Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 13
Markmiðið með stofnun Bjartr-ar framtíðar var að breyta stjórnmálunum á Íslandi og
stuðla að góðum stjórnarháttum og
gagnsærri stjórnsýslu. Björt framtíð
hefur frá stofnun lagt ríka áherslu á
heiðarlega, opna og skilvirka stjórn-
sýslu. Þetta var eitt af því sem flokkur-
inn lagði áherslu á að sett yrði inn í
stjórnarsáttmála síðustu ríkisstjórnar.
Íslendingar geta lært heilmargt af
nágrannaþjóðunum á þessu sviði. Til
að mynda Svíþjóð sem hefur komið
sér saman um sex grunngildi sem veita
opinberum starfsmönnum ákveðna
leiðsögn um hvernig þeir eigi að haga
störfum sínum. Sænskir borgarar eiga
að geta gengið að því vísu að ákvarð-
anir sem teknar eru innan stjórn-
sýslunnar séu lögmætar, hlutlægni og
jöfn málsmeðferð sé viðhöfð óháð því
hver á í hlut. Auk þess sem virðing sé
borin fyrir skoðana- og tjáningarfrelsi,
virðing borin fyrir einstaklingnum og
síðast en ekki síst að lögð sé áhersla á
skilvirkni stjórnsýslunnar. Jöfn með-
ferð allra þegna innan stjórnsýslunnar
óháð kyni, aldri, kynþætti eða lífs-
skoðunum er grundvallaratriði.
Þess vegna skiptir það höfuðmáli
fyrir Bjarta framtíð, sem leggur ríka
áherslu á mannréttindi, að það sé
hafið yfir allan vafa að allir Íslendingar
geti treyst því að hljóta sömu með-
ferð hjá opinberum stofnunum. Það
er lykilatriði að tryggja að ákvarðanir
sem teknar eru innan stjórnsýslunnar
séu hafnar yfir hagsmuni einstakra
stjórnmálamanna, stjórnmálaflokka
og sérhagsmuni útvalinna. Góð stjórn-
sýsla byggist á því að til staðar séu sam-
eiginleg gildi og lögmál sem stofnanir
ríkisins og opinberir starfsmenn hafa
tileinkað sér.
Björt framtíð stefnir að því að halda
áfram að bæta stjórnsýsluna með
því m.a. að bæta viðmót og aðgengi
almennings að stjórnsýslunni, opna
bókhald ríkisins og efla upplýs-
ingaskyldu opinberra aðila. Traust
almennings og atvinnulífsins á stjórn-
sýslunni skapar stöðugleika, sam-
heldni og ýtir undir almenna hagsæld.
Heiðarleg, opin
og skilvirk stjórnsýsla
Verðmætasköpun og velferð hvers samfélags byggist á menntun og rannsóknum og
þeirri nýsköpun sem af þeim leiðir.
Ísland er þar engin undantekning.
Þjóðin vill að fjárfest sé í menntun
sem skilar sér í vandaðri þjónustu
og fjölbreyttu atvinnulífi, samfélag-
inu öllu til heilla. Öflugir háskólar
eru forsenda þess að byggja megi
upp þekkingarsamfélag þar sem
menntun, rannsóknir og nýsköpun
skapa órofa heild.
Háskóli Íslands hefur verið mót-
andi afl í íslensku samfélagi í meira
en heila öld. Hann hefur menntað
fólk til áhrifa á öllum sviðum
atvinnu- og þjóðlífs og þannig verið
undirstaða framsækins atvinnulífs
og farsæls samfélags. Þegar grannt
er skoðað má sjá að áhrif af starfsemi
skólans á íslenskt samfélag eru allt-
umlykjandi. Þau hefjast við fæðingu
barna okkar og fylgja þeim í gegnum
leik-, grunn- og framhaldsskólana
og til viðbótar í námi á háskólastigi
og í sérhæfingu í framhaldi þess.
Áhrifanna gætir ekki síður í gegnum
atvinnulífið, aðgengi okkar að heil-
brigðisþjónustu, í öryggisneti lög-
gæslunnar, lystisemdum menning-
arinnar og áfram mætti lengi telja.
Öflugt háskólastarf á Íslandi
skiptir okkur öll máli til að tryggja
að Ísland sé aðlaðandi staður til
að búa á til framtíðar. Árangur
Háskóla Íslands stendur og fellur
með faglegum metnaði annars
vegar og fjárfestingu stjórnvalda
hins vegar. Um hið fyrra þarf
ekki að fjölyrða, hvorki hjá nem-
endum né kennurum. Háskólinn
hefur á alþjóðlegan mælikvarða
náð frábærum árangri sem er m.a.
mældur í áhrifum þeirra rannsókna
sem stundaðar eru við skólann
og í margþættu framlagi hans til
framfara jafnt innanlands sem
utan. Hvað fjármögnun varðar er
Háskóli Íslands upp á forgangs-
röðun stjórnvalda kominn. Vand-
séð er hvar hægt er að festa fé í
meiri verðmætum en menntun og
rannsóknum en það er óneitanlega
langur vegur frá því að framlög til
háskólamenntunar á Íslandi stand-
ist samanburð við það sem tíðkast
hjá nágrannaþjóðum okkar.
Háskóli Íslands hefur á undan-
förnum áratugum haslað sér völl
sem alþjóðlegur rannsóknarháskóli
á heimsmælikvarða. Það kallar bæði
á elju og árvekni að halda sér í þeirri
úrvalsdeild og til þess þarf stuðn-
ing og hvatningu frá samfélaginu
og stjórnvöldum. Samofnir þættir
menntunar, rannsókna og nýsköp-
unar eru um allan heim viður-
kenndir sem drifkraftur verðmæta-
sköpunar og velferðar. Þeir eru í
raun fjöregg þess samfélags sem
allir Íslendingar vilja byggja. Þess
vegna skora ég á alla frambjóðendur
að tala um mikilvægi menntunar í
aðdraganda kosninga og tryggja
að forgangsraðað sé í þágu öflugs
háskólakerfis að þeim loknum.
Tryggjum menntun – treystum velferð
Háskóli Íslands hefur á
undanförnum áratugum
haslað sér völl sem alþjóð-
legur rannsóknarháskóli
á heimsmælikvarða. Það
kallar bæði á elju og árvekni
að halda sér í þeirri úrvals-
deild og til þess þarf stuðning
og hvatningu frá samfélaginu
og stjórnvöldum.
Jón Atli
Benediktsson
rektor Háskóla
Íslands
Það er lykilatriði að tryggja
að ákvarðanir sem teknar
eru innan stjórnsýslunnar
séu hafnar yfir hagsmuni
einstakra stjórnmálamanna,
stjórnmálaflokka og sérhags-
muni útvalinna.
Elvar Örn
Arason
stjórnsýslufræð-
ingur og skipar
sæti á lista
Bjartrar fram-
tíðar í Reykjavík
norður
2017
2017
Dacia Dokker
ALVÖRU
ATVINNUBÍLL
ALVÖRUATVINNUBÍLL
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði
er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl. Dacia Dokker er með
1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l
í blönduðum akstri*. Dacia bílarnir hafa komið einskalega
vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
VERÐ: 2.390.000 Kr.
VERÐ ÁN VSK: 1.927.419 Kr.
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
* V
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
4
1
9
1
D
a
c
ia
D
o
k
k
e
r
a
tv
in
n
u
5
x
1
5
s
e
p
t
Drive Bílskúrsryksuga
18lítra 1200W
7.290
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Ryk- og vatnssugur
fyrir bílskúr og iðnað
ÍTÖLSK
GÆÐI
Soteco Base XP 315 1300W
Iðnaðarryk-/vatnssuga, 23L,
létt og öflug
32.390
Lavor CF20 ryk/vatnssuga
1400W 20lítra
12.490
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 1 8 . o k T ó B e R 2 0 1 7
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
0
-E
1
1
0
1
E
0
0
-D
F
D
4
1
E
0
0
-D
E
9
8
1
E
0
0
-D
D
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K