Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 12
12 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson
aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 30. júní 2017
Einföldu
hrossakaupin
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, virðist vera að koma
sér út úr vandræðunum sem
fylgdu kosningunum í byrjun
mánaðarins. Til þess að tryggja
sér meirihluta á
breska þinginu
þurfti hún tíu
þingmenn og
þá fann hún í
litlum furðu-
flokki á Norður-
Írlandi. Til þess
að gera þá að
þingmönnum
sínum þarf
Theresa May
ekki að gera ann-
að en að láta breska ríkið
borga einn milljarð punda eða
sem svarar til 135 milljarða ís-
lenskra króna. Við frónbúar
erum vön pólitískum hrossa-
kaupum en ekki jafn ein-
földum og þessum. Það væri
kannski ráð að fylgja þessari
stefnu Breta eða hefði ekki ver-
ið nær að leggja nokkra millj-
arða inn á reikning Viðreisnar
í stað þess að eyða kröftum og
fé í að blekkja þá og þjóðina
um að Sjálfstæðismenn séu að
fara að styðja þær breytingar á
sjávar útvegskerfinu sem Við-
reisn hefur lagt upp með.
Skynsemi og ferðaþjónusta
Í
nýrri skýrslu Efnahags- og fram-
farastofnunar, OECD, eru lagð-
ar fram ýmsar skynsamlegar
tillögur, þar á meðal að virð-
isaukaskattur á ferðaþjónustu
verði hækkaður til jafns við aðrar
greinar. Þá hugmynd hafði Bene-
dikt Jóhannesson fjármálaráð-
herra reyndar þegar fengið. Við-
brögð ferðaþjónustunnar við
þeirri tillögu hans voru eins og
búast mátti við á þeim bæ; menn
veinuðu og börmuðu sér og sögðu
atvinnugrein-
ina svo sérstaka
að ekki mætti
flokka hana til
jafns við aðrar
greinar. Ríkis-
stjórnin þarf að
gæta sín á því
að verða ekki
svo meðvirk að
hún taki mark á
þessu kveini og
aumki sig yfir
atvinnugrein
sem græðir á
tá og fingri. Það
er bæði sjálf-
sagt og eðlilegt að ferðaþjónustan
borgi sama virðisaukaskatt og
aðrar greinar – helst þegjandi og
hljóðalaust þótt varla sé hægt að
búast við því. Grátkór ferðaþjón-
ustunnar er orðinn jafn þreytandi
og grátkór útgerðarinnar og jafn
marklaus.
OECD segir einnig að takmarka
verði aðgengi að viðkvæmum stöð-
um á landinu og taka upp gjöld til
að stýra flæði ferðamanna. Þetta
eru svosem engar fréttir, of lengi
hefur verið ljóst að á þessu er þörf.
Síðasta ríkisstjórn hefði betur átt-
að sig á því og gripið í taumana. Nú
er komið í algjört óefni hvað þessi
mál varðar. Fallegir og viðkvæmir
staðir á landinu eru sumir hverj-
ir að eyðileggjast vegna ágangs og
skeytingarleysis ferðamanna og
aðrir eru í stórhættu. Ferðamenn
eiga ekki að fá að vaða eftirlitslaus-
ir um viðkvæm svæði þar sem því
miður finnast dæmi um meðvit-
aða skemmdarstarfsemi. Ekkert er
síðan athugavert við að takmarka
fjölda ferðamanna á þessum
svæðum. Um leið verða menn að
losa sig við þá hugsun að ekki megi
rukka ferðamenn sem heimsækja
vinsæl svæði og náttúruperlur.
Mikilvægt er að á bak við allar
þær framkvæmdir sé skynsamleg
hugsun, ekki bara gróða- og hagn-
aðarsjónarmið.
Núverandi ríkisstjórn verður
að láta hendur standa fram úr
ermum. Nýr ferðamálaráðherra,
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, er greinilega viljugur til þess
og vill hafa samvinnu við önnur
ráðuneyti og stofnanir til að koma
skikk á þessi mál og sér jafnvel
fyrir sér nýja stofnun eða einingu
þar sem unnið er að rannsókn-
um er varða náttúru landsins og
ferðamannastaði. Ferðamálaráð-
herra er vonandi svo starfsamur
að einhver hreyfing fari að komast
á mál sem hafa verið í alltof mikl-
um hægagangi á síðustu árum. n
Það hlýtur að vera gaman að fá
„eingreiðslu upp á 4,7 milljónir“
Egill Helgason um greiðslu til ríkisendurskoðanda. – eyjan.is
Stjórnmálamennirnir og flokkarnir
ráða ekki við þessi hagsmunaöfl
Styrmir Gunnarsson – DV
Allur matur er
góður í hófi
Ólöf Tara Harðardóttir – DV
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Grátkór ferða
þjónustunnar er
orðinn jafn þreytandi og
grátkór útgerðarinnar og
jafn marklaus.
Mynd SiGTryGGur Ari
Myndin Í tjaldbúðum Rigningin virðist ekki trufla tjaldbúa á tjaldsvæðinu í Laugardal, sem oftast er þétt setið þessar vikurnar. Um 650 manns geta búið á svæðinu hverju
sinni. Mynd SiGTryGGur Ari