Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Síða 37
Besti ísinn í bænum 3Helgarblað 21.–24. apríl 2017 KYNNINGARBLAÐ
Við gerum ísinn sjálfir, bæði í Ögurhvarfi og á Selfossi, og það er
enginn með þennan ís nema
við. Við erum með alvöru
rjómaís, mjög góðan, og
síðan erum við með þenn-
an gamla, kalda ís, sem er
vatnskenndur, en hann er
mjög vinsæll hjá unga fólk-
inu,“ segir Jón Magnússon,
eigandi Skalla í Ögurhvarfi.
Ísinn hefur ávallt verið
aðalsmerki Skalla og stendur
alltaf fyrir sínu og nýtur alltaf
jafnmikilla vinsælda. „Ef það
bara rétt glittir í sólina þá
bókstaflega fyllist allt hérna,
sólin fyllir alla lífsgleði og allir vilja
fá sér ís,“ segir Atli Jónsson, sonur
Jóns Magnússonar. Þeir feðgar
reka Skalla í Ögurhvarfi. Skalli
er líka á Selfossi, þar eru aðrir
eigendur en náið samstarf er á
milli staðanna og á Selfossi er
sami góði Skallaísinn einnig búinn
til frá grunni á staðnum. Skalli er
líka vinsæll vegna mikils úrvals
góðra skyndirétta og er í senn
veitingastaður og ísbúð. Íssalan
tekur mikinn kipp á sumrin, ekki síst
ef sést til sólar, eins og fyrr segir.
Girnilegur, fjölbreyttur og ferskur
nammibar spillir þar ekki fyrir.
Skalli á sér langa sögu og hóf
starfsemi sem sjoppa og ísbúð í
Lækjargötu árið 1973. Það voru í
raun nemendur í Menntaskólan-
um í Reykjavík sem gáfu staðnum
nafn:
„Í Lækjargötu var sjoppa áður
en Skalli var opnaður en hana
rak sköllóttur maður. Mennta-
skólakrakkarnir töluðu um að kíkja
á skalla þegar þeir fóru í þá sjoppu
og þar með varð nafnið til,“ segir
Atli.
Eins og mörg góð fyrirtæki hvílir
Skalli á gömlum grunni en þróast
jafnframt í takt við tímann og er
sívinsæll. Sem fyrr segir er Skalli
á tveimur stöðum, í Ögurhvarfi
2 í Kópavogi og á Austurvegi 6 á
Selfossi. Á báðum stöðunum er
ísinn aðalsmerkið en fjölbreytt
úrval góðra skyndibita nýtur einnig
mikilla vinsælda.
Skalli býr til sinn eigin ís sem
þú færð hvergi annars staðar
Mynd © 365 ehf / Stefán KarlSSon
Jón Magnússon