Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 38
 Besta leiðin til að koma í veg fyrir ágreining og vantraust er að allar upplýsingar um fjármál og uppgjör séu öllum opnar. Allt er afgreitt nýbakað og vörurnar keyrðar upp að dyrum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þá sendir fyrirtækið vörur um allt land. Andrea Ýr Grímsdóttir, sölustjóri Kökugerðar HP á Selfossi. Kökugerð HP býður upp á frábærar vörur í fjáröflun,“ segir Andrea Ýr Grímsdóttir, sölustjóri Kökugerðar HP á Selfossi, en fyrirtækið framleiðir flatkökur, kleinur, kanilsnúða og einnig hið vinsæla HP-rúgbrauð, bæði fyrir verslanir, mötuneyti og hvers kyns fjáraflanir félagasamtaka og hópa. Gott í frystinn Andrea segir alltaf jafn vinsælt að selja flatkökur í fjáröflun. „Við bjóð- um til að mynda okkar einu sönnu HP-flatkökur, kanilsnúða og kleinur í fjáröflun. Þetta er eitthvað sem fólki finnst gott að eiga í frystinum og grípa til, til dæmis í nesti fyrir krakkana í skólann. Bæði er hægt að selja einstakar vörutegundir eða búa til samsetta pakka, til dæmis með flatkökum og kanilsnúðum og kleinum,“ útskýrir Andrea. Allt nýbakað „Allar okkar vörur eru nýjar og fersk- ar við afhendingu og við leggjum okkur fram um að veita persónulega og mjög góða þjónustu. Það stendur öllum til boða að panta hjá okkur hvar sem fólk er statt á landinu. Við keyrum pantanir heim að dyrum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og á flutn- ingsaðila fyrir landsbyggðina.“ Úrvalið á heimasíðunni „Úrvalið má skoða á heimasíðunni, flatkaka.is, og leggja má inn pant- anir í gegnum netfangið hpflat- kokur@simnet.is. Gott er að panta með tveggja daga fyrirvara. Ef fólk er með einhverjar spurningar ætti það ekki að hika við að senda okkur fyrirspurn á hpflatkokur@simnet.is og við svörum um hæl.“ Flatkökurnar eru vinsælar í fjáröflunina Kökugerð HP býður dýrindis flatkökur, kleinur og kanilsnúða í fjáraflanir fyrir hvers kyns hópa og félagasamtök. Helgi hefur leyft safna.is að lifa á vefnum sem leiðbein-ingasíðu enda segir hann lögmál og vandamál við fjáraflanir alltaf þau sömu og að sífellt komi til nýjar kynslóðir og nýir foreldrar sem ekki hafi komið að fjáröfl- unarmálum áður. Oft séu þeir sem standi í fjáröflunum ungir að árum og lítt reyndir í sölu á flóknum hlutum. Því sé mikilvægt að sölu- varningurinn sé einfaldur og mæti þörfum heimilanna, eins og kló- sett- og eldhúspappír, hreinlætis- vörur eða matvara. Að mörgu sé að hyggja en hér er tæpt á því helsta: Markmið með fjáröflunar- starfinu Markmið fjáröflunar er gjarnan keppnis- eða útskriftarferðalag barna og unglinga eða gott mál- efni. Mikilvægt er að börn og unglingar, en ekki bara foreldrar, séu meðvitaðir um hvers vegna verið sé að leggja á sig fjáröflunar- vinnu. Forsvarsmenn Oftast eru foreldrar og forráða- menn í forsvari fyrir fjáröflunar- störf, en auk þeirra geta þjálfarar, kennarar eða aðrir sem vinna með börnum komið að starfinu. Mikil- vægt er að einhver úr hópnum taki að sér heildarutanumhald um fjár- öflunarstarfið og virki sem flesta úr foreldrahópnum til vinnu. Með því dreifist vinnuálag á marga. Brýnt er að reglur um skiptingu hagnaðar séu ákveðnar fyrirfram og samþykktar af öllum. Þegar kemur að peningauppgjöri eru sjaldnast tök á aðkeyptri endur- skoðun og eftirliti. Innan íþrótta- hreyfingarinnar er þó yfirleitt yfir- stjórn sem hlutast til um slíkt en sé það ekki mögulegt er mælt með að allar upplýsingar um fjármál og uppgjör séu öllum opnar. Með því móti geta allir verið endur- skoðendur og upplýstir um allt sem að peningum snýr og hægt að leiðrétta strax ef mistök verða ljós. Þetta er besta leiðin til að koma í veg fyrir ágreining og vantraust. Áætlun fyrir tiltekið tímabil: Þegar markmið fjáröflunarstarfsins er öllum ljóst er gott að gera áætl- un fyrir tiltekið tímabil. Ef hópur nemenda stefnir að útskriftarferð í lok skólaárs er æskilegt að skoða skóladagatal vetrarins og fastsetja fjáraflanir þegar krakkarnir eru ekki í prófum eða stífri verkefna- vinnu. Þá gætu verið tvær til þrjár fjáraflanir á hvorri önn. Foreldra- hópum má skipta niður á þessar fjáraflanir svo að umsjón og eftirlit deilist á sem flesta. Gott er að einn sé gerður ábyrgur fyrir því að safna fólki saman og hafa yfirumsjón með hverri fjáröflun. Hóp- eða einstaklings- fjáröflun Engin ein aðferð er rétt þegar kemur að því að skipta út hagnaði úr fjáröflun og ætíð ákvörðun forsvarsmanna hverju sinni. Stundum leggur samstíga hópur á sig sambærilega vinnu og því einboðið að hagnaður skiptist jafnt á alla. Í öðrum tilfellum eru þátttakendur misduglegir og þá kann fólki að finnast sanngjarnara að afraksturinn sé eyrnamerktur þátttakendum í hlutfalli við vinnu- framlag. Tvenns konar fjáröflun Í hópfjáröflun vinnur hópur saman að fjáröflun í tiltekinn tíma, við til dæmis söfnun dósa sem síðan er skilað í endurvinnslu. Þá er algengast að afraksturinn skiptist jafnt á milli þeirra sem taka þátt. Í einstaklingsfjáröflun selja þátttakendur hver í sínu lagi: oftast til fjölskyldu, vina og ættingja; til dæmis klósettpappír eða aðrar heimilisvörur og er þá hagnaður- inn eyrnamerktur þeim sem selur. Hugmyndir að fjáröflunum: Klósettpappír, hreinlætisvörur, bílavörur, matur og bakstur, sæl- gæti, dagbækur, dagatöl, dósa- söfnun, merktur fatnaður, jólakort, bingó, tombóla, bílaþvottur, snjómokstur, páskaskreytingar, jólarósir, skemmtidagskrá, áheit. Allir vinni saman Þegar Helgi Hilmarsson hafði lokið öflugu fjáröflunarstarfi fyrir börn sín setti hann á laggirnar síðuna safna.is til að miðla leiðbeiningum til þeirra sem eru í forsvari fjáraflana Girnilegur heimabakstur er dæmi um skemmtilega fjáröflunarleið. 4 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . o K Tó B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U RFjÁRöFLuN 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 0 -C 3 7 0 1 E 0 0 -C 2 3 4 1 E 0 0 -C 0 F 8 1 E 0 0 -B F B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.