Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 4 5 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 8 . o K t ó b e r 2 0 1 7 FrÍtt Fréttablaðið í dag sKoðun Tryggjum menntun, skrifar Jón Atli Benediktsson. 13 sport Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason færir sig um set til danska félagsins Ribe-Esbjerg. 16 Menning Elísa Jóhannsdóttir fékk Íslensku barnabókaverð- launin fyrir að skrifa skemmti- lega bók um alvarleg málefni. 35 lÍFið Margar af bestu söngröddum Íslands hafa sungið í kór MH. 40 plús 2 sér- blöð l FólK l  Fjár- öFlun *Samkvæmt prent- miðlakönnun Gallup apríl- júní 2015 Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Hrekkjavaka! Finndu okkur á Átt þú rétt á slysabótum? TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA UMFERÐASLYS VINNUSLYS FRÍTÍMASLYS 511 5008 ViðsKipti Ef gististaðir á lands- byggðinni þyrftu að taka á sig alla hækkun virðisaukaskatts úr 11  í 22,5 prósent, eins og ríkisstjórnin lagði til í fjármálaáætlun sinni, myndi það leiða til mikils taprekstr- ar. Afkoma hótela á höfuðborgar- svæðinu yrði nálægt núlli. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri úttekt ráðgjafafyrirtækisins KPMG. Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir úttekt KPMG að mörgu leyti sláandi. – kij /  sjá Markaðinn Myndi ógna afkomu hótela ViðsKipti Upptaka hátekju- og auðlegðarskatta myndi einungis fjármagna á bilinu fjögur til átján prósent af þeim sjötíu milljarða króna útgjaldaloforðum sem sumir stjórnmálaflokkar hafa gefið fyrir komandi þingkosningar. Útreikningar sem byggðir eru á sérvinnslu gagna frá Hagstofu Íslands út frá skattframtölum fyrir árið 2016 leiða í ljós að 48 til 76 prósenta hátekjuskattur á þá sem hafa meira en 25 milljónir í árslaun myndi auka skatttekjur ríkissjóðs um 159 milljónir til 2,7 milljarða króna á ársgrundvelli. Þá myndi auðlegðarskattur sem lagður yrði á hreina eign að virði yfir 150 millj- ónir skila frá 5,1 milljarði upp í 10,2 milljarða króna aukalega til ríkis- sjóðs á ári, eftir því við hvaða skatt- hlutfall er miðað. Til samanburðar hafa Vinstri grænir og Samfylkingin lagt til að auka ríkisútgjöld árlega um 50 til 75 milljarða. Ekki standi hins vegar til að sækja þá fjármuni með því að hækka skatta á almenning. Þá hefur Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sagst ekki vilja hækka virðisauka- skatt á ferðaþjónustu úr 11 í 24 prósent en sú ráðstöfun myndi skila um 18 milljörðum í auknar tekjur til ríkissjóðs. „Tuga milljarða kosningaloforð verða ekki eingöngu fjármögnuð með hátekju- og auðlegðarskatti. Þessir útreikningar sýna að miðað við tekju- og eignadreifingu lands- manna er einungis hægt að fjár- magna brotabrot af þeim loforðum með slíkri skattheimtu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnu- lífsins. Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík og nefndar- maður í peningastefnunefnd Seðla- bankans, bendir á mikilvægi þess að ríkið stígi varlega til jarðar og ýti ekki undir þenslu. „Það væri alveg hægt að auka útgjöldin ef það liggur skýrt fyrir hvernig eigi að fjármagna útgjaldahækkanirnar,“ útskýrir Katrín. Ari Skúlason, hagfræðingur við hagfræðideild Landsbankans, seg- ist eiga erfitt með að skilja tal um að auka tekjur ríkisins með því að „færa skattbyrðina til“ og hækka ekki skatta. „Ef ætlunin er að auka ríkistekjur hljóta skattarnir að hækka, en svo er bara spurningin hvar hækkanirnar lenda.“ – hae, kij / sjá Markaðinn Hátekju- og eignaskattur dugar skammt Upptaka hátekju- og auðlegðarskatta gæti skilað 5 til 13 milljörðum. Forstöðumaður hjá SA segir tug- milljarða útgjaldaloforð aðeins fjármögnuð með hækkun skatta á almenning. Hagfræðingur segir tekjur ekki auknar með að „færa skattbyrðina til“. 2,7 milljörðum myndi 76 pró- senta hátekjuskattur á þá sem eru með yfir 25 millj- ónir í árslaun skila í auknar tekjur ríkissjóðs. Það væri alveg hægt að auka útgjöldin ef það liggur skýrt fyrir hvernig eigi að fjármagna útgjalda- hækkanirnar. Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík Vel var mætt á kjötsúpufund sem Pepp Ísland, samtök fólks í fátækt, stóðu fyrir í gær í húsakynnum Öryrkjabanda- lags Íslands. Þar gafst gestum og gangandi kostur á að ræða við frambjóðendur í þingkosningunum um stefnumál þeirra í málefnum þeirra sem minna mega sín. Á meðan gæddi fólk sér á dýrindis kjötsúpu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR orKuMál Eigendur Storm Orku vilja reisa allt að 40 vindmyllur á Hróðnýjarstöðum, skammt frá Búðardal, sem þeir keyptu í ágúst. Fyrir liggur viljayfirlýsing þeirra og Dalabyggðar um málið. Þeir boða til íbúafundar í nóvember. „Þeir virðast hafa þá trú á þessu að þeir keyptu jörðina,“ segir Sveinn Páls- son, sveitarstjóri Dalabyggðar. Storm Orka er í eigu Magn- úsar B. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra hjá bandaríska fyrirtækinu America Renewables. Magnús vill ekki tjá sig um áformin. Félagið hét þangað til í mars  MJDB ehf. Fréttablaðið hefur sagt frá tilraunum félags- ins til að kaupa Hellisheiðar- virkjun.  – hg / sjá síðu 6 Vill virkja vinda við Búðardal Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónust- unnar. 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 0 -A 8 4 8 1 E 0 0 -A 7 0 C 1 E 0 0 -A 5 D 0 1 E 0 0 -A 4 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.