Fregnir - 01.10.2009, Blaðsíða 26

Fregnir - 01.10.2009, Blaðsíða 26
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða 34. árg. - 2. tbl. 2009 2 Hin hliðin ... Í byrjun október tók Óskar Guðjónsson, Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi við starfi umdæmisstjóra Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar, sem er æðsta staða innan Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi. Óskar er fæddur í Reykjavík 10. júní árið 1952. Hann er kvæntur Konnýju R. Hjaltadóttur leikskólasérkennara. Þau eiga tvö börn og eitt barnabarn. Óskar er menntaður bókasafnsfræðingur frá HÍ (BA) og Rutgers University (MLS) og hefur frá 2004 starfað hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur sem safnstjóri í Sólheima- og Ársafni. Áður starfaði hann um 18 ára skeið hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli sem forstöðumaður almenningsbókasafns og deildarstjóri tómstundadeildar. Þar gegndi hann einnig stöðu formanns FÍSK (Félags íslenskra stjórnunarstarfsmanna á Keflavíkurflugvelli) um 8 ára skeið. Þegar vallarvistinni lauk lá leiðin í stjórn SBU (Stéttarfélag bókasafns og upplýsingafræðinga), þar sem hann er formaður nú. Hann tók sæti í stjórn Upplýsingar fyrir 4 árum en hvarf þaðan á vordögum. Mjög skemmtilegt og ögrandi starf með frábæru og gefandi fólki. Einnig hefur Óskar reglulega kennt námskeið við BSU- skor HÍ og kenndi einnig við útibú University of Maryland á Keflavíkurflugvelli. Óskar gekk til liðs við Kiwanishreyfinguna 1992, er hann gekk í Kiwanisklúbbinn Brú á Keflavíkurflugvelli. Þetta var fjölþjóðaklúbbur, sem átti sér fáa líka, vikulegir fundir fóru fram á ensku, og mikið var um að íslenskir klúbbar heimsóttu Brú, hvort sem það var vegna félagskaparins eða þess sem til skamms tíma var einungis veitt á vallarsvæðinu. Þar gengdi Óskar flestum störfum og var forseti klúbbsins 1994-1995. Þegar Brú hætti starfsemi árið 2003 lá leiðin í Kiwanisklúbbinn Eldey í Kópavogi þar sem Óskar Forseti Eldeyjar með Kiwanisfélögum og mökum í Karabíska hafinu Umdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland - Færeyjar

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.