Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 80
Helgarblað 30. júní 2017
42. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 1.095 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
9 771021 825033
ISSN 1021-8254
25%
REIÐHJÓL
25%
GARÐHÚS-
GÖGN
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LAND
20%
SMÁRAFTÆKI 25%
TIMBURBLÓMA-
KASSAR
35%
REIÐHJÓLAFYLGIHLUTIR
20-40%
KEÐJUSAGIR40%
FRÆ
30%
HEKKKLIPPUR,
HEKKSNYRTAR
& LAUFSUGUR30-40%
VERKFÆRABOX
20%
FERÐAVARA
30-40%
NAPOLEON GRILL-
FYLGIHLUTIR
35%
PLASTBOX
30%
JÁRNHILLUR
20-40%
SLÁTTUVÉLAR
35%
LEIKFÖNG
Skoðaðu öll
tilboðin á
byko.is
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
eð
a m
yn
da
br
en
gl.
30%
ALLT GJÖCO
Gerðu
frábær
kaup!
Þetta verður
ráðabrugg!
Costco herðir
reglurnar
n Nú fer hver að verða síð-
astur að mæta í myndatöku
fyrir Costco-aðildarkortið sitt
áður en raðirnar ná út í IKEA.
Frá og með 1. júlí verður þeim
meðlimum sem ekki eru með
andlitsmynd á kortinu meinað-
ur aðgangur að versluninni og
viðskiptavinum bent á að fara á
þjónustuborðið þar sem mynd-
irnar eru teknar. Þá hefur það
fyrirkomulag verið í Costco síð-
ustu daga að þeim sem framvísa
aðildarkorti án myndar við kass-
ann er fylgt af yfirmanni á þjón-
ustuborðið, eftir að viðkomandi
er búinn að greiða fyrir vörurn-
ar, þar sem myndir eru teknar.
Nördaverðlaun
Reykjavíkurborgar
n Margir hafa yndi af spurn-
ingakeppnum, bæði að fylgjast
með slíkum keppnum og einnig
að taka þátt í þeim. Miklar og
langvarandi vinsældir Gettu
betur og Útsvars sýna þetta
glöggt en einnig mikil þátttaka
í knæpuspurningakeppnum,
pöbb-kviss eins og þær hafa ver-
ið nefndar upp úr enskunni. Þá
mæta bjórþyrstir áhugamenn á
knæpur og svara spurningum
með fram ölþambinu. Hitt er
þó líklega sjaldgæfara að tek-
ist sé á í slíkum keppnum milli
fjölbýlis húsa en það gerðist þó
í vikunni þegar íbúar fjölbýl-
ishúsa við Eskihlíð öttu kappi á
hverfisbarnum Bus Hostel. Skýr-
inganna kann að vera að leita í
því að í annarri þessara blokka
sem um var að ræða er búsettur
Stefán Pálsson, sagnfræðing-
ur og alræmdur spurninganörd.
Stefán spurði enda á Facebook-
síðu sinni, vel meðvitaður um
skringileika
keppninnar:
„Hvert sækj-
um við nör-
daverðlaun
Reykja-
víkur-
borgar?“
„Okkar leið til að gera
eitthvað í málunum“
V
ið vildum skapa ný störf og
kunnáttu á svæðinu. Eitt-
hvað annað en sauðfé og
þorsk.“ Þetta segir bruggar-
inn og tannlæknirinn Daði Hrafn-
kelsson en hann, ásamt Elís Pétri
Elíssyni, opnaði nýverið brugg-
húsið Beljanda á Breiðdalsvík.
Hugmyndin að brugghúsinu varð
til í spjalli þegar þeir félagar voru
saman á hreindýraveiðum austur
á fjörðum, fyrir um einu og hálfu
ári. „Við Elís komumst að því að
við vorum báðir með sömu hug-
myndina. Við vorum svo samstíga
í hugsun um hvernig ætti að út-
færa þetta svo við gátum ekki ann-
að en slegið til. Við vorum meira
að segja báðir með sama nafnið á
brugghúsinu í huga,“ segir Daði.
Eftir samtalið örlagaríka upp-
hófst mikil vinna en brugghúsið
var opnað fyrir gesti og gangandi
þann 17. júní síðastliðinn. „Við
vorum báðir komnir með nóg
af atvinnuleysi, aðgerðaleysi og
áhugaleysi á Breiðdalsvík svo það
má segja að þetta hafi verið okk-
ar leið til að gera eitthvað í málun-
um.“
Beljandi brugghús er til húsa í
gömlu sláturhúsi á Breiðdalsvík,
sem var gert upp í samræmi við
starfsemina. Bruggtækin voru svo
keypt frá Danmörku þar sem Daði
er er búsettur. „Þetta er auðvitað
búin að vera gríðarleg vinna en svo
sannarlega þess virði. Móttökurn-
ar hafa nú þegar verið gríðarlega
góðar. Ekki síður meðal heima-
manna en ferðamanna á svæðinu.
Enda er bjórinn hugsaður fyrir Ís-
lendinga og gesti þeirra.“ n
kristin@dv.is
Gripu til sinna ráða og opnuðu brugghús á Breiðdalsvík
Brugghúsið Beljandi á Breiðdalsvík Hefur nú þegar skapað ný störf.