Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 58
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r42 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
KvIKmynDIr
reynir sterki
HHHHH
Leikstjóri: Baldvin Z
Framleiðendur: Baldvin Z,
Arnbjörg Hafliðadóttir, Hörður
Runólfsson
Klipping: Úlfur Teitur Úlfsson
Kvikmyndataka: Bergsteinn
Björgúlfsson
Handrit: Baldvin Z, Birgir Örn
Stefánsson
Styrkleiki er yfirleitt kenndur
við öfgakenndan massa og
tröllvaxna líkamsbyggingu,
en þar sannaði Reynir Örn
Leósson sig sem einkennilegt
frávik. Reynir sterki var alla
tíð utangarðsmaður í leit að
viðurkenningu frá samfélag-
inu sem seint fékkst. Hann
átti erfiða æsku og var seinna
meir oft séður sem svindlari
og fylliraftur.
Aflraunir mannsins voru
ótrúlegar, nánast yfirnáttúru-
legar, og uppfinningar hans
sömuleiðis eftirtektarverðar.
Eins og litlu samfélagi fylgir
var nóg um kjaftasögur og
getgátur, en heimsmetin þrjú sem
maðurinn setti standa enn í dag
óhreyfð.
Í þessari heimildarmynd Baldvins
Z kynnumst við kraftakarlinum,
nokkrum úr fjölskyldu hans, göllum
hans (sem voru heldur betur margir
og því miður hversdagslegri heldur
en mætti ætla) og afrekum sem
margir klóra sér enn í dag í hausn-
um yfir. Myndin hefur í áraraðir
verið draumaverkefni leikstjórans
og segir Baldvin sjálfur í upphafi
myndar að hann hafi ekki hætt að
hugsa um Reyni síðan í æsku, að hér
hafi verið uppi eins konar íslenskt
ofurmenni. Bætir hann við að ein af
ástæðunum fyrir því að hann vildi
gerast kvikmyndagerðarmaður hafi
verið að hann vildi fræða fleira fólk
um raunir Reynis.
Þótt viðfangsefnið sjálft sé
umhugsunarlaust merkilegt er það
aldrei sjálfsagður hlutur að heim-
ildarmynd verði það einnig af sjálfu
sér. Það eru margar leiðir til þess að
segja sögur af afrekum Reynis en
gullnáman sem Baldvin hefur sótt í
kemur í formi myndefnis sem margt
hefur ekki verið sýnt áður. Þetta
reynist vera helsti burðarásinn sem
skrásetur söguna á glæsilegan hátt,
en uppbygging, klipping, áhuga-
verðir viðmælendur og taumhald
leikstjórans skilar ekki bara afburða
vel unnu verki, heldur skín eldmóð-
urinn í gegn og gefur útkomunni
eitthvað smávegis auka.
Baldvin daðrar að sjálfsögðu við
umræður um hið yfirnáttúrulega,
en annað er varla hægt. Reynir var
sagður blanda saman líkamsstyrk og
aðferðafræði sjónhverfingamanns-
ins. Að sögn Reynis velti hann sér
ekkert upp úr þyngdartölum eða
hindrunum í raun. Ef hann setti sér
fjarstæðukennt markmið var því oft
náð með viljastyrknum, og mögu-
lega aukastuðningi frá einhverju að
handan.
Áhorfandinn metur það vissulega
sjálfur hvort hann kaupir allar frá-
sagnirnar, enda hljóma sumar þeirra
eins og eitthvað úr lélegum reyfara.
En sönnunin fyrir því fjarstæðu-
kennda sem hann framkvæmdi
opnar í rauninni allar umræður á
lygilega skondinn máta. Fjölskylda
Reynis og aðrir
utanaðkomandi
segja athyglisverð-
ar sögur og fylgir
v i ð m æ l e n d u m
oftar en ekki mikil
útgeislun sem er
allt annað en sjálf-
sögð, sama hvaða
efni tiltekin heim-
ildarmynd tekur
fyrir.
F a g m a ð u r i n n
Bergsteinn Björgúlfs-
son skreytir mynd-
ina með flottri kvik-
myndatöku á milli
eldra myndefnis og
lætur fínustu tónlist
frá Eberg koma sér
prýðilega fyrir til að
betrumbæta bratt en
afslappað flæði. Inn
á milli piprar Baldvin
myndina með stílíser-
uðum myndlistarbút-
um sem, ef eitthvað
er, hefði mátt vera
meira af. Myndefnið
er almennt spennandi
og með ýmsum leið-
um (hljóðupptökum,
heimamyndböndum
og öðru) öðlast áhorf-
andinn nánast beina tengingu við
Reyni. Eitthvað er um dekkri skugga
í frásögninni sem hlaupið er yfir, en
Baldvin er nógu skarpur til þess að
liggja ekki á hinu óþarfa og það litla
sem gefið er í skyn segir meira en
þúsund orð þegar upp er staðið.
Nálgun Baldvins er ekki eins og
eintóm froða með linnulausum lof-
söng eða upptalning á hápunktum.
Í staðinn pakkar hann þessu saman
í snyrtilega, fræðandi og þræl-
skemmtilega samantekt um mann
sem reyndist vera lifandi dæmi um
að allt sé svo sannarlega hægt ef
viljinn er fyrir hendi. Slíkt hið sama
má segja um hvernig leikstjóranum
tókst að þrjóskast áfram til að koma
þessu í verk og hafa uppi á myndefn-
inu, sem hefur varla verið áreynslu-
laust.
Tómas Valgeirsson
nIðUrsTAðA: Skemmtileg, um-
ræðuverð og vönduð yfirferð yfir
aflraunir, persónuleika og galla
stórmerkilegs manns. Vel þess virði
að kíkja á.
Þrjóska, viljastyrkur og
yfirnáttúruleg atorka
Baldvin Z leikstjóri hefur unnið að myndinni nánast síðan áður en hann settist í leikstjórastólinn FréTTaBLaðið/ViLHeLm
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
CFORCE 52o
Kr. 1.199.000,-
✓ Fjórgengis eins cylindra
✓ 495cc, 25,5 kW/6200rpm
✓ Bein innspýting
✓ Rafmagnsstýri
✓ Spil og dráttarkrókur
✓ Sjálfstæð A-armafjöðrum
✓ Hátt og lágt drif
✓ 15 lítra bensíntankur
✓ Vökvabremsur
✓ Tveggja manna
✓ 12 tommu álfelgur
✓ Gasdemparar
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
Bíó
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-7
3
0
4
1
E
3
B
-7
1
C
8
1
E
3
B
-7
0
8
C
1
E
3
B
-6
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K