Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Síða 71

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Síða 71
menning 31Helgarblað 30. júní 2017 ópersónulegan og ósálrænan hátt og mögulegt er. Hver ein og ein- asta nóta sem er sungin er þannig teiknuð nákvæmlega inn í tölv- una fyrirfram. Við notum „auto- tjúnið“ að hluta til vegna þess að við kunnum ekkert að syngja, en svo hefur þetta orðið að hálf- gerðu vörumerki. Okkur finnst líka skemmtilegt hvað þetta verð- ur mikið „in-your- face“ og nánast hálfpirrandi þegar maður hend- ir þessu öllu í svona sálarlausan búning – þetta er það gerir tón- listina að því sem hún er. Í textunum leggjum við okkur svo fram við að nota frekar einfalt orðbragð, umtalsvert einfaldara en við erum færir um, talsmáta sem er þá kannski helst sóttur í svipaða PBR‘n‘B-tónlist. Á sama tíma reynum við að nota stíl- brögð og form til þess að ná fram dýpt í einfaldleikanum. Við notum endurtekningar og andstæður – sem eru einföldustu og meðfæri- legustu stílbrögð sem hægt er að beita – og svo reynum við að skapa andrúmsloft til að mynda hljóð- og hugarheim, ákveðið ástand, þetta níhílíska „teenage angst“ ástand. Þá getur fólk sótt í dýptina ef það hefur áhuga en getur líka bara hlustað á einfalt popplag þar sem einhver er að syngja: „mér líð- ur illa.“ Kynlíf og vímuefni Eins og undirtitill nýju plötunnar gefur til kynna er kynlíf og dóp mjög áberandi í tónlistinni ykkar. Hvað er það sem gerir þetta að svona frjóum viðfangsefnum? „Hlutirnir verða ekki mikið mannlegri en að éta og ríða. Þýski heimspekingurinn Leibniz vildi meina að hugmyndir og tilfinn- ingar væru búnar til úr ákveðnu stafrófi frumtilfinninga og hug- mynda, og úr þessum stöfum mynduðum við svo orð og setn- ingar. Mér finnst eins og viljinn hljóti að vera fyrsti stafurinn í þessu stafrófi eða kannski er hún frekar eins og sérhljóði, þar sem þú getur ekki myndað orð án þess að hafa sérhljóða. Kynlíf og fíkni- efnaneysla snertir á þessum rosa- lega mennska grunni, þú verður ekki mikið meiri manneskja en einmitt þegar þú ríður eða drekkur. Af því að þessi viðfangsefni snerta á þessum grunni er líka hægt að nota þau afturvirkt; sem líkingar fyrir hversdagslegra amstur.“ Það er mikil áhersla á breysk- leika, þroskaleysi, innri djöfla, og jafnvel mannvonsku sem er sett fram á berskjaldaðan og jafn- vel sjálfsásakandi hátt í textunum ykkar. Af hverju eru þetta tilfinn- ingar sem ykkur langar að vinna með í tónlistinni? „Það er ennþá gífurlega áber- andi í vinsælli tónlist í dag að menn séu bara algjörar tertur og komi með alveg óraunveruleg við- fangsefni. Við viljum ekki einfalda hlutina í textunum, við viljum hafa þá jafn óskiljanlega og þeir í raun eru. Við erum aðeins að reyna að leita út fyrir þetta hefðbundna form og tala um alls konar hluti – líka það sem er ekki skemmti- legt. Það sem við erum að tala um er viljinn til að éta og ríða, og svo græðgin og grimmdin sem því fylgir. Illgirnin er hlið á mann- eskjunni sem lítið er fjallað um í popptónlist enda er ekkert töff að hafa tilhneigingu til órökstuddrar reiði, öfundsýki eða fíknar. En einmitt af því að svo fáir tileinka sér þessi viðfangsefni þá tengir fólk við það þegar maður syngur um þau.“ The Weeknd, Newsom og Þórbergur Sækið þið innblástur til einhverra tiltekinna listamanna? „Hljóðheimurinn kemur úr þessari PBR‘n‘B-senu, frá lista- mönnum eins og How To Dress Well, Dvsn, Majid Jordan og The Weeknd áður en hann varð ömur- legur. Við erum líka miklir Portis- head-menn. Svo kemur annað inn sem er sótt í listamenn eins Sufj- an Stevens og Joanna Newsom sem vinna að því að skapa stór konseptverk. Konseptverkin hennar Newsom eru helsta fyrir- myndin hjá okkur. Svo eru það kannski ekki síður bókmenntir sem veita okkur innblástur. Þegar við vorum að semja Kuldinn er fínn var ég mikið að lesa Þórberg Þórðarson og Halldór Laxness, en það eru einmitt höfundar sem kunnu mjög vel að notast við ein- falt orðbragð. Við sóttum til dæm- is mjög mikið af táknmyndum í Sálminn um blómið eftir Þórberg – draugarnir og allt þetta.“ Allar fjórar plöturnar ykkar eru sjö laga EP-plötur sem hafa bara komið út á netinu. Er netið og stuttskífan búin að taka við af hefðbundna plötuforminu? „Nei, ekki alveg, en menn þurfa ekki lengur að vera að binda sig við neitt plötuform og eiga raun- ar ekkert að vera að gera plötur ef þeir ætla ekki að vera með ein- hvern rauðan þráð eða binda þær saman á einhvern hátt. Ef við hefðum ekki hugsað þetta sem heildstætt verk hefðum við bara kastað lögunum út á netið einu og einu. Plötuformið er fullkomlega óþarft í dag en getur verið ágætis rammi. Ég býst raunar við að við munum ekki gera aðra sjö laga plötu næst heldur reyna að púsla saman meira „full-length“-dæmi, 40 til 50 mínútum.“ Hingað til hafið þið bara gefið út á Spotify. Kemur að efnislegri útgáfu einhvern tímann, eða finnst ykkur bara nóg að gefa út á netinu? „Mér finnst algjör óþarfi að smærri hljómsveitir eins og við séum að prenta út einhverja geisladiska sem seljast varla, og maður þarf að eyða tíma í að ganga á eftir fólki og reyna að selja. Með svona fáa en trygga aðdáend- ur eins og við höfum væri kannski hægt að henda í vínyl í takmörk- uðu upplagi sem myndi þá rjúka út – en ég myndi ekki nenna að eyða tíma í þetta annars.“ Nöfnin bæta engu við tónlistina Ólíkt mörgum rapptónlistar- mönnum í dag hefur Kef Lavík ekki verið dugleg við að spila á tónleikum. Þeir léku í fyrsta skipti opinberlega í desember síðast- liðnum og hafa síðan þá spilað á örfáum menntaskólaböllum og tónleikum. „Við stefnum á að halda áfram að spila nokkuð reglulega næstu tvö árin eða þangað til ég er bú- inn með bachelor-gráðuna mína. En við nennum ekki að vera eltast við þetta, nennum ekki að vera að sækja um að fá að spila hér og þar og fá einhvern 30 þúsund kall fyrir skiptið. Við gerum þetta ekki af neinni peningaþörf – þótt það sé alltaf fínt að fá smá „slots- money“ fyrir tónleikana.“ Þannig að þið stefnið ekki á að lifa af listinni? „Nei, ég stefni á að verða fjár- málaverkfræðingur og kollegi minn á að verða kokkur.“ Og fá vinnu hjá GAMMA? „Ég stefni á tæknilegri sjóði eins og er, með það sem er kallað „quantitative“ strategíur. Því stefni ég ekki á GAMMA, og ólíklega á ís- lenskan markað, nema hann taki miklum breytingum.“ Tengist nafnleysið þá kannski þessum framtíðarplönum á ein- hvern hátt? „Eins og þetta blasir við mér þá munu nöfn okkar ekki bæta neinu við tónlistina og sjálfur ætla ég ekkert að lifa sem tónlistar- maður. Það að hafa nöfnin okk- ar þarna gagnast því hvorki okk- ur né hlustendunum. Við setjum samt alveg myndir af okkur inn á netið og svona, við erum ekk- ert að fela okkur, þannig að ef fólk langar þá getur það alveg fundið okkur – en það græðir bara ekkert mikið á því.“ n Byssur, dóp og kynlíf Plötuumslagið fyrir nýjustu stuttskífu Kef Lavík er hannað af Almari S. Atlasyni, sem er betur þekktur sem „Almar í kassanum.“ „Það að hafa nöfnin okkar þarna gagnast því hvorki okkur né hlustendunum Skapari Paddington er látinn Michael Bond skrifaði 26 bækur um marmelaði-elskandi björninn Paddington B reski rithöfundurinn Michael Bond, höf- undur hinna vinsælu barnabóka um bangs- ann Paddington, er látinn 91 árs að aldri. Hann lést á þriðju- dag heimili sínu í námunda við Paddington-lestarstöðina í London eftir stutt veikindi. Fyrsta bókin um marmelaði- elskandi bangsann frá Perú, A Bear Called Paddington, kom út árið 1958, en hugmyndina fékk Bond þegar hann rak aug- un í leikfangabjörn í búðar- glugga við Paddington-stöðina á leið sinni heim úr vinnunni. Bond hélt áfram að skrifa sögur um Paddington allt til dauðadags en sú tuttug- asta og sjötta, Paddington's Finest Hour, var gefin út í apr- íl á þessu ári. Bækurnar um Paddington hafa selst í meira en 35 milljónum eintaka, kom- ið út á meira en 40 tungumál- um og hefur verið breytt í leik- rit, sjónvarpsþætti og nú síðast kvikmyndina Paddington sem naut mikilla vinsælda þegar hún kom út árið 2014. Á rithöfundarferlinum skrifaði Bond fjölda annarra verka, bæði fyrir börn og full- orðna. Fjölmargir hafa vottað Bond virðingu sína eftir að fréttir af andláti hans bárust. Stephen Fry minntist hans til að mynda á Twitter-síðu sinni: „Mér þyk- ir leitt að heyra að Michael Bond sé farinn frá okkur. Eins og björninn Paddington sem hann gaf okkur var hann ljúf- menni, virðulegur, heillandi og elskulegur.“ Of lítið sungið um illgirni í popptónlist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.