Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Síða 33
25. ágúst 2017
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Sigurvin Ólafsson / sigurvin@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Ljósanótt 2017
GeorG V. HannaH – úr oG skartGripir
Georg V. Hannah er eitt elsta
fyrirtæki keflavíkur
en þessi úra- og
skartgripaverslun var
stofnuð árið 1968 og
er staðsett að Hafnar-
götu 49 í keflavík. Georg
V. Hannah er úrsmiður og
lét nýlega af störfum, en
sonur hans, gullsmiður-
inn eggert Hannah, hefur
tekið við rekstrinum. Georg
V. Hannah býður meðal
annars upp á frábært úrval
af erlendum gæðaúrum á
stóru verðbili og íslenska
skartgripahönnun þar sem
fágaður stíll eggerts nýtur
sín.
„Foreldrar mínir eru
nýhættir og ég er nýbúinn að
kaupa reksturinn.
pabbi er úrsmiður
og ég er gullsmiður.
Það passar mjög vel
saman að hafa hvort
tveggja. Ég einbeiti
mér núna að úrum
og skartgripum en
er búinn að losa
mig við gjafavör-
una sem ég var
með. Það er betra
fyrir mig að einbeita
mér að aðeins minna fyr-
irtæki,“ segir eggert. eggert
leggur sífellt meiri áherslu á
eigin hönnun en hann hannar
mjög fjölbreytta skartgripi,
stundum út frá eigin grunn-
hugmynd-
um og
stundum í
samvinnu við
viðskiptavini
þar sem hann
útfærir þeirra
hugmyndir og
óskir. „Það
er alltaf
að aukast
eftirspurn
eftir hand-
smíðuðu
og ég
kappkosta að
uppfylla hana.
innfluttar vörur eru
enn í meirihluta í versluninni
en handsmíðaðir gripir sækja
sífellt á.“
Mikið úrval er af
fallegum úrum
í versluninni
undir gæða-
merkjum, t.d.
tissot, raymond
Weil, Hugo
Boss, Daniel
Wellington og
orient. einnig
er hægt að
fá úrin frá Js
Watch reykjavík í versluninni,
en þau eru íslensk hönnun og
sett saman á Íslandi.
eggert er líka
með öfluga
viðgerðar-
þjónustu á
staðnum.
Hann hefur
boðið upp
á hand-
smíðaða
skartgripi
í yfir 20 ár
og státar af
mikilli reynslu, þekkingu og
færni. Meðal annars hand-
grefur hann og setur í steina
fyrir aðra gullsmiði og heldur
árlega námskeið í handáletr-
un í Danmörku fyrir þarlenda
gullsmiði.
Ávallt er mikið að gera hjá
Georg V. Hannah á Ljósanótt
og oft fullt út úr dyrum. sem
fyrr segir er verslunin staðsett
að Hafnargötu 49 í keflavík
og opið verður frá morgni
og langt fram á kvöld allan
Ljósanætur tímann.
Fólk vill hand-
smíðaða skartgripi