Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 2
Viðskipti Fyrirtækið Life Iceland
ehf. sem á og rekur veitingastaðinn
Sjanghæ á Akureyri var skráð á vá
lista Ríkisskattstjóra þann 31. ágúst
síðastliðinn. Fyrirtækið komst í
fréttir fyrir skömmu þegar Ríkis
útvarpið birti fréttir af meintu man
sali á staðnum.
Ríkisskattstjóra er heimilt að
fella virðisaukaskattskyldan aðila
af virðisaukaskattskrá hafi fyrir
tækið ekki staðið skil á virðisauka
tvö uppgjörstímabil í röð. Skúli Egg
ert Þórðarson ríkisskattstjóri segir
fyrirtæki þurfa að gera grein fyrir
sínum málum.
„Hafi fyrirtæki sætt áætlun virðis
aukaskatts í tvö uppgjörstímabil
eða lengur er ríkisskattstjóra heimilt
að fella það af virðisaukaskattsskrá.
Ekki er hægt að skrá sig aftur nema
fyrst sé gerð grein fyrir virðisauka
skattskýrslum og greiddur virðis
aukaskattur til ríkissjóðs.“
Sjanghæ er í eigu Rositu Yufan
Zhang sem hefur búið og starfað
hér á landi í langan tíma. Jóhannes
Már Sigurðarson, lögmaður fyrir
tækisins, segir þetta ekki stórmál.
„Það geta verið nokkrar ástæður
fyrir þessu,“ segir Jóhannes Már.
„Það stóð til að opna veitingastað í
Hafnarfirði og hún hafði unnið að
opnun þess staðar. Svo urðu vanskil
á leigu hjá henni og það fór í smá
uppnám. Kannski gæti það verið út
af því. Það hefur verið fjárhagsvandi
í kringum þetta allt saman og því
gæti það hafa haft áhrif. “
Mikil umfjöllun hefur verið um
Sjanghæ síðustu vikur. Fréttir voru
um að grunur væri um vinnuman
sal á staðnum þar sem starfsmenn
hafi verið hlunnfarnir um laun. Eftir
skoðun Einingar Iðju á gögnum
staðarins hafi komið í ljós að laun
hafi verið greidd samkvæmt kjara
samningum.
Síðan hafi ákvörðun verið tekin
af eiganda staðarins um að stefna
beri fréttamönnum Ríkisútvarps
ins vegna umfjöllunar sem skaðað
hafði fyrirtækið. Fréttaflutningur
af meintu mansali hafi hins vegar
birst eftir að fyrirtækið lenti á vá
lista ríkisskattstjóra.
Einnig segir Jóhannes líklegt að
breytingar á atvinnuflokkum geti
haft einhver áhrif hvað þetta varðar.
Skipt var um endurskoðendur og
bókara fyrir skömmu og var verið að
færa atvinnuflokk fyrirtækisins. Það
gæti verið ástæða þess að fyrirtækið
sé nú á válista. sveinn@frettabladid.is
Það stóð til að opna
veitingastað í
Hafnarfirði og hún hafði
unnið að opnun þess staðar.
Svo urðu vanskil á leigu hjá
henni og það fór í smá
uppnám.
Jóhannes Már
Sigurðarson, lög-
maður Sjanghæ
Veður
Með morgninum gengur í suðaustan
10-20 m/s, hvassast SV-lands þar
sem Reykjanesbraut, Kjalarnes,
Hafnarfjall og fleiri staðir gætu mælt
hviður yfir 30 m/s. Rigning með
köflum sunnan- og vestanlands.
sjá síðu 32
Að kjósa sjálfan sig í tónlistarveislu
Margt vinsælasta tónlistarfólk landsins heldur uppi stuði á Vökunni í Valsheimilinu kosningadaginn 28. október. Hitað var upp fyrir fjörið í sam-
kvæmi í gær. Frítt er á tónleikana en aðgöngumiðinn felst í því að taka mynd af sér fyrir framan skilti Vökunnar á kjörstað. Markmiðið er að auka
kjörsókn ungs fólks. Meðal þeirra sem koma fram eru Páll Óskar, Sturla Atlas, Reykjavíkurdætur, Aron Can og FM Belfast. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sjanghæ á Akureyri á
válista vegna vanskila
Fyrirtækið Life Iceland ehf., sem rekur veitingastaðinn Sjanghæ á Akureyri, er á
válista Ríkisskattstjóra. Fyrirtæki á válista hafa ekki skilað virðisaukaskatti eða
staðið skil á virðisaukaskattskýrslum. Ekkert stórmál segir lögmaður Sjanghæ.
Miðað við válista ríkisskattstjóra er Sjanghæ í vanda. FRÉTTABLAÐIÐ/AuÐuNN
umhVerfismál Ofanflóðanefnd
hefur samþykkt beiðni Ísafjarðar
bæjar um aðstoð við að eyða hættu
sem talin er stafa af svokölluðum
Hádegissteini sem er fleiri tonn
og stendur tæpt í Bakkahyrnu ofan
Hnífsdals og ógnar þar með byggð.
„Óskað er eftir fjárstuðningi og
sérfræðiaðstoð við að meta og eyða
hættunni af steininum eins fljótt
og auðið er,“ segir Ofanflóðanefnd
í bréfi til bæjarins. Framkvæmda
sýsla ríkisins á að annast málið. – gar
Hádegissteinn
gerður óvirkur
Í Hnífsdal. FRÉTTABLAÐIÐ/PjeTuR
sjáVar ú t V eg u r Samhljómur
er á milli stjórnmálaflokkanna
um útfærslu á auðlindaákvæði í
stjórnar skránni. Þetta sagði Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra á
sjávarútvegsdeginum í Hörpu í gær.
Hann sagði að slíkt ákvæði þyrfti að
taka tillit til auðlinda almennt.
„Einhver ágreiningur kann að
vera til staðar um nákvæmt orðalag
en mér sýnist vera hægt að brúa það
og ég vil halda því fram að ástæðan
fyrir því að slíkt ákvæði er ekki
komið í stjórnarskrá sé ágreiningur
um önnur ákvæði en það,“ sagði
Bjarni. – jhh
Telur sátt um
auðlindákvæði
Bjarni
Benediktsson
stjórnmál Sjálfstæðisflokkurinn
nýtur mests fylgis meðal kjósenda í
Suðurlandskjördæmi þótt hann
tapi 5 prósentustigum ef marka má
könnun Fréttastofu 365 og fengi
26,6 prósent atkvæða ef gengið yrði
til alþingiskosninga nú. Hins vegar
meira en tvöfalda Vinstri græn sitt
fylgi frá síðustu kosningum og mæl
ast með 22,2 prósent á móti 10,2
prósentum í kosningunum í fyrra.
Framsóknarflokkurinn mælist
með 11,0 prósent, Miðflokkurinn
með 10,1 prósent, Samfylking með
8,2 prósent og Píratar með 8,1 pró
sent. Þessir fjórir flokkar væru inni
með einn þingmann hver. Sjálf
stæðisflokkur fengi þrjá og VG tvo.
Þá mælist Flokkur fólksins með 5,5
prósent, Viðreisn með 3,0 prósent
og Björt framtíð með 2,2 prósent.
Aðrir eru samtals með 3,2 prósent.
Næsti þingmaður inn miðað við
könnunina kæmi frá VG. – gar
VG tvöfaldar sig
á Suðurlandi
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 m i ð V i k u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-A
D
3
8
1
E
0
0
-A
B
F
C
1
E
0
0
-A
A
C
0
1
E
0
0
-A
9
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K