Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Qupperneq 49
fólk - viðtal 25Helgarblað 25. ágúst 2017
maður sem getur gert nánast allt
en þó er hann síst fær í rafmagni.
Það er heimarafstöð heima í
Svartárkoti og rafmagnsfram
leiðslan þar er því stór partur í
búskapnum. Þekking á því var
kannski það sem helst vantaði
upp á en á sama tíma hafði ég
bara mikinn áhuga á rafvirkjun
þannig að þetta fór saman.“
Stóð til að fara aftur heim eftir
nám, í búskapinn? „Ég var nú svo
sem ekki með plan um það, ég
lifði bara í núinu þannig. Hugs
unin var einfaldlega að fara í
skóla og klára nám og finna svo út
úr framhaldinu. Hugmyndin var
síðan að ná í meiri menntun síðar
en það er gjörbreytt núna. Núna
snýst lífið bara um körfuboltann.“
Ætlaðir þú að verða bóndi,
þegar þú varst strákur? „ Auðvitað.
Þetta var það sem ég ólst upp við
og sveitalífið er alveg geggjað
líf, að alast upp í sveit er held ég
besta uppeldi sem hægt er að fá.
Þannig að já, ég ætlaði að verða
bóndi, og svo auðvitað kóngur
og svona sem börn vilja verða,“
segir Tryggvi og jánkar því að vel
kæmi til greina að gerast bóndi
þegar körfuknattleiksferlin
um lýkur.
„Já, sannarlega.
Mig langar að
þéna
þannig á ferlinum að
ég geti tryggt mig fjár
hagslega til framtíð
ar. Sveitalífsstíllinn
er svo góður, frelsið
og að lifa lífinu, það
heillar mjög. En það
er langt inni í fram
tíðinni núna og það
er nú svolítið erfitt að
svara þessu. Ég reyni
að lifa bara í núinu,
ég er að fara út til
Spánar í haust og það
er það sem ég ein
blíni á núna.“
Rataði ekki á fyrstu
æfingu
Tryggvi bjó á
heimavist á Akur
eyri fyrstu tvö árin
sín í framhalds
skóla en bjó síð
an hjá frænku sinni
í bænum. Hann
mætti á sína fyrstu
körfubolta æfingu
í janúar 2014, hjá
Þór á Akur eyri. „Ég
ætlaði mér alltaf
að byrja að stunda
einhverjar íþróttir
þegar ég færi til náms en var svo
sem ekki búinn að ákveða hvað
það ætti að vera. Mig langaði samt
alltaf í körfubolta, ég hafði mestan
áhuga á honum. Ég var hins vegar
að jafna mig af einkirninga
sótt þarna um haustið 2013
og það er ekki gott að hefja
miklar æfingar á slíkum
tímapunkti þannig að ég
frestaði því fram yfir ára
mótin. Fyrsta æfingin
var nú dálítið skraut
leg, satt að segja. Ég
mætti í Hamar, Þórs
heimilið, en þar var
mér sagt að þar væru
engar æfingar enda
er húsið ekki íþrótta
hús. Mér var sagt að
fara upp í Síðuskóla
sem er þarna talsvert
ofar í Þorpinu, en þar
æfði meistaraflokkur.
Ég var auðvitað bara
gangandi á þessum
tíma og gekk upp í
Síðuskóla en þar var
engin æfing. Það
endaði með því að
ég hringdi í Bjarka,
þjálfarann, því
ég vissi ekkert
hvert ég átti að
fara næst. „Þú
sagðir mér að
mæta í hús
ið. Hvaða hús
eiginlega?“
spurði ég. Ég
gekk síðan
út á næstu
bensín
stöð og
þangað kom Bjarki keyrandi og
sótti mig. Strákarnir sögðu mér
að þeir hefðu ekki skilið neitt,
hann hefði bara farið út og kom
ið með þennan stóra strák með
sér til baka, tuttugu mínútum of
seint. Strákarnir urðu mjög hissa
við að sjá mig, svona risastóran
strák ganga í salinn. Ég þekkti
náttúrlega engan en ég kynntist
þeim fljótt.“
Gat ekki neitt
Tryggvi segir að hann hafi ekki
gert neinar rósir á sinni fyrstu
æfingu, með strákum sem sumir
hverjir höfðu æft íþróttina í ára
tug og létu boltann dansa í kring
um hann. „Ég var spenntur og
stressaður. Ég kunni svona ein
földustu reglur en var ekki með
allt á hreinu. Ég gat auðvitað ekki
neitt þegar ég byrjaði en ég var
fljótur að ná þessu og bæta mig,
bætti mig í raun bara jafnt og þétt.
Ég byrjaði síðan sumarið eftir að
æfa með meistaraflokki og spil
aði með þeim strax veturinn eftir.
Ég fékk mjög sterk viðbrögð strax,
ég var auðvitað svona stór og það
eru ekki margir svona stórir strák
ar í körfunni. Mjög fljótt fann ég
að ég vildi ná árangri, komast
áfram og í landsliðið.“
Bikarleikur gegn
KR minnisstæður
Tryggvi fór upp úr fyrstu deildinni
og upp í úrvalsdeild með Þórsur
um sem unnu fyrstu deildina vor
ið 2016. Hann spilaði síðan með
liðinu á síðustu leiktíð. Tryggvi
segir viðbrigðin hafa verið tölu
verð. „Það eru betri leikmenn í
úrvalsdeildinni en svo er alvaran
líka miklu meiri, það
var kannski það sem
maður fann fyrir.
Það var stórt skref að
stíga en mjög mikil
vægt fyrir klúbbinn,
og auðvitað mig. Ég
hefði getað gert betur á tímabil
inu, ég var enginn stjörnuleik
maður. En ég bætti mig mjög
mikið í fyrravetur og ég er sáttur
við það.“
Spurður hver sé minnisstæð
asti leikurinn hér heima nefnir
Tryggvi bikarleik gegn Íslands
meisturum KR árið 2015, þegar
Þórsarar voru enn í fyrstu
deildinni. Þar átti Tryggvi ótrú
legan leik, skoraði 20 stig og tók
14 fráköst, nánast óþekktur leik
maðurinn. Það dugði þó ekki til
og KRingar höfðu nauman sig
ur með þremur stigum. „Þetta
var stærsti leikurinn sem ég hafði
spilað, við vorum í neðri deild og
vorum alveg grátlega nálægt að
vinna Íslandsmeistarana,“ segir
Tryggvi og nefnir líka að leikirn
ir gegn Tindastóli hafi verið mjög
skemmtilegir þar sem barist var
um Norðurlandið.
Fór eftir sínu plani
Mikil umræða var um Tryggva
meðal körfuboltaáhugamanna
í fyrravetur og margir sem lýstu
þeirri skoðun að hann ætti ekki
að bíða með að koma sér út, ýmist
í atvinnumennsku í Evrópu eða
í háskólaboltann í Bandaríkjun
um. Það væri sóun að hann eyddi
tíma sínum í deildinni hér heima.
Tryggvi segir að hann hafi vissu
lega orðið var við umræðuna.
„Mér var alveg sama. Ég var bara
á mínu róli, búinn að setja mér
markmið og fór eftir því plani. Ég
ætlaði líka að klára námið áður
en ég færi út. Ég held að ég hafi
spilað þetta rétt. Sjálfsagt væri ég
betri í einhverjum þáttum leiksins
ef ég hefði farið út í fyrra en það
er langbest að lifa bara í núinu og
vera ekki að velta sér upp úr ef og
hefði. Ég er sáttur.“
Tryggvi segir að hann hafi
skoðað fleiri möguleika en að
ganga til liðs við Valencia áður en
af því varð. Í raun hafi hann fyrst
aðallega horft til þess að fara til
Bandaríkjanna í háskólaboltann
þar og ná í menntun í leiðinni.
„Þegar ég síðan var fyrst valinn
í Alandsliðið þá hitti ég þessa
stráka alla sem leika og hafa leik
ið í Evrópu og þeir lýstu kostum
þess fyrir mér. Sumir höfðu líka
verið í háskólaboltanum og höfðu
því samanburðinn. Þá kviknaði á
þessu hjá mér. Ég fór og skoð
aði skóla í Bandaríkjunum og
„
Þú
sagðir
mér að
mæta í
húsið.
Hvaða
hús eig-
inlega?
Tryggvi
Snær
Hlinason
Undrabarnið úr
Bárðardalnum
n Fæddur 28. október 1997
n Er 216 sentimetrar á hæð
n Bóndasonur úr Svartárkoti í
Bárðardal
n Byrjaði að æfa körfubolta í janúar
2014 með Þór á Akureyri
n Samdi við Spánarmeistara Valencia
til fjögurra ára í sumar
n Talinn líklegur til að verða valinn í
nýliðavali NBA á næsta ári
n Er á leiðinni á Evrópumótið í Finn-
landi með íslenska landsliðinu