Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Blaðsíða 63
Jóhann Vilhjálmsson er lærður byssu- og hnífasmiður. Hann vann sem vélstjóri og járn-
smiður áður en hann fór til Belgíu
í skóla til að læra og fer enn til
Belgíu árlega til að kíkja á vini sína
í sama fagi, taka þátt í sýningum og
læra eitthvað nýtt.
„Ég byrjaði í Héðni 1971, þar
lærði ég rennismíðina og eftir það
fór ég í vélvirkjun og vélskólann,“
segir Jóhann. „Ég var á sjó alveg
til ársins 1990, þá hætti ég og fór
upp úr því, 34 ára gamall, í skóla í
Belgíu.“
Eins og fara aftur í tímann
Skólinn sem Jói fór til náms í er
Ecole d’Armuriere, í borginni Liege
í Belgíu, yfir hundrað ára gamall,
og segir Jói að það hafi
verið eins og að fara
50 ár aftur í tímann að
stíga þar inn. Námið
sem Jói lagði stund
á er fullgilt nám til
fjögurra ára og lærði
hann byssusmíðina auk
skreytinga, þó að hann
segist lítið sinna þeim.
Hefur Jói unnið við
byssusmíðina síðan,
en hann starfar einnig
sem hnífasmiður.
„Ég er með hnífasmíði sem ber
nafnið Icelandic knives og er búinn
að reka litla verslun síðan 2013 á
Dalbraut, þar sem ég er líka með
verkstæði og sinni bæði byssu- og
hnífasmíðinni,“ segir Jói.
Hnífasmíðina lærði hann af
kunnum þýskum hnífasmiði, Wolf
Borger, sem fallin er frá. „Ég heim-
sótti hann oft í Rínardalinn, þar
sem hann var með stórt verkstæði,
í því skyni að kaupa efni og tæki
hjá honum og læra meira,
hann var guðfaðir minn í
hnífasmíðinni.“
Jói kynntist jafnframt öðrum
hnífasmiðum í belgíska hnífasam-
bandinu, BKS, sem hann er félagi
í. „Ég fer í „mekkaferð“ einu sinni
á ári, til að kíkja á vini mína. Fyrst
fór ég mikið til að læra eitthvað
nýtt, núna er ég meira að kíkja á
sýningar og hitta aðra hnífasmiði.“
Jói hefur tekið þátt í fjölda sýninga
með BKS, en þær fara fram í litlu
þorpi rétt hjá skólanum sem hann
lærði fagið í. „Það er í þessum ferð-
um sem ég kynnist hnífasmiðum
víðs vegar að úr heiminum og við
berum saman bækur okkar.“
Sá eini á Íslandi
„Það er enginn hér heima að smíða
eins hnífa eins og ég geri,“ segir
Jói, en hnífarnir hans eru hrein
listasmíði. Kaupendur eru bæði
innlendir og erlendir og sem dæmi
má nefna þá voru nokkrir Tékkar
nýfarnir frá honum þegar viðtalið
var tekið.
„Hnífarnir eru vinsælir sem
gjafir og töluvert dýrari en verk-
smiðjuhnífar, að meðaltali fara 2–3
dagar í hvern hníf þannig að þeir
eru ekki á Kínaverði,“ segir Jói.
Hann er nýlega búinn að selja
hníf til Ameríku og í slíkum til-
vikum segir hann kaupendur hafa
einhverja hugmynd um hvað þeir
vilja, hann sendi þeim myndir og
þeir velji síðan. „Á hverjum degi
detta hér inn ferðamenn, sumir
bara til að skoða, aðrir til að kaupa,
eins og gengur og gerist.
Einstaka veiðimenn vilja
vandaða hnífa,“ segir Jói, „veiði-
menn sem eiga allt nú orðið og
vinirnir gefa hnífa í stórafmælis-
gjafir og af öðrum tilefnum.
Ég hef ekki mikinn tíma í
sérsmíði, en það er alltaf hægt
að fá áletranir og ég reyni að
verða við sérþörfum ef þær eru
einhverjar, eins og til dæmis
hvað varðar lengd og form.“ Jói
smíðar líka vasahnífa og þeir
taka jafnvel þrjá daga í smíði.
Sonurinn byrjaður að smíða
Sonur Jóa, 16 ára, er byrjaður að
smíða hnífa og því líklegur arftaki
föður síns. „Já, hann hefur smíðað
hnífa, en á þessum aldri er auð-
vitað margt við að vera og margt
fleira sem er skemmtilegra þegar
maður er unglingur.“
Handlaginn
handverksmaður
Jóhann Vilhjálmsson hnífasmiður