Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Qupperneq 70
46 fólk Helgarblað 25. ágúst 2017
J
erry Lewis lést nýlega 91 árs
gamall. Hann var á sínum
tíma einn vinsælasti gaman-
leikari heims. Í heimalandi
hans, Bandaríkjunum, var stund-
um efast um hæfileika hans en
í Frakklandi naut hann mikillar
viðurkenningar og þótti snill-
ingur í gamanleik. Árið 1984
veittu Frakkar honum heiðurs-
orðu. Virtur franskur gagnrýnandi
sagði að það vekti mikla furðu
að Bandaríkjamenn skyldu ekki
skynja snilligáfu Jerry Lewis.
Lewis fæddist árið 1926, sonur
foreldra sem voru í skemmtana-
bransanum. Foreldrar hans voru
löngum fjarverandi og hann var á
stöðugu rápi milli ættingja. Hann
fór að trúa því að foreldrar hans
elskuðu hann ekki og þoldi ekki
að vera einn. Fimm ára gamall
sá hann Chaplin-myndina The
Circus í bíó og ákvað að hann vildi
verða trúður. Sextán ára gamall
hætti hann í skóla og sneri sér að
skemmtanabransanum.
Frægt samstarf
Tvítugur kynntist hann söngvar-
anum Dean Martin og þeir hófu
einkar farsælt samstarf sem gam-
anteymi. Þeim var boðinn kvik-
myndasamningur og léku saman
í sextán kvikmyndum þar sem
Lewis var í hlutverki trúðsins
og Martin var kvennagullið sem
söng hvenær sem tækifæri gafst
til. Samstarf þeirra stóð í tíu ár og
færði þeim frægð og auð en lauk
með látum. Lewis líkti samstarfs-
slitunum við skilnað. Hann sagði
við Martin: „Ég held að okkur þyki
enn vænt hvor um annan.“ Martin
leit á hann og sagði: „Þú getur
talað um væntumþykju eins lengi
og þér sýnist. Í mínum augum
ertu ekkert annað en andskotans
dollaramerki.“ Kalt var á milli
þeirra félaga í langan tíma en það
var sameiginlegur vinur, Frank
Sinatra, sem kom loks á endur-
fundum í sjónvarpssal. Eftir að
Martin missti son sinn árið 1987
komust á fullar sættir þeirra á
milli. Lewis skrifaði bók um sam-
starf þeirra, Dean and Me (A Love
Story) sem kom út árið 2005, og fór
hlýjum orðum um Martin.
Þoldi ekki gagnrýni
Þekktasta mynd Lewis er The
Nutty Professor frá árinu 1963 sem
síðar var endurgerð með Eddie
Murphy. Lewis sinnti ekki einungis
kvikmyndaleik heldur leikstýrði
einnig nokkrum mynda sinna,
skrifaði handritið og var framleið-
andi. Chaplin var hans átrúnaðar-
goð og hann leit á hann og aðra
gamanleikara þöglu myndanna
sem fyrir myndir. Hann söng inn á
plötur og kom fram í sjónvarpi og á
sviði. Hann skemmti iðulega í Las
Vegas og kom þar síðast fram árið
2016. Hann tók gagnrýni aldrei vel
og þegar hann skemmti á sviði átti
hann jafnvel til að hreyta ónotum
í áhorfendur ef honum þótti við-
tökurnar ekki nægilega góðar.
Hann stærði sig af því að hafa kall-
að slúðurdálkahöfundinn Louellu
Parson feita gyltu.
Hann sagðist hafa á nokkurra
ára tímabili unnið hvern ein-
asta dag og farið á fætur hálf fjög-
ur á morgnana. Oft gleymdi hann
hreinlega að matast. Vinnuharka
hans leiddi til þess að hann fékk
taugaáfall. Hann hætti að vinna
jafn mikið og áður en var þó alltaf
að. Svo kom að því að ýktur leikstíll
hans féll ekki lengur í kramið í
Bandaríkjunum og stjarna hans
hætti að skína skært. Hann lét þó
ekki deigan síga og hélt áfram að
skemmta og leika. Árið 1982 lék
hann í mynd Martin Scorsese The
King of Comedy og sýndi þar sinn
besta leik. Sagt er að Lewis, sem
ekki skorti sjálfstraust, hafi látið
það fara mjög í taugarnar sér sér
hversu mjög aðalleikara myndar-
innar Robert De Niro var hampað.
Vildi sjá Trump sem forseta
Vinur Lewis, John F. Kennedy,
ráðlagði honum að skipta
sér ekki af stjórnmálum og í
langan tíma fór hann að ráð-
um hans. Árið 2004 lýsti hann
þó yfir stuðningi við Bush for-
seta og sagðist harma hversu
lítið þjóðarstolt fólk sýndi. Árið
2015 varaði hann í viðtali við því
að sýrlenskum flóttamönnum
væri veitt hæli í Bandaríkjunum
því hætta væri á því að ISIS-lið-
ar leyndust meðal þeirra. „Hver
getur tekið þá áhættu?“ sagði
hann. Í sama viðtali gagnrýndi
hann Barack Obama fyrir skort á
viðbragðsáætlun vegna ISIS, lýsti
yfir aðdáun á Ronald Reagan og
sagði að Donald Trump myndi
reynast góður forseti.
Lewis, sem á tímabili reykti
fjóra sígarettupakka á dag, glímdi
um árabil við heilsubrest. Auk
annarra aðgerða fór hann í opna
hjartaaðgerð árið 1983 og barð-
ist við krabbamein. Hann viður-
kenndi að hafa í þrettán ár verið
háður verkjalyfjum sem hann
tók vegna slæms bakverkjar sem
hann glímdi við. Hann sagði að
vegna þessarar fíknar hafi árin
milli 1973 og 1977 verið eins og
í móðu, en hann mundi þó eftir
því að hafa dag einn setið með
byssu í munninum og með fing-
ur á byssugikknum.
Hann var árum saman í for-
mennsku fyrir samtök sem beita
sér fyrir rannsóknum á vöðva-
sjúkdómum og átti þátt í að fjár-
magna þau. Fyrir þetta starf sitt
var hann tilnefndur til Friðar-
verðlauna Nóbels árið 1977. Ný
kynslóð fór að meta verk hans
og leit jafnvel á hann sem fyrir-
mynd, eins og gamanleikarinn
Jim Carrey gerir. Honum hlotn-
aðist ýmiss konar viðurkenn-
ingar á efri árum, þar á meðal
heiðursverðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum og Jean
Hersholt mannúðarverðlaunin
sem veitt voru við Óskarsverð-
launaathöfnina árið 2009.
Þoldi ekki einveru
Lewis var tvíkvæntur. Átján ára
gamall hitti hann söngkonuna Patti
Palmer og þau gengu í hjónband
tíu dögum síðar. Hjónaband þeirra
entist í nær fjörtíu ár þrátt fyr-
ir umfangsmikla ótryggð hans og
þau áttu sex börn. Yngsta barnið,
Joseph, varð eiturlyfjaneytandi.
Hann framdi sjálfsmorð árið 2009,
fjörtíu og fimm ára gamall. Lewis
gekk að eiga seinni eiginkonu sína,
SamDee Pitnick, árið 1983 og þau
ættleiddu dóttur. Hann þoldi aldrei
vel að vera einn og árið 2016 sagði
hann klökkur í viðtali að hann ótt-
aðist að deyja þar sem kona hans
og dóttir yrðu þá einar eftir. n
n Jerry Lewis er látinn 91 árs
n Óttaðist dauðann
Gaman-
Leikarinn
sem þoLdi
ekki
einveru
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Alltaf í vinnunni
Leikari, leikstjóri,
framleiðandi, handrits
höfundur og söngvari.
„Hann mundi þó
eftir því að hafa
dag einn setið með byssu
í munninum og með
fingur á byssugikknum.
Endurfundir Það var Frank Sinatra sem tók að sér að koma á sáttum milli Jerry
Lewis og Dean Martin.
Sótti í sviðsljósið Þrátt fyrir heilsuleysi hélt h
ann áfram að skemmta á gamals
aldri.