Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Qupperneq 66
Jæja, þá er júní að renna sitt skeið og það er staðreynd að kona er orðin árinu
eldri og nær fimmtugsaldri,
en fertugsaldri. Alveg ótrúlegt
hvað tíminn flýgur, en máltækið
segir „tíminn flýgur þegar þú
skemmtir þér“, þannig að vá!
hvað ég hlýt að skemmta mér vel
því ég var fertug bara um daginn
og sonur minn er orðinn eldri
en ég var þegar ég átti hann, sem
er alls ekki svo langt síðan.
Í gamla daga þegar ég var
barn og unglingur (nú hljóma
ég eins og foreldrar mínir), var
fólk hreinlega orðið eldgamalt
komið yfir þrítugt, til dæmis
voru kennararnir mínir miklu
eldri en ég, en í dag þegar ég
fletti þeim upp í vinalistanum
á Facebook eru þeir kannski
áratug eldri en ég, merkilegt!
En þetta er nú að mestu inni
haldslaust tuð, ég er þakklát fyrir
hvert og eitt ár sem tínist inn,
hverja hrukku og reynslu sem
þeim fylgir, það eru ekki allir
sem verða jafngamlir og ég, það
hefur lífið kennt mér. Lífið hefur
líka kennt mér fleira, mestallt
gott, smávegis slæmt, en lífið
er oftast frábært, skemmtilegt
og fullt af alls konar lærdómi
sem ég reyni að tileinka mér
þó að það takist misvel. Besti
lærdómurinn er lagður fyrir í
skóla lífsins og þar hef ég meðal
annars lært þetta hér:
Það er engin skylda að nýta
allar gjafirnar sem þú fékkst í
vöggugjöf, þær voru gefnar án
skilyrða. Það er hins vegar hrein
heimska að nýta sér ekki þessar
þrjár í ómældu magni: gáfur,
góðmennsku og gjafmildi.
Lærðu alla ævi, líka það sem er
ekki kennt í bókum. Lærðu að
setja þig í spor annarra, jafnvel
þó að þú komist ekki í skóna
þeirra. Eignastu nýja vini, en
haltu vinskap við þá gömlu líka.
Hver og einn er einstakur og
frábær viðbót í minningabank
ann. Svo verður svo gaman að
þekkja einhverja þegar þú mæt
ir á Grund. Sannir vinir standa
með þér í gleði og sorg, það er
gott en ekki skylda að komast
að því minnst einu sinni á
ævinni. Þú hættir ekki að hlæja
þegar þú eldist, þú eldist þegar
þú hættir að hlæja. Komdu
fram við aðra eins og þú vilt að
þeir komi fram við þig, flestir
hafa þetta í heiðri. Brosum og
munum að lífið er of stutt fyrir
falska vini, vondan mat, lélega
tónlist, leiðinlegar bækur, flatan
bjór, ljóta skó, lélegt kynlíf og
að aka um á leiðinlegum bílum.
Það gengur allt mun betur ef
jákvæðni er með í för og tónlist,
helst sú sem þú getur sungið
með (illa). Áhyggjur valda líka
hrukkum, sem gera mann eldri.
Elskaðu þig skilyrðislaust, ef
þú gerir það ekki geturðu ekki
ætlast til að aðrir geri það. *Við
eigum öll rétt á hamingjunni.
Sumarkveðja, Ragna
ragna@dv.is
Aldurinn og
lærdómurinn
Tónlistarhátíðin Drangey Music Festival, sem fram fer
á Reykjum á Reykjaströnd,
hefur fest sig í sessi sem ein af
tónlistarhátíðum sumarsins.
Þar sameinast náttúru fegurð,
skemmtileg stemning
undir berum himni og
frábær tónlist í eins
taka þrennu sem þú
vilt alls ekki missa af
að upplifa. Tónlistar
hátíðin fór fram í þriðja
sinn um Jónsmessu
helgina og fram komu
Mugison, Jónas Sig og
Ritvélar framtíðarinnar,
Amabadama, Contalgen
Funeral og Emmsjé Gauti.
Hjalti Árnason, lögfræðing
ur Byggðastofnunar, er mikill
tónlistar og tónleikaáhugamaður.
Myndavélin fær alltaf að fylgja með
og gaf Hjalti Birtu góðfúslega leyfi
til að birta myndir sem hann tók
á tónlistarhátíðinni. Fleiri myndir
má sjá á ljósmyndasíðu Hjalta,
www.flickr.com/hjaltiarna.
Heimafólkið í Contalgen
Funeral hóf fjörið, rapparinn
Emmsjé Gauti sá síðan um að rífa
fólkið á fætur, en kappinn lék á als
oddi og prílaði meðal annars upp
á þak til að ná betur til mannfjöld
ans. Hinn geðþekki Mugison var
næstur á svið, en hann er nú á tón
leikaferð um landið, Amabadama
með hina fjölhæfu Sölku Sól
fremsta í flokki, steig síðan á
svið og Jónas Sig og Ritvélar
framtíðarinnar sáu um að loka
kvöldinu með þéttum takti.
Drangey sjálf blasir við
tónleikagestum og geta
gestir gert sér ferð út í
eyjuna með Drang
eyjarferðum, slík
ferð er ógleymanleg
upplifun. Drangey
Music Festival er
sannarlega frábær
tónlistarhátíð
sem vert er að
setja í dagatalið
og heimsækja
að ári.
Drangey Music Festival
Fjörug
tónlist,
Frábær
stemning
og Falleg
náttúra
Fjölskylduskemmtun
Drangey Music Festival er fyrir
alla fjölskylduna. Myndir: Hjalti Árna
klappað með
Jónas Sigurðsson
hvetur áhorfendur
til að syngja og
klappa með.