Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Page 79

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Page 79
Helgarblað 30. júní 2017 KYNNING Okkar hlutverk er þjónusta við fólk sem er að kaupa bíl að utan. Kaupsamningurinn við erlenda bílasölu er á nafni bílkaupandans en við sjáum um alla pappírsvinnuna og innflutninginn. Eimskip flytur bílinn og hann er tryggður alla leið,“ segir Brynjar Valdi- marsson hjá fyrirtækinu Betri bílakaupum. Þessi aðferð við bílakaup tryggir kaupendum hagstæðara verð en áður hefur þekkst: „Við erum ódýr- astir, það er svo einfalt,“ segir Brynjar ákveðinn. Betri bílakaup hafa ver- ið til húsa að Ármúla 4 um nokkurt skeið en fyrirtækið opnar föstudaginn 30. júní nýtt útibú í Firði í Hafnarfirði til að mæta vaxandi eftir- spurn. Nýja útibúið er á 2. hæð í Firði og umsjónarmenn þar eru Andri Fannar Helga- son, Gestur Hermannsson og Grétar G. Hagalín. Að sögn Brynjars er kaupferlið hjá Betri bílakaupum mjög gegnsætt og þægilegt: „Segj- um að þú sért væntanlegur kaupandi, þú ert að leita að bíl. Þú segir okkur hvernig bíl þú vilt eignast og við finnum hann fyrir þig. Við semjum um verðið við erlenda bílasalann. Við tök- um fasta þóknun fyrir allar sölur, 249.000 kr. með vsk. Þú millifærir peningana á erlendu bílasöluna. Við erum með samning við Eim- skip sem þú nýtir þér. Þegar þú ert búinn að millifæra sjáum við um allt, flutninginn, skráum bílinn, komum honum á númer og afhendum þér hann hérna uppi í Ármúla 4 eða í Firði í Hafnarfirði.“ Gott úrval, hagstætt verð og mikil gæði eru það sem viðskiptavinir Betri bílakaupa uppskera. Mikil áhersla er á svokallaða græna bíla og segir Brynjar þá vera um 90% af þeim bílum sem viðskiptavinir kaupa í gegn- um fyrirtækið. Er þá ýmist um að ræða rafbíla og blendingsbíla (hybrid = bensín+rafmagn). Nánari upplýsingar eru á vefnum betribila- kaup.is. Fyrirspurnum er einnig svarað í síma 511-2777. Hér á síðunni má sjá fjögur dæmi um glæsi- lega bíla á frábæru verði sem keyptir eru í gegnum Betri bílakaup. Gæðabílar beint frá Evrópu og Ameríku - „Við erum ódýrastir“ BEtrI BílAKAup opNA Nýtt útIBú í HAFNArFIrðI Volvo XC90 t8 Inscription 2016. 7.990.000 kr. VW Golf GtE 2017. Frá 3.450.000 kr. Nissan leaf S 2015. Frá 1.690.000 kr. Mitsubishi outlander pHEV Nýr 2017 Frá 3.890.000 kr. Aftengjanlegur dráttarkrókur frá 78þ. kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.