Fregnir - 01.10.2009, Page 20

Fregnir - 01.10.2009, Page 20
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða 34. árg. - 2. tbl. 2009 20 Í október 2008 tók gildi nýr ISSN-staðall, ISO-3297: 2007, ISSN-L. Þá var liðið rúmlega ár frá útgáfu staðalsins en beðið hafði verið eftir því að ISSN alþjóðaskrifstofunni tækist að gera ISSN-L númerið aðgengilegt á vef sínum. Eins og aðrir ISO-staðlar er ISSN-staðallinn endurskoðaður á fimm ára fresti og kom þessi 4. útgáfa hans út 1. september 2007 eftir nokkurra ára undirbúningsvinnu. Sú vinna var leidd af ISSN alþjóðaskrifstofunni í París en að henni komu einnig fjölmargir hagsmunaaðilar og notendur ISSN númera, svo sem útgefendur, tímaritabirgjar og dreifingaraðilar, fulltrúar frá DOI, OpenURL og úr bókasafnsheiminum, auk annarra. Við endurskoðun staðalsins var haft að leiðarljósi að koma til móts við tvær grundvallarþarfir notenda ISSN númera í rafrænu umhverfi, annars vegar þeirra sem kaupa, selja og panta tímarit og hafa þörf hafa fyrir að auðkenna hvert útgáfuform fyrir sig og hins vegar þeirra sem hafa þörf yfir að nálgast innihald verksins, óháð útgáfuformi. ISSN númerið þyrfti þannig að geta auðkennt annars vegar titil tímaritsins, eða verkið, óháð útgáfuformi og hins vegar mismunandi útgáfuform þess. Niðurstaðan var sú að fyrsta ISSN númerið, sem úthlutað er fyrir hvern titil tímarits, hefur fengið nýtt skilgreint hlutverk, ISSN-L, eða „linking ISSN“. Þetta gildir afturvirkt fyrir hvert einasta ISSN númer sem úthlutað hefur verið frá upphafi óháð því hvort tímaritið kemur eða hefur komið út á einu eða fleiri útgáfuformum. ISSN-L hefur það hlutverk að tengja saman mismunandi útgáfuform tímarits og auðvelda þannig leit að efni óháð útgáfuformi. Eftir sem áður skal úthluta sérstöku ISSN númeri fyrir hvert útgáfuform tímarits hvort sem það er gefið út prentað, rafrænt eða á geisladiski. ISSN-L númerið mun koma að sérstöku gagni við leit að tímaritum á netinu og það er hægt að nota til að mynda OpenURL-, URN- og DOI-tengla. Um meðferð ISSN-L gilda sérstakar reglur. Útgefendur mega prenta eða birta það á ritunum að því tilskildu að það sé skýrt aðgreint frá eiginlegum ISSN númerum þeirra. Gert er ráð fyrir að hægt verði að skrá ISSN-L í deilisvið $l í sviði 022 fyrir ISSN númerið í MARC21 sniði og skal alltaf fara með það sem sérstakt aðgreint númer. ISSN-L er ekki nýtt ISSN númer eða númer sem hægt er að sækja um að fá úthlutað. Það er skilgreint sem slíkt á sjálfvirkan hátt í kerfi ISSN alþjóðaskrifstofunnar, ISSN-register, um leið og fyrsta ISSN númeri fyrir hvern titil er úthlutað eða skráð. Fyrsta skrefið sem taka þurfti til að gera ISSN-L númerið aðgengilegt var að skilgreina það afturvirkt í öllum færslum í ISSN-kerfinu en í því eru nú hátt í 15 milljón tímaritsfærslur. ISSN-L er alltaf sama númer og ISSN númer einnar útgáfu hvers titils, það er að segja það númer sem úthlutað var fyrst og þar af leiðandi lægra í númeraröðinni. Dæmi: Tímarit sem gefið er út á einu útgáfuformi: ISSN-L 1748-7188 Rafræn útgáfa: Algorithms for molecular biology = ISSN 1748-7188 Tímarit sem gefið er út á tveimur útgáfuformum: ISSN-L 0264-2875 Prentuð útgáfa: Dance research = ISSN 0264-2875 Rafræn útgáfa: Dance research (Online) = ISSN 1750-0095 ISSN-L: nýr ISSN staðall

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.