Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 38
6 Ljósanótt Helgarblað 25. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ
Sigurjón Héðinsson hefur verið viðriðin bakarí frá árinu 1976 og hann
hefur rekið Sigurjónsbakarí frá
árinu 1988. Það er til húsa í
Hólmgarði 2c, fyrir ofan mið
bæinn í Keflavík. Þann 17. júní
í sumar opnaði Sigurjón síðan
kaffihús í Hólmgarði og hefur
það gert stormandi lukku.
„Ég var bara með 20
fermetra búð hérna en fór
svo upp í 120 fermetra og
þá var hægt að opna kaffi
hús. Þessu hefur verið tekið
afskaplega vel enda fannst
fólki vanta kaffihús í hverfið
og nú er það komið,“ segir
Sigurjón. Staðurinn er opinn
frá 7 á morgnana til 17.30 á
virkum dögum og um helg
ar frá 8 til 17. „Það er súpa,
brauð og pestó í hádeginu,“
segir Sigurjón þegar hann
er beðinn um að nefna það
sem vinsælast er á kaffihús
inu. Einnig hafa sérhannaðir
kleinuhringir hans, svokallað
ar Héðinsbollur, notið mikilla
vinsælda, en sérstaða þeirra
felst í miðjunni í kleinuhringn
um. „Þetta er framleitt hér frá
grunni eftir minni uppskrift.
Það er allt of mikið um að
bakarar selji innfluttar vörur
en ég legg áherslu á að baka
hér eftir mínum uppskriftum.“
Sigurjón á von á miklum
mannfjölda á Ljósanótt sem
er framundan í Reykjanesbæ
en hún verður haldin frá
30. ágúst til 3. september.
„Við verðum með tvöfaldan
mannskap og gætum þess að
allir komist að. Það er pláss
til að sitja hér fyrir 40 manns
í einu þannig að við erum
vel sett. Við verðum með alls
konar nýjungar, partíbrauð
og snittubrauð og svo verð
ég með alls konar öðruvísi
smurt,“ segir Sigurjón.
Að sögn Sigurjóns er
gestahópur kaffihússins í
Sigurjónsbakaríi mjög fjöl
breyttur og á öllum aldri.
Vinnandi fólk fær sér gjarnan
súpu og brauð í hádeginu og
svo staldra oft við hópar eldri
borgara á gönguferðum og
fá sér kaffi. Þá eru krakkar
úr fjölbrautaskólanum þegar
farnir að venja komur sínar
á kaffihúsið en skólinn er
nýbyrjaður á haustönninni.
Vinnudagur bakara hefst
snemma og Sigurjón þekkir
ekkert annað en að vakna
fyrir allar aldir og halda í
vinnuna. „Við byrjum korter
fyrir fimm og bakararnir
vinna til kl. 14. Kaffihúsið er
síðan opið áfram,“ segir Sig
urjón. Hann segist ekki þurfa
mikinn svefn, 4–5 tímar dugi
honum ágætlega.
Sigurjón viðurkennir að
bakstur sé mikil nákvæmnis
vinna í dag. „Hér áður fyrr,
þegar ég var að byrja í þessu,
þá var slumpað meira. Til
dæmis ein lúka af salti á móti
einni skóflu af deigi. En svo hafa
menn misstórar hendur. Í dag
er allt vigtað nákvæmlega og
ýtrustu gæðakröfur uppfylltar.“
Sigurjón rekur líka öfluga
veisluþjónustu og sinnir jöfn
um höndum brúðkaupsveisl
um, skírnarveislum, afmælum,
erfidrykkjum og hvers konar
öðrum samsætum. Þeim sem
hafa áhuga á að kynna sér
veisluþjónustuna betur er
bent á að hringja í síma 821
525 eða 421 5255.
Kærkomið kaffi-
hús í Hólmgarði
KAffiHúS VAR opnAð Í SiguRjónSbAKARÍi Í SumAR
Ljómandi
huggulegt
kaffihús.