Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 22
22 umræða Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. aðalnúmer: 512 7000 auglýsingar: 512 7050 ritstjórn: 512 7010 fréttaskot 512 70 70 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Sandkorn Helgarblað 25. ágúst 2017 Ekkert gullúr Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar­ flokksins, er sem kunnugt er gengin úr flokknum og hyggst starfa sem óháður borgarfull­ trúi út kjörtímabilið. Svo virðist sem samflokksfólk hennar gráti brotthvarfið þurrum tárum. For­ maður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, sagði í fjölmiðlum að brotthvarf hennar væri rök­ rétt í ljósi þeirrar orðræðu sem hún hefði haldið á lofti varðandi hælisleitendur og íslam. Sú orð­ ræða hefði ekki verið í samræmi við stefnu flokksins. Sveinbjörg Birna þarf því hvorki að búast við gullúri né tertu. Óvænt ánægja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ráðherra ríkisstjórnarinnar, var hin ánægðasta með meirihlutann í borginni í viðtali við Útvarp Sögu. Hún hrósaði Degi B. Egg- ertssyni borgarstjóra alveg sér­ staklega. Mörgum þótti þessi ánægja koma úr óvæntri átt. Menn velta því fyrir sér hvort Við­ reisn ætli að blanda sér í borgar­ stjórnarkosningarnar á næsta ári með það markmið í huga að fara í meirihluta með Samfylkingunni. Allavega er ljóst að þangað horf­ ir Þorgerður Katrín með vel­ þóknun. Björt framtíð þegir Það var ekki bjart yfir Bjartri framtíð skömmu fyrir síðustu kosningar, fylgi í algjöru lágmarki og veruleg hætta á að flokkurinn myndi þurrkast út af Alþingi. Eitt varð þeim fyrst og fremst til bjargar, andstaða við bú­ vörusamninga ríkis og bænda, sem þrátt fyrir allt voru gerðir og staðfestir. Nú er dökkt útlit í sauð­ fjárræktinni og ljóst að bændur verða fyrir verulegum tekjumissi. Ráðherrar samstarfsflokksins í Viðreisn hafa orðað að taka þurfi upp búvörusamninga vegna þessa. Bjarni Benediktsson, for­ sætisráðherra og sterki maðurinn í ríkisstjórninni, kom hins vegar fram á dögunum og sagði ekkert slíkt koma til greina, samningarn­ ir stæðu. Ekki hefur hins vegar heyrst múkk frá Bjartri framtíð í málinu og virðast flokksmenn ætla að láta ákvörðun Bjarna yfir sig ganga óátalið. Barátta í nafni íslenskunnar Þ að gengur ekki þrautalaust fyrir sig að viðhalda ís­ lenskunni í samfélagi sem of oft virðist taka enskuna fram yfir okkar ástkæra ylhýra mál. Sem dæmi má nefna að hver sá sem gengur hina vinsælu götu Laugaveginn í 101 Reykja­ vík sér enskan texta á auglýsinga­ spjöldum í jafnmiklum mæli og íslenskuna og stundum er tunga Shakespeare þar meira áberandi. Íslendingar vilja laða að ferða­ menn og þess vegna þarf að höfða til þeirra á tungumáli sem flestallir skilja. Því þarf íslenskan að víkja. Unga kynslóðin er háð tólum og tækjum þar sem enskan er við völd og eldri kynslóðin er nánast í sömu stöðu, orðin að þræl sím­ ans. Einhver myndi kannski finna huggun í þeirri staðreynd að þjóðin á enn bækur sínar á ís­ lensku og engin uppgjöf er með­ al rithöfunda landsins, en á móti kemur að bóklestur er á undan­ haldi. Bókaþjóðin virðist einfald­ lega ekki lengur ætla að standa undir nafni. Staðan er sem sagt ekki jafn glæsileg og unnendur íslensk­ unnar þrá. Það er samt engin ástæða til annars en að halda áfram að berjast og þannig má ná vissum árangri. Það gerð­ ist á dögunum þegar íslensku­ fræðingurinn Eiríkur Rögnvalds­ son steig fram og talaði röggsamlega máli íslenskunnar, eins og hann gerir svo vel. Stundum er það svo í samfé­ lagi okkar að litlu málin verða að stórmáli og rata í fréttir sem vekja almenna athygli. Á dögunum var risastórum H&M­poka með ensk­ um texta stillt upp á Lækjartorgi með þeim afleiðingum að hroll­ ur fór um smekkvísa vegfarend­ ur. Eiríkur sá ekki ástæðu til að þegja heldur sagði: „Enskan flæð­ ir alls staðar yfir án þess að nokk­ ur geri nokkuð í því og það veikir varnir íslenskunnar.“ Hann benti jafnframt á að Reykjavíkurborg væri að brjóta lög með því að leyfa að risapokanum væri stillt þarna upp. Viðbrögð borgarinnar voru til fyrirmyndar, þar sáu menn snarlega að sér. Skiltið var fjarlægt og því komið fyrir á öðrum stað, fjarri miðborginni. Enskunni var því reyndar ekki úthýst heldur vís­ að annað, í Smáralindina. Blessunarlega er ekki rétt hjá Eiríki Rögnvaldssyni að enginn bregðist við flóðbylgju ensk­ unnar. Það finnast sannarlega einstaklingar sem láta sig málið miklu varða. Eiríkur er einn af þeim og á skildar miklar þakkir. Við ættum að fylgja honum, því auðvitað getum við ekki horft aðgerðarlaus á hnignun íslensk­ unnar. Við hljótum að berjast í nafni íslenskunnar. Enginn ætlast til að allir landsmenn tali gullaldaríslensku. Tungumál eiga að þróast og taka einhverj­ um breytingum og engin ástæða er til að amast við tökuorðum úr öðrum tungumálum. En staðan er orðin ansi dapurleg þegar Íslendingum er jafnvel orðið tamara að tala og hugsa á ensku en á sínu eigin tungumáli. n Myndin Við Klambratúnið Ung snót notar blíðuna í höfuðborginni til að framkvæma úttekt á handbragði iðnaðarmanna. Maður heyrir dýraríkið þagna, öll náttúran bregst við Þetta er reyndar kjóll og dáldið stuttur í þokkabót Ég vil vinna þær allar Annie Mist Þórisdóttir – DV Sævar Helgi Bragason um almyrkva. – visir.isKolbrún Benediktsdóttir – dv.is „Auðvitað getum við ekki horft að- gerðarlaus á hnignun ís- lenskunnar. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.