Fréttablaðið - 16.11.2017, Page 58

Fréttablaðið - 16.11.2017, Page 58
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r42 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð KvIKmynDIr reynir sterki HHHHH Leikstjóri: Baldvin Z Framleiðendur: Baldvin Z, Arnbjörg Hafliðadóttir, Hörður Runólfsson Klipping: Úlfur Teitur Úlfsson Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson Handrit: Baldvin Z, Birgir Örn Stefánsson Styrkleiki er yfirleitt kenndur við öfgakenndan massa og tröllvaxna líkamsbyggingu, en þar sannaði Reynir Örn Leósson sig sem einkennilegt frávik. Reynir sterki var alla tíð utangarðsmaður í leit að viðurkenningu frá samfélag- inu sem seint fékkst. Hann átti erfiða æsku og var seinna meir oft séður sem svindlari og fylliraftur. Aflraunir mannsins voru ótrúlegar, nánast yfirnáttúru- legar, og uppfinningar hans sömuleiðis eftirtektarverðar. Eins og litlu samfélagi fylgir var nóg um kjaftasögur og getgátur, en heimsmetin þrjú sem maðurinn setti standa enn í dag óhreyfð. Í þessari heimildarmynd Baldvins Z kynnumst við kraftakarlinum, nokkrum úr fjölskyldu hans, göllum hans (sem voru heldur betur margir og því miður hversdagslegri heldur en mætti ætla) og afrekum sem margir klóra sér enn í dag í hausn- um yfir. Myndin hefur í áraraðir verið draumaverkefni leikstjórans og segir Baldvin sjálfur í upphafi myndar að hann hafi ekki hætt að hugsa um Reyni síðan í æsku, að hér hafi verið uppi eins konar íslenskt ofurmenni. Bætir hann við að ein af ástæðunum fyrir því að hann vildi gerast kvikmyndagerðarmaður hafi verið að hann vildi fræða fleira fólk um raunir Reynis. Þótt viðfangsefnið sjálft sé umhugsunarlaust merkilegt er það aldrei sjálfsagður hlutur að heim- ildarmynd verði það einnig af sjálfu sér. Það eru margar leiðir til þess að segja sögur af afrekum Reynis en gullnáman sem Baldvin hefur sótt í kemur í formi myndefnis sem margt hefur ekki verið sýnt áður. Þetta reynist vera helsti burðarásinn sem skrásetur söguna á glæsilegan hátt, en uppbygging, klipping, áhuga- verðir viðmælendur og taumhald leikstjórans skilar ekki bara afburða vel unnu verki, heldur skín eldmóð- urinn í gegn og gefur útkomunni eitthvað smávegis auka. Baldvin daðrar að sjálfsögðu við umræður um hið yfirnáttúrulega, en annað er varla hægt. Reynir var sagður blanda saman líkamsstyrk og aðferðafræði sjónhverfingamanns- ins. Að sögn Reynis velti hann sér ekkert upp úr þyngdartölum eða hindrunum í raun. Ef hann setti sér fjarstæðukennt markmið var því oft náð með viljastyrknum, og mögu- lega aukastuðningi frá einhverju að handan. Áhorfandinn metur það vissulega sjálfur hvort hann kaupir allar frá- sagnirnar, enda hljóma sumar þeirra eins og eitthvað úr lélegum reyfara. En sönnunin fyrir því fjarstæðu- kennda sem hann framkvæmdi opnar í rauninni allar umræður á lygilega skondinn máta. Fjölskylda Reynis og aðrir utanaðkomandi segja athyglisverð- ar sögur og fylgir v i ð m æ l e n d u m oftar en ekki mikil útgeislun sem er allt annað en sjálf- sögð, sama hvaða efni tiltekin heim- ildarmynd tekur fyrir. F a g m a ð u r i n n Bergsteinn Björgúlfs- son skreytir mynd- ina með flottri kvik- myndatöku á milli eldra myndefnis og lætur fínustu tónlist frá Eberg koma sér prýðilega fyrir til að betrumbæta bratt en afslappað flæði. Inn á milli piprar Baldvin myndina með stílíser- uðum myndlistarbút- um sem, ef eitthvað er, hefði mátt vera meira af. Myndefnið er almennt spennandi og með ýmsum leið- um (hljóðupptökum, heimamyndböndum og öðru) öðlast áhorf- andinn nánast beina tengingu við Reyni. Eitthvað er um dekkri skugga í frásögninni sem hlaupið er yfir, en Baldvin er nógu skarpur til þess að liggja ekki á hinu óþarfa og það litla sem gefið er í skyn segir meira en þúsund orð þegar upp er staðið. Nálgun Baldvins er ekki eins og eintóm froða með linnulausum lof- söng eða upptalning á hápunktum. Í staðinn pakkar hann þessu saman í snyrtilega, fræðandi og þræl- skemmtilega samantekt um mann sem reyndist vera lifandi dæmi um að allt sé svo sannarlega hægt ef viljinn er fyrir hendi. Slíkt hið sama má segja um hvernig leikstjóranum tókst að þrjóskast áfram til að koma þessu í verk og hafa uppi á myndefn- inu, sem hefur varla verið áreynslu- laust. Tómas Valgeirsson nIðUrsTAðA: Skemmtileg, um- ræðuverð og vönduð yfirferð yfir aflraunir, persónuleika og galla stórmerkilegs manns. Vel þess virði að kíkja á. Þrjóska, viljastyrkur og yfirnáttúruleg atorka Baldvin Z leikstjóri hefur unnið að myndinni nánast síðan áður en hann settist í leikstjórastólinn FréTTaBLaðið/ViLHeLm Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi Sími 557 4848 / www.nitro.is CFORCE 52o Kr. 1.199.000,- ✓ Fjórgengis eins cylindra ✓ 495cc, 25,5 kW/6200rpm ✓ Bein innspýting ✓ Rafmagnsstýri ✓ Spil og dráttarkrókur ✓ Sjálfstæð A-armafjöðrum ✓ Hátt og lágt drif ✓ 15 lítra bensíntankur ✓ Vökvabremsur ✓ Tveggja manna ✓ 12 tommu álfelgur ✓ Gasdemparar Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða? Iðnaðarmann Bílstjóra Bifvélavirkja Þjónustufólk Öryggisvörð Lagerstarfsmann Matreiðslumann Bíó 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 B -7 3 0 4 1 E 3 B -7 1 C 8 1 E 3 B -7 0 8 C 1 E 3 B -6 F 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.