og
þar áður verslun 11-11 svo eitthvað
sé nefnt. Ekki náðist í forsvarsmann
félagsins við vinnslu þessarar frétt-
ar. Samkvæmt upplýsingum frá heil-
brigðiseftirlitinu skoðuðu fulltrúar
Norðurbrún 2 á þriðjudag. Í svari við
fyrirspurn DV segir að eftirlitið geri
þá kröfu á skráðan eiganda húsnæð-
isins að þarna verði hreinsað í kring-
um húsið og á lóð og gripið til ráðstaf-
ana til að koma í veg fyrir uppsöfnun
á úrgangi og rusli til frambúðar. Bréf
til eiganda með þessum kröfum um
úrbætur var póstlagt á miðvikudag
en eftirlitinu hafði ekki tekist að ná í
hann símleiðis. n
Notaðar sprautuNálar við
NiðurNídda NorðurbrúN 2
n Íbúar í nágrenninu áhyggjufullir n Verslunarhúsnæðið staðið autt um nokkurt skeið
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Þetta
er orðið
verulega
óhugnanlegt
Gengið örna sinna Ekki fæst betur séð en að mann-eskja, eða í það minnsta afar stór hundur, hafi gengið örna sinna við Norðurbrún 2.
Húsið stendur autt
Hér má sjá verslunar-
húsnæðið við Norður-
brún 2, sem virðist vera
orðið ruslakista fyrir
alls konar ósóma.
Sprautubox
Hér má sjá
stærri tegund-
ina af kassa
fyrir notaðar
sprautunálar.
Þessi er lokað-
ur en ljóst að
innihaldið er
það sama.
Sprauta innan um rusl
Rusl og annar sóðaskapur
safnast upp við hið
niðurnídda húsnæði. Á
myndinni má sjá glitta
í notaða sprautu undir
ruslapokanum nær
húsveggnum.