Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Page 18
18 Helgarblað 21.–24. apríl 2017fréttir - erlent Svona náði borgin betri tökum á offituvandanum n Yfirvöld í Amsterdam sögðu offitunni stríð á hendur n Eftirtektarverður árangur náðist Y firvöld í Amsterdam, höfuð borg Hollands, ákváðu fyrir nokkrum árum að segja offitu meðal íbúa stríð á hendur. Rannsóknir höfðu leitt í ljós að íbúar Amsterdam voru þyngri en íbúar annarra borga í landinu og fimmtungur barna glímdi við offitu eða ofþyngd. Með samstilltu átaki hefur þó náðst eftirtektarverður árangur í þessari baráttu eins og breska blaðið The Guardian fjallaði um á dögunum. Bestur árangur meðal þeirra efnaminnstu Ráðist var í átakið fyrir tilstilli Erics van der Burg, aðstoðarborgarstjóra Amsterdam og æðsta embættis- manns heilbrigðismála í borginni, og annarra stjórnmálamanna. Átakið hefur skilað því að milli ár- anna 2012 og 2015 hefur of þungum eða of feitum börnum fækkað um 12 prósent. Og það sem meira er þá hefur mestur árangur náðst meðal þeirra efnaminnstu, hóps sem alla jafna er erfitt að ná til. Þetta á til dæmis við um íbúa í hverfum á borð við Bijlmer í suðausturhluta borgarinnar. Vatn eða mjólk, ekki djús Wilbert Sawat er íþróttakennari við De Achtsprong-barnaskól- ann í Bijlmer. Skólinn er umlukinn þéttri byggð lítilla íbúða sem reist- ar voru á sjöunda áratug síðustu aldar. Markmiðið var að íbúar not- uðu hjól enda voru lagðir hjólreiða- stígar um allt hverfið. Árið 1975, þegar hollenska nýlendan Súrínam öðlaðist sjálfstæði, fluttust margir frá Súrínam og settust að í þessum ódýru íbúðum í Bijlmer. Árið 2007 var staðan sú að nemendur í De Achtsprong-barnaskólanum voru í hópi þeirra feitustu í Hollandi. Ákveðið var að skólinn yrði einn af miðpunktum átaksins og hefur árangurinn ekki látið á sér standa. Börn eru vigtuð á hverju ári, fylgst er með mataræði þeirra og lögð er áhersla á kennslu í næringarfræði. Þá gilda ákveðnar reglur um hvaða má borða í skólanum. „Öll börn verða að koma annað- hvort með vatn eða mjólk með sér í skólann. Ekki ávaxtasafa. Margir foreldrar voru ósáttir við þetta til að byrja með,“ segir Sawat og bætir við að margir foreldrar hafi talið ávaxtasafa hollan kost fyrir börn- in. Foreldrar fengu fræðslu um sykurmagnið sem getur leynst í slíkum drykkjum. „Ég sagði þeim að við værum að gera þeim greiða. Þau gætu fengið vatn í skólanum en djús heima. Núna mótmælir þessu enginn.“ Þetta eru ekki einu breytingarnar. Í hvert skipti sem barn átti afmæli mátti það koma með góðgæti með sér í skólann sem samnemendur gátu notið. „Þetta var orðið að eins konar keppni. Ef eitt barn kom með bollakökur kom það næsta með bollakökur og djús og það næsta með bollakökur, djús og leikföng,“ segir Sawat og bætir við að í dag séu hollari valkostir í boði og börn megi taka með sér ávexti eða grænmeti til að njóta í skólanum við slík tækifæri. Ekki McDonald's nema í fylgd með fullorðnum Svo virðist vera sem allir í nágrenni við skólann taki þátt í átakinu, eða lífsstílsbreytingunni. Þannig setti nærliggjandi McDonald‘s-veitinga- staður þær reglur að börn megi ekki kaupa neitt nema epli inni á staðn- um nema þau séu í fylgd með for- eldri eða forráðamanni. Þá nýtur skólinn góðs af styrk til kaupa á ávöxtum og grænmeti sem börnin fá þrjá daga vikunnar, gulrótum og radísum þar á meðal. Ástæða þess að einblínt var á börnin í átakinu í Amsterdam er sú að ráðast þarf að rótum vandans – auðveldara er að taka slaginn áður en í óefni er komið. Í umfjöllun The Guardian kom fram að um tvö þúsund börn í Amsterdam glíma við sjúklega offitu. Dana Bijvoet, hjúkrunarfræðingur og fjölskyldu- ráðgjafi, starfar í gagnfræðaskóla í borginni og segist sjálf hafa kom- ið að erfiðum málum. Nefndi hún dæmi um 14 ára stúlku sem glímdi við lifrarskemmdir sem rekja mátti til offitu. Stúlkan þjáðist af þung- lyndi og lágu sjálfsmati meðal annars. Læra að elda hollan mat En það er víðar en í Bijlmer sem barist er af fullum þunga gegn offitu. Í austurhluta borgarinnar kemur hópur fólks, börn og full- orðnir, saman í félagsmiðstöð og lærir að elda hollan mat. Amira El Ashkar, sem er frá Egyptalandi, stendur fyrir námskeiðinu og segir hún að markmiðið sé að sýna fólki að auðvelt er að elda hollan mat. „Fólk vill almennt séð elda hollan mat – það kann það bara ekki,“ seg- ir hún. Eins og að framan greinir var ráðist í átakið, meðal annars fyrir tilstilli Van der Burg sem tilheyrir hægri flokknum VVD. Hann ólst sjálfur upp í Bijlmer og hefur skorið upp herör gegn offituvandanum en þó án þess að grípa til of róttækra aðgerða. Amsterdam verður einn af miðpunktum Evrópumótsins í körfubolta sem fram fer í sumar en skipuleggjendur mótsins þurftu þó að lúta ákveðnum skilyrðum til að mótið gæti farið fram í borginni. „Við sögðum við þá að þeir mættu ekki hafa Monster-orkudrykkja- framleiðandann eða Burger King sem bakhjarla keppninnar,“ segir hann við The Guardian. Það sama er uppi á teningnum varðandi aðra íþróttaviðburði í borginni, til dæmis Evrópumótið í íshokkí og heimsmeistaramótið á listskautum. Þá standa yfir viðræður við forsvars- menn veitingahúsa í borginni um að bjóða upp á hollari mat og einnig er vilji til þess að banna gosdrykkja- auglýsingar á íþróttaleikvöngum í eigu borgarinnar. Svefninn mikilvægur Van der Burg segir að eitt eigi til að gleymast í allri þessari umræðu og það er mikilvægi þess að fá góðan nætursvefn. „Það virðast ekki nógu margir gera sér grein fyrir því en það er mjög mikilvægt að fá nægan svefn.“ Karen den Herton, einn af forsvarsmönnum verkefnisins í Amsterdam, segir við The Guardian að meðal þess sem lögð er áhersla á sé að fræða foreldra um mikilvægi þess að börn fái nægan svefn. Í grein The Guardian var rætt við Corinnu Hawkes, prófessor við City University í London, sem segist vera hrifin af hollensku aðferðinni í baráttunni gegn offitu. „Þau ákváðu að fara aðra leið en að kynna til sögunnar sykurskatt – þau fóru þá leið að leggja áherslu á að fólk kæmist í betri tengsl við umhverfi sitt. Þau ræddu við foreldra og færðu hlutina þannig í betra horf. Við þurfum að skilja hvers vegna fólk tekur þær ákvarðanir sem það tekur og bregðast við í samræmi við það,“ segir hún. n Þetta eru borgaryfir- völd að gera Nokkur dæmi: n Banna ávaxtasafa í grunnskólum og koma upp vatnsbrunnum í borginni. n Skipuleggja matreiðslunámskeið þar sem áhersla er lögð á hollan en góðan mat. n Neita samstarfi eða styrktarsamning- um við orkudrykkjaframleiðendur eða skyndibitafyrirtæki. n Hvetja foreldra til að láta börn sín hjóla eða ganga. n Hvetja fjölskyldur til að borða kvöld- matinn saman. n Leggja áherslu á mikilvægi fyrstu þúsund dagana í lífi barna. Mæðrum og óléttum konum veitt ráðgjöf um næringu. n Niðurgreiða kostnað við íþrótta- iðkun barna sem koma frá efnaminni heimilum. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Eric van der Burg Hafði veg og vanda af verkefninu. „Það virðast ekki nógu margir gera sér grein fyrir því en það er mjög mikilvægt að fá nægan svefn. Ofþyngd Borgaryfirvöld í Amsterdam hafa náð góðum árangri í baráttunni gegn ofþyngd og offitu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.