Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Qupperneq 72

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Qupperneq 72
Helgarblað 25. ágúst 2017 50. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Ég sá tjald á veginum – svo flaug hann upp! Löng bið eftir nýju ökuskírteini n Biðtími eftir nýju ökuskír­ teini hér á landi er 3–4 vikur. Framleiðsla skírteinanna er í höndum ungverska fyrirtæk­ isins ANY Security Printing Company sem er í samstarfi við Öryggismiðstöðina. Um­ sóknir eru sendar út einu sinni í viku til Ungverjalands á föstu­ dagsmorgnum. Sá sem sækir um skírteini á föstudegi þarf því að bíða í viku eftir því að umsóknin fari í ferli. Ríkislög­ reglustjóri gerði samning við fyrirtækin árið 2012 og þá var stefnt á að afgreiðslutíminn yrði ein vika. Sigurjón alveg hættur á Hringbraut n Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, hefur alfarið hætt afskiptum sínum af sjónvarps­ stöðinni Hringbraut. Hann starfaði þar um tíma sem rit­ stjóri en sagði upp eftir aðeins tæpa fjóra mánuði í starfi. Í vor stýrði hann þjóðmálaþættin­ um Svartfugli en ljóst er að þeir þættir munu ekki snúa aftur á dagskrá stöðvarinnar. Þess í stað ætlar Sigurjón að einbeita sér að því að búa til útvarpsþætti um síðu­ togara. S jöunda brautin er ógur­ lega falleg og þar er gott skjól af trjánum. Þetta er líka sléttasta svæði sem er hægt að finna í margra kílómetra radíus,“ segir Jón Freyr Jóhanns­ son golfáhugamaður sem þurfti nýlega að reka tvo erlenda ferða­ menn af golfvellinum Glanna í Borgarnesi þar sem þeir höfðu slegið upp tjaldbúðum á sjöundu brautinni. Atvikið átti sér stað kvöld eitt um miðjan júlí þegar Jón Freyr, sem er stjórnarmaður í golfklúbbnum, var að fara golfhring eftir kvöldmat. „Þegar ég mætti sá ég menn vera að baksa eitthvað hinum megin á golfvellinum en velti því ekkert meira fyrir mér – ekki fyrr en þegar kom á teiginn á sjöundu brautinni. Þá sá ég tvö tjöld á miðri brautinni fram undan,“ segir Jón og veltir fyrir sér hvaða reglur gildi ef kúlan lendi á tjaldi á brautinni. „Ég er ekki viss um að það sé tekið sérstaklega fram í reglunum, en spurningin er hvort tjaldið teljist hreyfanleg eða óhreyf­ anleg hindrun,“ segir hann og hlær. „Ég sleppti því að slá og hinkraði hjá tjöldunum þar til tveir menn komu til baka. Á bjagaðri ensku viðurkenndu þeir að eiga tjöldin og þeim fyndist staðsetningin góð – það væri hvort sem er enginn þarna. Ég benti á að ég væri nú þarna og kannski kæmu fleiri að spila,“ segir Jón. „Þeir sýndu ekki á sér neitt fararsnið þannig að ég sagðist ætla að spila nokkrar holur í viðbót en að þeim loknum skyldu þeir vera farnir. Þeir stóðu eftir og virtust vera að athuga hvort ég færi ekki bara heim. En þegar ég kom aftur hunskuðust þeir loksins til að taka tjöldin niður.“ n kristjan@dv.is Glannalegir túristar tjölduðu við 7. holu Óvenjulegt atvik átti sér stað á golfvellinum Glanna í Borgarfirði í sumar Tjölduðu á Glanna Tveir erlendir ferðamenn sáu ekkert athugavert við að tjalda á golfvellinum Glanna. Myndin Er SaMSETT. GAMAN Í BOLTANUM! Bæjarhraun 14, sími 560 2000 / gaman.is / gaman@gaman.is / Gaman Ferðir fljúga með WOW air 24. - 27. nóvember ‘17 / 3 nætur. Verð miðað við 2 saman í herbergi. Innifalið er flug, 12 kg handfarangur, gisting á The Principal Hotel með morgunverði, leikskrá, aðgangur að The Kit Room Sportbar á Old Tra•ord og miði í block NW3435. 109.900 kr.Verð frá: Man Utd - Brighton 23. - 26. febrúar ‘18 / 3 nætur. Verð á mann miðað við 2 í herbergi. Innifalið er flug, 12 kg handfarangur, gisting á Days Inn með morgunverði, leikskrá leiksins, aðgangur að sérstökum bar á Anfield og miði á langhlið vallarins (Main Stand). 109.900 kr.Verð frá: Liverpool - West Ham 29. september - 2. október ‘17 / 3 nætur. Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi. Innifalið er flug, 20 kg taska, gisting á Hilton Euston í London með morgunverði og miði á leikinn. 99.900 kr.Verð frá: Arsenal - Brighton 15. - 18. desember ‘17 / 3 nætur. Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi. Innifalið er flug, 20 kg taska, gisting á Hilton Euston með morgunverði, drykkur í Delta Lounge fyrir leik, 3 rétta máltíð á Stamford Bridge, leikskrá og miði á langhlið. 109.900 kr.Verð frá: Chelsea - Southampton 13. - 16. október ‘17 / 3 nætur. Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi. Innifalið er flug, 20 kg taska, gisting á Hilton Euston með morgunverði, Club Wembley miði í block 204, drykkir í hálfleik & leikskrá.   99.900 kr.Verð frá: Tottenham - Bournemouth 1. - 4. desember ‘17 / 3 nætur. Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi. Innifalið er flug, 12 kg handfarangur, gisting á hóteli í Liverpool með morgunverði, máltíð fyrir leik og miði í Park End Stand Block. 89.900 kr.Verð frá: Everton - Huddersfield VERTU Á STAÐNUM OG FÁÐU STEMNINGUNA BEINT Í ÆÐ!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.