Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 33
25. ágúst 2017 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Sigurvin Ólafsson / sigurvin@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Ljósanótt 2017 GeorG V. HannaH – úr oG skartGripir Georg V. Hannah er eitt elsta fyrirtæki keflavíkur en þessi úra- og skartgripaverslun var stofnuð árið 1968 og er staðsett að Hafnar- götu 49 í keflavík. Georg V. Hannah er úrsmiður og lét nýlega af störfum, en sonur hans, gullsmiður- inn eggert Hannah, hefur tekið við rekstrinum. Georg V. Hannah býður meðal annars upp á frábært úrval af erlendum gæðaúrum á stóru verðbili og íslenska skartgripahönnun þar sem fágaður stíll eggerts nýtur sín. „Foreldrar mínir eru nýhættir og ég er nýbúinn að kaupa reksturinn. pabbi er úrsmiður og ég er gullsmiður. Það passar mjög vel saman að hafa hvort tveggja. Ég einbeiti mér núna að úrum og skartgripum en er búinn að losa mig við gjafavör- una sem ég var með. Það er betra fyrir mig að einbeita mér að aðeins minna fyr- irtæki,“ segir eggert. eggert leggur sífellt meiri áherslu á eigin hönnun en hann hannar mjög fjölbreytta skartgripi, stundum út frá eigin grunn- hugmynd- um og stundum í samvinnu við viðskiptavini þar sem hann útfærir þeirra hugmyndir og óskir. „Það er alltaf að aukast eftirspurn eftir hand- smíðuðu og ég kappkosta að uppfylla hana. innfluttar vörur eru enn í meirihluta í versluninni en handsmíðaðir gripir sækja sífellt á.“ Mikið úrval er af fallegum úrum í versluninni undir gæða- merkjum, t.d. tissot, raymond Weil, Hugo Boss, Daniel Wellington og orient. einnig er hægt að fá úrin frá Js Watch reykjavík í versluninni, en þau eru íslensk hönnun og sett saman á Íslandi. eggert er líka með öfluga viðgerðar- þjónustu á staðnum. Hann hefur boðið upp á hand- smíðaða skartgripi í yfir 20 ár og státar af mikilli reynslu, þekkingu og færni. Meðal annars hand- grefur hann og setur í steina fyrir aðra gullsmiði og heldur árlega námskeið í handáletr- un í Danmörku fyrir þarlenda gullsmiði. Ávallt er mikið að gera hjá Georg V. Hannah á Ljósanótt og oft fullt út úr dyrum. sem fyrr segir er verslunin staðsett að Hafnargötu 49 í keflavík og opið verður frá morgni og langt fram á kvöld allan Ljósanætur tímann. Fólk vill hand- smíðaða skartgripi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.