Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 6
Hróðnýjarstaðir
Búðardalur
laxárdalur
Hvammsfjörður
Orkumál Sveitarfélagið Dalabyggð
og eigendur einkahlutafélagsins
Storm Orku hafa undirritað vilja
yfirlýsingu um vindorkugarð með
allt að 40 vindmyllum. Eigendur
félagsins keyptu í byrjun ágúst
jörðina Hróðnýjarstaði, skammt frá
Búðardal, og stefna að íbúafundi í
nóvember þar sem áformin verða
kynnt.
„Viljayfirlýsingin var undirrituð í
september en hún er almenns eðlis
og snýst aðallega um skipulagsmál.
Samhliða var ákveðið að halda íbúa
fund þar sem þetta fyrirtæki myndi
kynna sín áform,“ segir Sveinn Páls
son, sveitarstjóri Dalabyggðar.
Storm Orka er í eigu Magnúsar B.
Jóhannessonar, framkvæmdastjóra
hjá bandaríska fyrirtækinu America
Renewables. Magnús og fjölskylda
hans eiga Hróðnýjarstaði en um er
að ræða 26 hektara jörð af ræktuðu
landi ásamt fjárstofni, um 1.000 fjár.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
sveitarfélagið hefur gæti fullkláraður
vindorkugarðurinn framleitt allt að
160 megavött af raforku.
„Þeir virðast hafa þá trú á þessu að
þeir keyptu jörðina og það var skref
sem byrjað var á áður en skrifað var
undir þessa viljayfirlýsingu. Þeim
er reyndar alveg ljóst að þetta getur
farið á hvorn veginn sem er. Á svona
frumstigi liggur ekki fyrir mikið
af gögnum en engu að síður liggja
fyrir upplýsingar um áformað afl og
fjölda vindmylla. Viljayfirlýsingin
snýr að því að við ætlum að vinna
skipulagsvinnuna með eðlilegum
hætti og tíma. Öll gögn varðandi
umhverfismat og fleira því um líkt
kemur á síðari stigum,“ segir Sveinn.
Magnús vildi ekki tjá sig um áform
Storm Orku þegar blaðamaður
náði tali af honum í gær. Félagið
hét þangað til í mars síðastliðnum
MJDB ehf. Fréttablaðið greindi í
ársbyrjun frá tilraunum þess til að
kaupa Hellisheiðarvirkjun af Orku
veitu Reykjavíkur. Reykjavíkurborg,
Akraneskaupstaður og Borgarbyggð
fengu þá einnig tilboð í eignarhluti
sína í virkjuninni. Magnús vildi þá
ekki tjá sig um tilboðið, sem var síðar
hafnað, eða þá hvort aðrir innlendir
eða erlendir fjárfestar hefðu komið
að því. haraldur@frettabladid.is
Vilja vindorkugarð á
sauðfjárbú í Dalabyggð
Eigendur Storm Orku vilja reisa allt að 40 vindmyllur á Hróðnýjarstöðum
skammt frá Búðardal. Þeir undirrituðu í september viljayfirlýsingu ásamt Dala-
byggð. Keyptu jörðina í ágúst og ætla að halda íbúafund í næsta mánuði.
Þeir virðast hafa þá
trú á þessu að þeir
keyptu jörðina og það var
skref sem byrjað var á áður
en skrifað var undir þessa
viljayfirlýsingu.
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri
Dalabyggðar
Eigandi Storm Orku keypti, ásamt fjölskyldu sinni, Hróðnýjarstaði í ágúst.
Ræddi við dýrin
Sebastian Kurz, formaður hins austuríska Flokks fólksins, staldraði við til að glotta framan í tvo hunda á leið
sinni af fundi með forseta landsins þar sem sitjandi stjórn baðst lausnar. Flokkur Kurz fékk flest atkvæði í
þingkosningum um helgina og er talið líklegt að Kurz, sem er 31 árs, verði forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Alvöru unglingabók um vináttu, vinslit,
foreldravandamál og að standa með
sjálfum sér – heitar og flóknar tilfinningar
sem allir unglingar kannast við.
Sagan bar sigur úr býtum í samkeppninni
um Íslensku barnabókaverðlaunin 2017.
T I L H A M I N G J U,
E L Í S A
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
1 8 . O k t ó B e r 2 0 1 7 m i ð V i k u d a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-C
D
5
0
1
E
0
0
-C
C
1
4
1
E
0
0
-C
A
D
8
1
E
0
0
-C
9
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K