Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 4
4 Helgarblað 30. júní 2017fréttir M aður hefur heyrt því fleygt að Félagsbústaðir hafi verið stofnaðir til þess að Reykjavíkurborg geti komist framhjá stjórnsýslulögum. Miðað við mína upplifun þá virð- ist það vera rétt,“ segir Guðlaugur Stefán Pálmason í samtali við DV. Guðlaugur hefur leigt húsnæði í Fossvogi af Félagsbústöðum í tólf ár en fyrirvaralaust rifti fyrirtækið leigusamningnum í júní 2015. Síð- an þá hefur hann staðið í baráttu við stofnunina og segir farir sín- ar ekki sléttar. „Það stendur ekki á mér að flytja út ef ég fæ annað hentugt húsnæði. Félagsbústað- ir hafa ekki boðið mér neitt ásætt- anlegt húsnæði í staðinn og ganga fram af ótrúlegri hörku og óbil- girni. Velferð er ekki í hávegum höfð þar innandyra,“ segir Guð- laugur. Þá segir hann að fyrirtækið beri fyrir sig lygar varðandi ástæð- ur uppsagnarinnar. „Ástæðurn- ar hafa breyst. Fyrst sögðu þeir að húsið væri óíbúðarhæft en núna er vísað í skipulagsbreytingar. Það á að rífa þetta hús til þess að byggja upp heimili fyrir ósakhæfa glæpa- menn en feluleikurinn með það er hinu opinbera ekki sæmandi.“ Guðlaugur ber einnig forstöðu- manni þjónustudeildar Félagsbú- staða, Birgi Ottóssyni, illa söguna. Slasaðist illa í umferðarslysi Segja má að atburðarásin hafi byrjað árið 2000 þegar Guðlaug- ur lenti í alvarlegu umferðarslysi. Hann rak á þeim tíma líknarfélag auk þess sem hann var með sjálf- styrkingarnámskeið fyrir börn á landsvísu. Þegar slysið átti sér stað var hann ásamt félaga sínum í fjáröflun úti á landi. Þeir voru á milli Stokkseyrar og Eyrarbakka þegar bíll þeirra bilaði skyndilega og drap á sér. „Við komumst út af veginum, vel út fyrir hvítu línuna og síðan kíkti félagi minn ofan í húddið og reyndi að átta sig á hvað hefði gerst,“ segir Guðlaugur. Það næsta sem Guðlaugur veit er að hann rankar við sér langt fyr- ir utan bílinn og horfir á sjúkra- og lögreglubíla á vettvangi alvarlegs slyss. Bíll á fullri ferð hafði ekið aftan á bifreið félaganna. „Ég fékk stuðarann á bílnum okkar í bakið og rotaðist á bitanum milli hurða. Ég kastaðist framhjá stýrinu, skall með hökuna ofan á mælaborðið og lenti síðan á félaga mínum með rúðuna á milli okkar. Afleiðingin var sú að hann flaug um 15 metra út í hraun. Hann eyðilagði hnéð á sér og öxl en slapp annars lygi- lega vel,“ segir Guðlaugur. Sjálf- ur var hann illa slasaður og meðal annars festist takki úr mælaborði bílsins í hálsi hans. Þrátt fyrir að betur hafi farið en á horfðist þá hefur Guðlaugur þurft að glíma við afleiðingar slyssins æ síðan, meðal annars brjósklos og slit í baki. „Ég fór í sjúkraþjálfun skömmu síðar og þar var mér tilkynnt að til þess að eiga eðlilegt líf þyrfti ég að vera í þjálfun í 7–8 tíma á dag. Það er spurning hversu eðlilegt líf það er,“ segir Guðlaugur og kímir. Hunsuðu lögbundið viðhald Síðan þá hefur hann verið öryrki og átt afar erfitt með að fóta sig á vinnumarkaði. „Ég fæ reglulega köst í bakið og ligg þá óvígur í 1–3 vikur. Það vill enginn slíkan starfs- kraft og þá sérstaklega í því sem ég hef reynslu, stjórnun og markaðs- málum. Ég er eiginlega búinn að gefast upp á að leita mér að vinnu,“ segir Guðlaugur. Eins og áður segir þá fékk hann umrætt hús leigt í október 2005. Um er að ræða gamalt en fallegt einbýlishús í botni Fossvogs og þar hefur Guðlaugi liðið afar vel og alið upp syni sína. „Ég hef alla tíð staðið við mitt og hef alltaf greitt húsaleigu á réttum tíma,“ segir Guðlaugur. Þá fékk hann leyfi til þess að hafa hundana sína í hús- inu sem skiptir hann afar miklu máli. „Ég á sífellt að vera í sjúkra- þjálfun en hef einfaldlega ekki efni á því. Hundarnir mínir halda mér við efnið í þeim efnum. Ég kemst ekki upp með annað en að hreyfa og fæða þá daglega þrátt fyrir verk- ina og það gerir mér gott. Þá eru hundarnir mínir svo ótrúlegir að þeir leggjast upp að mér þar sem bólgurnar eru í líkamanum og lina þannig þjáningar. Þeir hjálpa mér að sofa og ég gæti ekki án þeirra verið,“ segir Guðlaugur. Að sögn Guðlaugs hefur viðhaldi hússins verið ábótavant að hálfu Félagsbústaða og um mitt ár 2015 var það metið óíbúðar- hæft. „Afleiðingarnar urðu þær að ég gat ekki haft börnin mín hjá mér og því tók ég til minna ráða við að lagfæra húsið. Það tók mig um fimm vikur að klára uppsafnað lögbundið viðhald með hjálp góðs fólks. Viðhald sem Félagsbústaðir höfðu ekki sinnt og lentu á mér ör- yrkjanum,“ segir Guðlaugur. Hann segir að verkefnið hafi tekist vel og húsið sé fyllilega íbúðarhæft í dag. Upplifði einelti Á þessum tíma átti hann í sam- skiptum við Félagsbústaði sem vildu greinilega losna við hann úr húsinu. Þann 10. júní fékk Guðlaugur loks þau skilaboð frá Birgi Ottóssyni, forstöðu- manni þjónustudeildar Félags- Smiðjuvegi 4C 202 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Engin velferð hjá Félagsbústöðum n Guðlaugur Stefán verður borinn út af heimili sínu á næstunni n Hann fordæmir framgang Félagsbústaða Guðlaugur Stefán Pálmason Er viss um að saga hans hjá Félagsbústöðum sé ekki einsdæmi. Hann hvetur einstaklinga sem eiga um sárt að binda að setja sig í samband við hann. Mynd SiGtryGGUr Ari „Ég er viss um að það séu fleiri sem hafa farið illa út úr samskiptum sínum við Félagsbústaði. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.