Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 69

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 69
sakamál 29Helgarblað 30. júní 2017 Í Mexíkóborg fæddist, árið 1915, sveinbarn sem fékk nafnið Gregorio Cárdenas Hernández. Gregorio, sem fékk síðar gælu­ nafnið Goyo, sýktist af heilabólgu í bernsku og talið er að það hafi átt sinn þátt í undarlegri hegðun hans á æskuárum, sem meðal annars birtist í grimmd gegn dýrum. Nú, hvað sem því líður þá fékk Goyo styrk frá Petróleos Mexi­ canos, PEMEX, ríkisolíufyrirtæki, til að stunda nám í efnafræði við Nacional Autónoma­háskólann í Mexíkóborg. Fjögur morð Segir fátt af högum Goyo þar til í ágúst árið 1942 þegar hann, í ágúst og september, tók upp á því, ein­ hverra hluta vegna, að myrða konur. Þegar þar var komið sögu bjó Goyo í Tabuca­hverfinu í norðvestur hluta Mexíkóborgar og þann 15. ágúst fékk hann í heim­ sókn sextán ára vændiskonu, Maríu de los Ángeles González. Að samförum þeirra loknum kyrkti Goyo hana og gróf líkið í garði sínum. Á næstu vikum myrti Goyo tvær vændiskonur til viðbót­ ar; Rosu Reyes og Raquel Martínez de León, sem báðar voru sextán ára. Að lokum myrti hann nítján ára skólasystur sína, Gracielu Ara Áva­ los. Öll fórnarlömb sín gróf Goyo í garði sínum. Handtaka og flótti Vafstur Goyo í garðinum vakti að lokum grunsemdir nágranna hans sem höfðu samband við lögregluna, en áður en hún hófst handa við uppgröft í garðinum innritaði Goyo sig sjálfur á geð­ sjúkrahús. Hann var handtekinn 7. sept­ ember 1942 og settur á bak við lás og slá í Lecumberri­fangelsinu, sem ku hafa verið nokkuð illræmt tukthús. Við réttarhöldin játaði Goyo sekt sína og fékk lífstíðardóm fyrir vikið. Þetta sama ár tókst honum að flýja úr fangelsinu og fór til Oaxaca, en lögreglan náði í skottið á honum skömmu síðar. Frægð og frami Goyo naut þess vafasama heiðurs að verða fyrstur fjöldamorðingja Mexíkó til að fá mikla umfjöllun í fjölmiðlum landsins. Næstu árin varð vart nokkurra hermikráka sem líktu eftir morðunum sem hann framdi og klámmynd, sem byggði á sögu hans, var gerð. Sjálfur dundaði Goyo við bókar skrif og lauk meðal annars við þrjár bækur í prísundinni. Einnig var hann iðulega spurð­ ur spjörunum úr af sál­ og glæpa­ fræðingum. Goyo sat ekki auðum höndum því auk þess að fást við skrif lærði hann einnig að leika á píanó, kvæntist og eignaðist fjögur börn með eiginkonu sinni. Náðun og lögfræði Luis Echeverría, þáverandi forseti Mexíkó, sá aumur á Goyo árið 1976 og náðaði hann. Goyo var boðið að halda tölu á löggjafarþingi Mexíkó og var nánast hylltur sem hetja væri. Honum var hampað sem „frábæru dæmi“ og „skýru tilfelli velheppn­ aðrar endurhæfingar.“ Goyo lærði lögfræði og starfaði sem slíkur til dauðadags árið 1999. n n Ungur að árum myrti Goyo fjórar konur n Varð að lokum lögfræðingur „Næstu árin varð vart nokkurra hermikráka sem líktu eftir morðunum sem hann framdi og klám- mynd, sem byggði á sögu hans, var gerð. Á efri árum Goyo var náðaður og lærði lögfræði. Á yngri árum Goyo fékk lífstíðardóm fyrir ódæði sín. Frá fjöldamorðum til frægðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.