Fregnir - 01.10.2009, Side 23
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða
34. árg. - 2. tbl. 2009 23
Hefðbundinn fundur starfsfólks bókasafna og rannsóknaþjónustu þjóðþinga var haldinn í Róm í
ágúst síðastliðnum. Fundinn sóttu yfir 200 manns. Starfsfólk beggja deilda Ítalíuþings skipulagði
fundinn af miklum myndarbrag. Þingdeildirnar eru annars vegar öldungadeild (Senato) og hins vegar
fulltrúadeild (Camera dei deputati).
Tema fundarins var „Digital Information for Democracy: Management, Access and Preservation“
Á fyrsta degi fundarins var fjallað um það sem er að gerast hjá ítölskum kollegum okkar. Efst á
baugi þar er nýleg samþykkt um formlega samvinnu bókasafna deildanna, en starfsemi þeirra hefur
verið aðskilin frá stofnun þeirra um miðja 19. öld. Samvinnan fólst til að byrja með í því að vegleg
hurð var opnuð milli safnanna með táknrænni athöfn árið 2007, nú skipta söfnin með sér aðföngum
á efnisflokkum, ásamt því að unnið er að sameiginlegu vefviðmóti og samræmingu á þjónustu við
notendur. Einnig er verið að sameina bókasafnsskrár og í framtíðinni er gert ráð fyrir samvinnu í
starfsmannahaldi. Vinna við sameiningu virðist ganga rólega fyrir sig, enda er um að ræða mjög stórar
og fremur grónar stofnanir. Til þess að gera sér grein fyrir stærðinni má nefna að í öldungadeildinni
eru nú 322 þingmenn og í neðri deildinni eru 630 þingmenn.
Unnið hefur verið að mörgum mikilvægum verkefnum undanfarin ár, til dæmis verkefni um varðveislu
og skönnun á elstu bókum safns öldungadeildarinnar, en þar eru margir dýrgripir. Í fulltrúadeildinni
hefur einkum verið unnið að skönnun þingskjala aftur í tímann. Fjármunir virðast vera nægir til
metnaðarfullra verkefna og af nógu er að taka í því efni.
Eftir að hafa fengið innsýn í starfsemi
þessara safna og séð stærð vandamálanna
og lausnanna fannst mér lífið á Íslandi
afar einfalt. Í því samhengi met ég mikils
samstarf safna á Íslandi um Gegni og
Landsaðgang. Kollegi frá Nýja Sjálandi
sagði mér að þar væri verið að vinna í
samningum um landsaðgang og kannaðist
hún við samninga Íslands sem hún taldi að
væru einstakir.
Auk þess að fræðast um verkefni staðarfólks
fengu þátttakendur innsýn í ýmis verkefni
sem unnin eru á vegum einstakra þinga og
stofnana eins og IFLA, sem allir þekkja og
ECPRD sem eru samtök um upplýsingar
tengdar þingstörfunum. Hjá ECPRD á sér
stað mikil samvinna um miðlun upplýsinga milli þjóðþinga um ýmis málefni, bæði hvað varðar
þingstörfin og lagalegt umhverfi í hverju landi. Á vegum ECPRD er væntanleg ný útgáfa leiðbeiningarits
um hvernig best megi starfrækja þingbókasöfn og rannsóknaþjónustu við þingmenn og var efni hennar
kynnt á ráðstefnunni. Einnig var kynnt rannsóknaþjónusta nokkurra landa og þar voru kollegar okkar
frá Danmörku og Noregi með efni sem er afar áhugavert fyrir okkur á Íslandi. Á þingbókasafninu í
Danmörku er safnað saman svokölluðu bakgrunnsefni með ítarupplýsingum um öll framlögð frumvörp.
Það felst í því að tekið er saman efni eins og fyrri frumvörp um sama málefni, skýrslur sem vitnað er til
IFLA - Ráðstefna upplýsinga- og rannsóknaþjónustu
þjóðþinga í Róm dagana 19.-21. ágúst 2009
Gunilla Lilie Bauer frá Stokkhólmi býður til næstu
ráðstefnu þar í borg. Myndin er tekin í ráðstefnusal sem
annars er lestrarsalur bókasafns öldungardeildarinnar