Fregnir - 01.10.2009, Page 34
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða
34. árg. - 2. tbl. 2009 34
1900. Sýndi hún margar stórkostlegar myndir þekktra
sænskra ljósmyndara í eigu Konunglega bókasafnsins, s.s.
Henry B. Goodwin sem þekktur var fyrir að ljósmynda
listafólk alls konar, eins og Selmu Lagerlöf o.fl. og vildi færa
ljósmyndunina meira til listræns horfs. Þá nefndi hún Anna
Riwkin sem ljósmyndaði m.a. Karin Boye og Söru Lidman
og síðast en ekki síst talaði Eva um August Strindberg sem
var ekki bara þekktur sem rithöfundur heldur einnig sem
ljósmyndari og vann yfir 18 ár á Konunglega bókasafninu
í Stokkhólmi, m.a. við varðveislu mynda. Einnig vakti
Eva athygli á þeirri miklu þýðingu sem ljósmyndin hafði
þegar farið var að
halda þessar stóru sýningar út í heimi eins og heimssýninguna í
París 1855 og Listiðnaðarsýninguna í Stokkhólmi 1866, og eins
hve mikið heimildagildi það hafði þegar farið var að ljósmynda
leiðangra til fjarlægra landa, t.d. Andréexpeditionen 1896 sem
varð mjög fræg á Norðurlöndum. Fyrirlestur Evu var einstaklega
skemmtilegur og fróðlegur, einkum fyrir fólk sem hefur áhuga á
sagnfræði og rithöfundum, auk ljósmyndunar.
Á eftir Evu flutti Pelle Snickars, yfirmaður rannsóknasviðs
Konunglega bókasafnsins, erindi sitt sem bar heitið „Rörliga
bilder i det binära medielandskapet - ett arkivperspektiv“.
Þar fjallaði hann um þá byltingu sem „hreyfanlegar myndir“ á
netinu (video) hafa valdið varðandi upplýsingaöflun hverskonar.
Fólk sækti sér ekki
lengur eingöngu
upplýsingar í prentuðu/
lesanlegu formi heldur ekki síður hið talaða og myndræna
mál hreyfanlegra mynda (m.a. kvikmynda). Þannig væri
hinn hefðbundni skilningur á sambandi myndar og texta
rofinn.
Nefndi hann að fólk yrði að gera sér grein fyrir að í dag nær
fólk í vitneskju sína og myndir gegnum gagnvirka vefi, s.s.
MySpace, Facebook, YouTube o.fl. þar sem notendur - hvar
og hverjir sem
þeir eru - geta jafnframt komið á framfæri nýjum myndum
og fróðleik svo þúsundum skiptir á degi hverjum. [Sem
dæmi getur hver sem er bætt inn myndum af stöðum á
GoogleEarth eða leiðrétt myndir sem ekki eru rétt staðsettar,
sbr. einnig upplýsingar á Wikipedia / innsk. GF]. Benti
hann á að í hefðbundnu myndaheimildasafni (mediearkiv)
væri u.þ.b. 5% notaður en afgangurinn lægi ónotaður. Á
vefnum væri þessu þveröfugt farið, á YouTube, sem dæmi,
væri þannig 95% allra mynda á þeim vef í stöðugri notkun.
Því væri það grundvallaratriði að myndasöfn (kvikmynda-,
video-, ljósmyndasöfn...) nýttu sér betur kosti internetsins
og þeirri gagnvirkni sem þar er að finna á ýmsum vefjum: