Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 34
2 Ljósanótt Helgarblað 25. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ
Við fórum í miklar breytingar og endur-bætur á sjoppunni
fyrir um einu og hálfu ári,
lokuðum í mánuð og byggð-
um staðinn í raun upp á nýtt.
Við gerðum miðpunktinn í
búðinni að ísbúð og núna
er þetta orðin ein af helstu
ísbúðum landsins og gefur
stærstu ísbúðunum í Reykja-
vík ekkert eftir. Við erum með
64 tegundir fyrir bragðaref,
18 tegundir af kúluís og fjórar
tegundir af ís úr vél,“ segir
Valgeir Magnússon hjá Ungó,
Hafnargötu 6 í Keflavík. Ísinn
í Ungó kemur frá Kjörís og er
afar vinsæll.
Ungó er fjölskyldufyrirtæki
en Valgeir keypti staðinn
með foreldrum sínum árið
2004. „Foreldrar mínir eru
farnir út úr þessu en ég rek
staðinn með eiginkonu minni,
Þorgerði Sigurbjörnsdóttur,“
segir Valgeir. Fyrir utan ísinn
er Ungó þekkt fyrir úrval af
góðum skyndibita, pítsum,
hamborgurum og pylsum.
Vinnandi fólk í Keflavík sækir
sér gjarnan hádegismat í
Ungó og nemendur úr fjöl-
brautaskólanum streyma
þangað núna eftir að skóla-
árið byrjaði fyrir skömmu.
Valgeir býst við miklum
mannfjölda á Ljósanótt sem
haldin verður dagana 30.
ágúst til 3. september.
„Ég hefði ekki getað beðið
um betri staðsetningu fyrir
hátíðina en við erum beint
á móti sviðinu og bergið er
beint á móti okkur. Síðan er
þetta alltaf að stækka. Há-
tíðin nær hámarki á laugar-
daginn og þá þurfum við að
vera hérna 10 til 15 í af-
greiðslu. Veðrið hefur reyndar
mikið að segja en í fyrra var
sól og blíða og veðurspáin er
góð núna,“ segir Valgeir.
Ungó er líka þekkt fyrir
veglegan nammibar en ólíkt
mörgum öðrum stöðum þá
er 50% afsláttur á nammi-
barnum ekki bara á laugar-
dögum heldur alla helgina,
föstudag, laugardag og
sunnudag.
Opnunartími í Ungó er
frá 9 á morgnana og til 23
á kvöldin á virkum dögum.
Á laugardögum og sunnu-
dögum er opið frá 10 og fram
til miðnættis en á Ljósanótt
verður opið til eitt um nóttina.
Ef þú hefur ekki fengið þér
ís í Ungó ennþá er kominn
tími til að prófa – og gestir
Ljósanætur láta ekki ógert að
kíkja í Ungó.
Ungó, HaFnaRgötU 6, KEFLaVÍK
nammibarinn er glæsilegur og það
er 50% afsláttur þrjá daga í viku.
Valgeir
stendur
vaktina með
sínu fólki á
Ljósanótt.
Ísinn í Ungó
er ekki lítið
vinsæll.
Ísinn er þungamiðjan