Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 34
2 Ljósanótt Helgarblað 25. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ Við fórum í miklar breytingar og endur-bætur á sjoppunni fyrir um einu og hálfu ári, lokuðum í mánuð og byggð- um staðinn í raun upp á nýtt. Við gerðum miðpunktinn í búðinni að ísbúð og núna er þetta orðin ein af helstu ísbúðum landsins og gefur stærstu ísbúðunum í Reykja- vík ekkert eftir. Við erum með 64 tegundir fyrir bragðaref, 18 tegundir af kúluís og fjórar tegundir af ís úr vél,“ segir Valgeir Magnússon hjá Ungó, Hafnargötu 6 í Keflavík. Ísinn í Ungó kemur frá Kjörís og er afar vinsæll. Ungó er fjölskyldufyrirtæki en Valgeir keypti staðinn með foreldrum sínum árið 2004. „Foreldrar mínir eru farnir út úr þessu en ég rek staðinn með eiginkonu minni, Þorgerði Sigurbjörnsdóttur,“ segir Valgeir. Fyrir utan ísinn er Ungó þekkt fyrir úrval af góðum skyndibita, pítsum, hamborgurum og pylsum. Vinnandi fólk í Keflavík sækir sér gjarnan hádegismat í Ungó og nemendur úr fjöl- brautaskólanum streyma þangað núna eftir að skóla- árið byrjaði fyrir skömmu. Valgeir býst við miklum mannfjölda á Ljósanótt sem haldin verður dagana 30. ágúst til 3. september. „Ég hefði ekki getað beðið um betri staðsetningu fyrir hátíðina en við erum beint á móti sviðinu og bergið er beint á móti okkur. Síðan er þetta alltaf að stækka. Há- tíðin nær hámarki á laugar- daginn og þá þurfum við að vera hérna 10 til 15 í af- greiðslu. Veðrið hefur reyndar mikið að segja en í fyrra var sól og blíða og veðurspáin er góð núna,“ segir Valgeir. Ungó er líka þekkt fyrir veglegan nammibar en ólíkt mörgum öðrum stöðum þá er 50% afsláttur á nammi- barnum ekki bara á laugar- dögum heldur alla helgina, föstudag, laugardag og sunnudag. Opnunartími í Ungó er frá 9 á morgnana og til 23 á kvöldin á virkum dögum. Á laugardögum og sunnu- dögum er opið frá 10 og fram til miðnættis en á Ljósanótt verður opið til eitt um nóttina. Ef þú hefur ekki fengið þér ís í Ungó ennþá er kominn tími til að prófa – og gestir Ljósanætur láta ekki ógert að kíkja í Ungó. Ungó, HaFnaRgötU 6, KEFLaVÍK nammibarinn er glæsilegur og það er 50% afsláttur þrjá daga í viku. Valgeir stendur vaktina með sínu fólki á Ljósanótt. Ísinn í Ungó er ekki lítið vinsæll. Ísinn er þungamiðjan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.