Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Síða 68
Grill, Gleði
oG Gaman
á Götuhátíð
Götuveislan á Flateyri
Íbúar á Flateyri héldu bæjarhátíð sína, Götuveisluna, um
Jónsmessuhelgina. Glatt var á hjalla og mikið fjör meðal
bæjarbúa. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá föstu-
dagskvöld og laugardag. Áður stóð hátíðin eitt kvöld og
bar nafnið Ólafstúnshátíð, en í hittifyrra var nefnd valin
og óskað eftir að allir bæjarbúar hjálpuðust að við að
skipuleggja bæjarhátíð og árið í ár því það þriðja sem
Götuveislan er haldin.
Hátíðin hófst með dúndurtónleikum Bjartmars Guðlaugssonar á hinum
víðfræga Vagni á Flateyri, en
nýir eigendur Vagnsins taka mót
nýju sumri af miklum metnaði,
spennandi dagskrá í farvatninu
og munu Andrea Gylfadóttir og
Sniglabandið spila þar núna um
helgina, 30. júní–1. júlí.
Á laugardeginum klæddu stórir
sem smáir sig í hina ýmsu bún
inga, reimuðu á sig hlaupaskóna
og tóku sprettinn út Önundar
fjörð. Flestir létu sér nægja tvo
kílómetra en þrjár ofursprækar
súperskutlur tóku fimm kílómetra
og það næstum án þess að blása
úr nös. Hjónin Jón og Gunna tóku
svo á móti hlaupurum, íbúum og
gestum í Gunnukaffi með dýrindis
pítsusneiðum og gosi og var gerður
góður rómur að. Siggi Hafberg
bauð síðan upp á kajakferðir fyrir
áhugasama.
Opið hús hjá heimamönnum
Það er hefð fyrir því að útvaldir
heimamenn opni heimili sín fyrir
gestum Götuveislunnar og á meðal
þeirra voru hjónin Stanley og Alina
Kordek sem buðu gestum að skoða
gullfallegan skrúðgarð sem þau
hafa af mikilli natni unnið að við
húsið sitt.
Veislunni lauk svo með því að
splunkuný útigrill voru formlega
afhent bæjarbúum af Kvenfélaginu
Brynju og fjórum vöskum piltum
sem í sameiningu gerðu þennan
draum að veruleika, ýmist með
aurum eða högum höndum. Á Flat
eyri taka allir bæjarbúar þátt,
með einum eða öðrum
hætti. Þegar nálgaðist
miðnætti var tendr
aður lítill varðeldur
og við undirleik
Jóa hljómaði
söngurinn
svo undirtók
í fjöllunum.
Dagskránni
var svo lokað
á Vagninum
þar sem þeir
Ari og Birgir
sungu og
spiluðu fyrir
gesti.
Gaman saman Þorbjörg sigþórsdóttir
og Hulda maría Guðjónsdóttir skemmtu sér
vel á Götuveislunni.
BæjarBúar taka Þátt Vel
var mætt á Götuveisluna, en á
Flateyri búa um 130 manns.
Glatt á Hjalla Þétt setið í sumarsólinni
og glatt á hjalla.
Börnin skemmta sér Bæjarhátíðir eru ekki síst fyrir börnin, sem hér hoppa og leika sér.
tilÞrif Þessi ungi
maður sýnir tilþrif í
vatnsfjörinu.
HláturjóGa Guðrún
jónsdóttir bauð upp á
hláturjóga í Minningar-
garðinum.
furðuverur á
ferð Bæjarbúar
klæddu sig í alls konar
búninga fyrir hlaupið.