Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 42
Salatvinda sparar
tíma við að hreinsa
salatið og tryggir að það
sé brakandi stökkt og
ferskt. Hún hentar ekki
síður til að skola krydd-
jurtir áður en þær eru
notaðar í matargerð.
Salatvinda er eitt af þessum búsáhöldum sem margir telja hinn mesta óþarfa.
Hins vegar er salatvinda bráð-
nauðsynleg við eldhússtörfin því
hún sparar tíma við að hreinsa
salatið og tryggir að það sé
brakandi stökkt og ferskt. Salat-
vinda hentar ekki síður til að
skola kryddjurtir áður en þær
eru notaðar í matargerð. Best
er að setja salatið í sigtið, fylla
skálina af vatni, setja sigtið ofan
í og láta salatið liggja í skálinni
í nokkra stund. Með þessu móti
sökkva óhreinindi eins og mold
eða sandur til botns á skálinni
en salatið flýtur ofan á. Salatið er
svo skolað vel og þeytt í salat-
vindunni svo það verður þurrt og
ferskt áður en það er borið fram.
Salatvindur fást í öllum helstu
búsáhaldabúðum og í mörgum
útgáfum, oftast úr plasti en einn-
ig stáli. Síðan er hægt að nota
skálina sem salatskál.
Þurrt og brakandi salat
Salatvinda getur komið að góðum
notum við eldhússtörfin.
MYND/GETTYNORDICPHOTOS
Ísraelski iðnhönnuðurinn Tal Batit
hefur hannað línu keramikmuna
þar sem hann notar glerung eins
og lím. Hver hlutur er búinn til úr
nokkrum aðskildum stykkjum,
hvert stykki er steypt, litað og gler-
jað hvert í sínu lagi en að endingu
er stykkjunum raðað saman og þau
fest saman með glerungi.
Í umfjöllun á hönnunarvefnum
designboom.com lýsir hann
því hvernig efni og aðferðir við
vinnslu keramikmuna vöktu
áhuga hans og þá sérstaklega á því
að nýta aðferðirnar á annan máta
en venjulega. Til dæmis hafi sú
staðreynd að hlutir, sem raðað er
í brennsluofn til glerjunar, megi
ekki snertast því annars festist
þeir saman, kveikt með honum
hugmynd um að nýta það einmitt
til þess að festa þá saman og þróa
sérstaka aðferð kringum það.
Batit hóf tilraunir til þess að
glerja saman ólíkar tegundir leirs
sem ekki tekst að festa saman með
hefðbundnum aðferðum. Í línunni
Hybrid, glerjar hann rauðan
terracotta-leir við hvítan jarðleir
og leikur sér með andstæðurnar
í efnunum. Rauði leirinn hafi frá
örófi alda verið notaður í skraut-
lausa og oft grófa nytjahluti meðan
hvíti leirinn tengist miklu frekar
háglansandi sparistellum.
Sjá nánar á designboom.com.
Myndir: Ran Kushnir
Hefðbundnar
aðferðir á
óhefðbundinn
hátt
ekki à safnið
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang
fyrir þá sem þess óska.
við hönnum og teiknum
Komdu með eða sendu okkur málin af
eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu,
anddyrinu eða svefnherberginu - og
við hönnum, teiknum og gerum þér
hagstætt tilboð í glæsilega danska inn-
réttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð
raftæki á vægu verði.
gott skipulag
Það getur verið mikil kúnst að nýta pláss á sem bestan máta.
Með fjölbreyttum skápalausnum frá Fríform á hver hlutur sinn stað.
Gott skipulag léttir þér lífið og sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
styrkur - ending - gæði
eldhúsinnréttingar
hÁgÆða danskar
opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
0
-E
A
F
0
1
E
0
0
-E
9
B
4
1
E
0
0
-E
8
7
8
1
E
0
0
-E
7
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K