Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Qupperneq 69
sakamál 29Helgarblað 30. júní 2017
Í
Mexíkóborg fæddist, árið 1915,
sveinbarn sem fékk nafnið
Gregorio Cárdenas Hernández.
Gregorio, sem fékk síðar gælu
nafnið Goyo, sýktist af heilabólgu í
bernsku og talið er að það hafi átt
sinn þátt í undarlegri hegðun hans
á æskuárum, sem meðal annars
birtist í grimmd gegn dýrum.
Nú, hvað sem því líður þá fékk
Goyo styrk frá Petróleos Mexi
canos, PEMEX, ríkisolíufyrirtæki,
til að stunda nám í efnafræði við
Nacional Autónomaháskólann í
Mexíkóborg.
Fjögur morð
Segir fátt af högum Goyo þar til í
ágúst árið 1942 þegar hann, í ágúst
og september, tók upp á því, ein
hverra hluta vegna, að myrða
konur. Þegar þar var komið sögu
bjó Goyo í Tabucahverfinu í
norðvestur hluta Mexíkóborgar og
þann 15. ágúst fékk hann í heim
sókn sextán ára vændiskonu,
Maríu de los Ángeles González.
Að samförum þeirra loknum
kyrkti Goyo hana og gróf líkið í
garði sínum. Á næstu vikum myrti
Goyo tvær vændiskonur til viðbót
ar; Rosu Reyes og Raquel Martínez
de León, sem báðar voru sextán
ára.
Að lokum myrti hann nítján ára
skólasystur sína, Gracielu Ara Áva
los. Öll fórnarlömb sín gróf Goyo í
garði sínum.
Handtaka og flótti
Vafstur Goyo í garðinum vakti
að lokum grunsemdir nágranna
hans sem höfðu samband við
lögregluna, en áður en hún hófst
handa við uppgröft í garðinum
innritaði Goyo sig sjálfur á geð
sjúkrahús.
Hann var handtekinn 7. sept
ember 1942 og settur á bak við lás
og slá í Lecumberrifangelsinu,
sem ku hafa verið nokkuð illræmt
tukthús.
Við réttarhöldin játaði Goyo
sekt sína og fékk lífstíðardóm fyrir
vikið. Þetta sama ár tókst honum
að flýja úr fangelsinu og fór til
Oaxaca, en lögreglan náði í skottið
á honum skömmu síðar.
Frægð og frami
Goyo naut þess vafasama heiðurs
að verða fyrstur fjöldamorðingja
Mexíkó til að fá mikla umfjöllun í
fjölmiðlum landsins. Næstu árin
varð vart nokkurra hermikráka
sem líktu eftir morðunum sem
hann framdi og klámmynd, sem
byggði á sögu hans, var gerð.
Sjálfur dundaði Goyo við
bókar skrif og lauk meðal annars
við þrjár bækur í prísundinni.
Einnig var hann iðulega spurð
ur spjörunum úr af sál og glæpa
fræðingum. Goyo sat ekki auðum
höndum því auk þess að fást við
skrif lærði hann einnig að leika á
píanó, kvæntist og eignaðist fjögur
börn með eiginkonu sinni.
Náðun og lögfræði
Luis Echeverría, þáverandi forseti
Mexíkó, sá aumur á Goyo árið 1976
og náðaði hann. Goyo var boðið að
halda tölu á löggjafarþingi Mexíkó
og var nánast hylltur sem hetja væri.
Honum var hampað sem „frábæru
dæmi“ og „skýru tilfelli velheppn
aðrar endurhæfingar.“
Goyo lærði lögfræði og starfaði
sem slíkur til dauðadags árið 1999. n
n Ungur að árum myrti Goyo fjórar konur n Varð að lokum lögfræðingur
„Næstu árin varð vart nokkurra
hermikráka sem líktu eftir
morðunum sem hann framdi og klám-
mynd, sem byggði á sögu hans, var
gerð.
Á efri árum Goyo var náðaður og lærði lögfræði.
Á yngri árum Goyo fékk lífstíðardóm fyrir
ódæði sín.
Frá fjöldamorðum
til frægðar