Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 56
Orð eftir Jónas
Þessi nýyrði Jónasar eru
prentuð á tíu þúsund króna
seðilinn og mynda þar Háafjall
og Hraundranga.
Silf ur litaður, klaka bund inn,
miðflótta afl, fjaður magnaður,
lá rétt ur, hrím hvít ur, sálar yl ur,
lík inda reikn ing ur, munaðar
kliður, sjón auki, sum ar veg ur,
spor baug ur, speg il skyggnd ur,
ljós hraði, tungl myrkvi, hrygg
dýr, lin dýr, liðdýr, skjald baka,
skötu sel ur, haförn, páfa gauk ur,
mörgæs, lífs nautn, lamba steik,
baksund, fíf il brekka, bring u
sund, mátt arbaðmur, raf ur
magn.
0 kr. fyrsti mánuðurinn!
Verið vel tengd
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
V ið reynum að hafa hátíðina fjölbreytta. Fengum ungt lista-fólk og kór til liðs við okkur og svo verður Kristín S. Árna-
dóttir bókmenntafræðingur með
hugleiðingar um Jónas, líf hans og
störf,“ segir Hanna Rósa Sveinsdóttir
sagnfræðingur um afmælisdagskrá
sem haldin verður í Hofi á Akureyri
á laugardaginn, 18. nóvember, til
heiðurs Jónasi Hallgrímssyni.
Hún kveðst hafa grun um
að Kristín bókmenntafræðing-
ur muni ræða eitthvað um nýyrða-
smíð Jónasar sem hafi verið stór-
merkileg. „Þar kemur skáldið í
honum fram, því orðin eru svo
hljómfögur,“ bendir hún á.
Hanna Rósa segir mikið af frum-
sömdu efni á dagskránni. „Ég
hlakka til að heyra í rapparanum,
Viljari Níu, því ég veit að hann hefur
verið að búa eitthvað til sérstak-
lega fyrir þetta tilefni. Svo er það
hann Villi – Vilhjálmur Bragason,
sem er annað af Vandræðaskáld-
unum. Hann ætlar að leika sér með
orð, það er í anda Jónasar. Einnig
verða lesin ljóð eftir verðlaunahafa
í samkeppni í skapandi skrifum og
norðlensku tónlistarkonurnar Þór-
hildur Örvarsdóttir, Helga Kvam og
Lára Sóley Jóhannsdóttir syngja og
leika nokkur lög við texta Jónasar.
Hanna Rósa starfar í Minjasafn-
inu á Akureyri og situr líka í stjórn
Jónasarseturs að Hrauni í Öxna-
dal, sem stendur fyrir hátíðinni á
laugardaginn ásamt Menningarfé-
lagi Akureyrar. „Meginmarkmið
Jónasarseturs er að reka Hraun,
fæðingarstað Jónasar. Húsið og
jörðin voru keypt 2003 og húsið þá
tekið í gegn. Nú er búið að merkja
nokkrar áhugaverðar gönguleiðir í
umhverfi þess. Húsið er leigt út sem
fræðimannsíbúð og einnig leigt
BHM yfir sumartímann. Það er fjár-
hagsleg ráðstöfun því þegar hrunið
varð hvarf bakhjarl verkefnisins
sem var sparisjóðurinn,“ útskýrir
Hanna Rósa. „En við höfum líka
staðið fyrir viðburðum á hverju ári,
Fífilbrekkuhátíð snemma sumars og
upplestri, söng og ýmiss konar dag-
skrá sem er tileinkuð skáldinu.“
Afmæli Jónasar er vissulega í dag,
þá verða Jónasarverðlaunin afhent
í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
„Við vildum að sjálfsögðu ekki trufla
þann viðburð og því færðum við
okkar hátíðadagskrá yfir á laugar-
daginn,“ segir Hanna Rósa. „Við
verðum í Hamraborg, aðalsal Hofs.
Það kostar ekkert inn og ég vona að
fólk hreinlega streymi til okkar og
nái sér í andlega næringu.“
Orðin eru svo hljómfögur
„Ég vona að fólk streymi til okkar og nái sér í andlega næringu,“ segir Hanna Rósa. FRÉttablaðið/anton bRink
Á íslensku má
alltaf finna svar
er dagskrá í tali og
tónum sem verður
haldin á laugardag-
inn í Hofi á Akur-
eyri í tilefni 210 ára
afmælis Jónasar
Hallgrímssonar.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r40 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-5
F
4
4
1
E
3
B
-5
E
0
8
1
E
3
B
-5
C
C
C
1
E
3
B
-5
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K