Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Page 8
8 Helgarblað 30. júní 2017fréttir
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
R
annsóknartilgáta okkar var
að nemendur eyddu yfir
tveimur klukkustundum
á dag í símanotkun. Það
má því segja að niðurstöðurnar
hafi komið okkur talsvert á óvart.
Verulegur hluti af vökustundum
ungs fólks fer í að glápa á skjá-
inn og eflaust er fyrst og fremst
um afþreyingu að ræða,“ segir
Kristófer Gautason, nýútskrifaður
stúdent frá Verslunarskóla Íslands.
Kristófer framkvæmdi rannsókn á
snjallsímanotkun nemenda í skól-
anum ásamt skólafélögum sín-
um, Halldóri Rúnari Vilhjálms-
syni, Viktori Daða Úlfarssyni og
Þorkatli Mána Þorkelssyni. Fylgst
var með 48 nemendum yfir langt
tímabil og urðu niðurstöðurn-
ar þær að hver og einn nem-
andi eyddi að meðal tali þremur
klukkustundum og 39 mínútum
daglega í símanum. „Snjallsím-
arnir eru orðnir órjúfan legur hluti
af lífi ungs fólks og við erum ekki
undanskildir í því. Við höfðum því
áhuga á að fylgjast með því hversu
miklum tíma við eyddum í símun-
um og hvernig staða okkar væri í
samanburði við jafnaldra okkar,“
segir Kristófer.
Engar íslenskar rannsóknir til
Rannsóknin fór fram með hjálp
smáforritsins „Moment“ sem
mælir símanotkun hvers not-
anda. Valdir voru tólf nemendur
af handahófi úr hverjum árgangi
skólans til að taka þátt, 48 nem-
endur alls. Gögnum var safnað í
þrjár vikur alls og sendu nemend-
urnir skýrslu í lok hverrar viku.
„Niðurstöðurnar komu okkur
mjög á óvart. Það kom í ljós að
nemendur eyddu mun meiri tíma
í símanum en við hefðum getað
ímyndað okkur,“ segir Kristófer.
Hópurinn bar einnig saman notk-
unina eftir árgöngum en þar
hafði hópurinn gert ráð fyrir að
yngstubekkingarnir væru mest í
símanum. „Það var einfaldlega
út af því að þau hafa alist meira
upp við snjallsímana. Það kom
hins vegar í ljós að 5. bekkingar
voru mest í símanum eða rúm-
ar fjórar klukkustundir á dag. Út-
skriftarnemendur voru minnst
í símanum eða aðeins rétt
Eyða um fjóRum
klukkustundum í
símanum daglEga
Nemendur Verslunarskólans gerðu rannsókn á snjallsímanotkun innan veggja skólans „Tengsl þunglyndis
og kvíðaraskana
við notkun á snjallsímum
og samskiptamiðlum
er tiltölulega nýtt rann-
sóknarefni og margt sem
þar á eftir að skýrast.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Símanotkun
Samkvæmt rannsókn innan Verslunarskólans
eyddu nemendur að meðaltali þremur klukku-
stundum og 39 mínútum í snjallsímum sínum
daglega.