Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 63
gæði – þekking – þjónusta
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
VAKÚMVÉLAR
Mikið úrval af vakúmvélum
sem henta einstaklingum
og fyrirtækjum
PÖKKUNARVÉLAR - BRETTAVAFNINGSVÉLAR - BINDIVÉLAR
BAKKALOKUNARVÉLAR - FLÆÐIPÖKKUNARVÉLAR
FILMUPÖKKUNARVÉLAR - KASSALOKUNARVÉLAR
FÁÐU TILBOÐ
Hágæða amerísk heilsurúm
sem auðvelt er að elska
Sofðu rótt í alla nótt
það. Að minnsta kosti kom fram að
krakkarnir í dómnefndinni hefðu
verið ánægðir með hana,“ segir
Elísa Jóhannsdóttir sem hlaut í
gær Íslensku barnabókaverðlaunin
2017. Verðlaunasagan, Er ekki allt í
lagi með þig?, kom líka út í gær hjá
Forlaginu, svo Elísa var að vonum
glöð.
„Þetta var frábær dagur, bæði að
fá verðlaun og eigin bók í hendur,“
segir hún og bætir við: „Ég reiknaði
ekki með að vinna. Sagan er miðuð
við lesendur í 8. til 10. bekk, það er
að segja fjórtán til sextán ára, og ég
var ekki viss um að unglingabókar-
handrit félli í kramið.“
Er ekki allt í lagi með þig? er
fyrsta höfundarverk Elísu sem
kemur út en hún lumar á ýmsu efni
í skúffunni, meðal annars handriti
að barnabók, að eigin sögn. Auk þess
hefur hún þýtt eina bók, Villt heitir
hún.
Um söguþráð nýju bókarinnar
segir Elísa: „Sagan er um Ragnheiði,
stelpu sem flytur til Íslands frá
Bandaríkjunum þar sem hún hefur
alist upp. Hún hefur verið lögð í ein-
elti og glímir við námsörðugleika
og foreldravandamál. Kynnist strax
Heklu sem er vinsæl fótboltastelpa
og valdamikil í skólanum. Hekla
kynnir hana fyrir fleirum en svo fer
Ragnheiður að átta sig á því að Hekla
er ekki öll þar sem hún er séð.“
Í umsögn dómnefndar segir: Er
allt í lagi með þig? er skemmtileg
og spennandi unglingasaga í hæsta
gæðaflokki sem fjallar á nýstárlegan
hátt um einelti frá sjónarhóli bæði
gerenda og þolenda.
Spurð hvort um eigin hugarsmíð
sé að ræða eða hvort hún byggi sögu-
þráðinn á sönnum atburðum svarar
Elísa: „Sagan er algerlega út úr eigin
hugskoti. Ég var reyndar lögð í ein-
elti sjálf þegar ég var barn, en bara
í stuttan tíma því foreldrar mínir
tóku mig úr skólanum sem ég var
beitt því í, af því að þar var ekkert
gert í málunum. En bókin er ekki
síður skrifuð út frá reynslu gerenda
eineltis og annarra sem taka þátt
í því óbeint.“ Hún tekur fram að
einelti sé ekki endilega aðalatriði
bókarinnar heldur eitt af nokkrum
umfjöllunarefnum svo sem að
byrja í nýjum skóla og eignast vini,
hvernig maður stendur með sjálfum
sér og tekst á við vandamál tengd
foreldrum.
Elísa kveðst vera Reykvíkingur að
uppruna en einnig hafa búið á Höfn
í Hornafirði og í Danmörku. Hún er
í fæðingarorlofi núna en er mark-
aðs- og kynningarstjóri hjá Háskóla
Íslands. „Ég byrjaði á verðlauna-
bókinni fyrir fimm árum og er búin
að taka skorpur í henni, til dæmis
í síðasta fæðingarorlofi, svo lauk
ég henni í þessu orlofi.“
Dýrmæt aðstoð frá unglingum
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka var stofnaður 30. janúar
1985 í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar
(1915–1999). Að sjóðnum standa fjölskylda Ármanns, bóka útgáfan
Vaka-Helgafell, nú innan vébanda Forlagsins, IBBY á Íslandi og
Barnavinafélagið Sumargjöf. Fulltrúar þessara aðila skipa dóm-
nefnd sem velur úr handritum en einnig eru í henni hverju sinni
tveir grunnskólanemar, fulltrúar lesenda. Að þessu sinni voru það
þau Bergþóra Sól og Veigar Elí úr Lindaskóla í Kópavogi og færir
verðlaunasjóðurinn þeim og skólanum kærar þakkir fyrir dýrmæta
aðstoð.
Megintilgangur sjóðsins er að örva fólk til að skrifa fyrir börn og
unglinga og stuðla þannig að auknu framboði úrvalslesefnis fyrir
æsku landsins. Sjóðurinn efnir árlega til samkeppni um Íslensku
barnabókaverðlaunin sem veitt eru fyrir það handrit sem dómnefnd
þykir best hverju sinni.
Æsa Guðrún Bjarnadóttir, ritstjóri hjá Forlaginu, færði Elísu verðlaunaskjalið.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 35m i ð V i K U D A g U R 1 8 . o K T ó B e R 2 0 1 7
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-F
4
D
0
1
E
0
0
-F
3
9
4
1
E
0
0
-F
2
5
8
1
E
0
0
-F
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K