Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 6
7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum www.kia.com Tveir sem vekja aðdáun — hvor hentar þér betur? Þjóðkirkjan Kirkjusóknir á land- inu voru reknar með rúmlega 400 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Sóknargjöld kirkjusókna var um tveir milljarðar króna en aðrar tekjur um 900 milljónir króna. Hrein eign kirkjusókna landsins var í árslok um 30 milljarðar íslenskra króna. Ríkissjóður greiðir sóknum lands- ins sóknargjöld, sem er ákveðin fjár- hæð á mánuði vegna hvers einstakl- ings innan kirkjunnar. Gjald þetta var á árinu 2016 rúmlega tveir milljarðar króna. Sóknum landsins ber að skila rekstraryfirliti til ríkisendurskoðunar á ári hverju. Af þeim 267 sóknum hafði Ríkisendurskoðun fengið til sín 234 ársreikninga til skoðunar. Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- maður Pírata á þessu kjörtímabili, þykir ársreikningar þessara sókna um margt áhugverðir og þá einkum sérstakar sóknir. „Við fyrstu sýn er mjög áhugavert að skoða Hallgríms- kirkjusókn þar sem hún skilar átta- tíu milljóna króna hagnaði. Sóknin fær um 33 milljónir í sóknargjöld úr ríkissjóði en aðrar tekjur kirkjunnar nema um 270 milljónum króna. Hver er þörfin í því tilfelli til að veita þessari sókn sóknargjöld?“ spyr Helgi Hrafn.  „Þó við myndum taka sóknargjöldin alfarið frá kirkjunni væri kirkjan samt sem áður rekin með fimmtíu milljóna króna hagn- aði,“ bætir Helgi Hrafn við. Fréttablaðið sagði frá því í byrjun árs að Þjóðkirkjan teldi sig hlunn- farna af ríkinu. Íhugaði biskup því alvarlega að stefna ríkinu fyrir vangoldin sóknargjöld. Taldi þjóð- kirkjan ríkið seilast ofan í vasa kirkj- unnar af mikilli hörku. Hundruð milljóna vantaði í sóknargjöld að mati kirkjuráðs þar sem innheimt sóknargjöld af sóknarbörnum skil- uðu sér ekki að fullu til ríkis. Félögum í hinni íslensku þjóð- kirkju hefur stöðugt fækkað á þess- ari öld og er svo komið að færri en sjö af hverjum tíu Íslendingum eru meðlimir í kirkjunni.-sa Kirkjusóknir reknar með miklum hagnaði Hallgrímskirkja skilaði 80 milljóna króna hagnaði í fyrra. Dómsmál „Sem skiptastjóri kærði ég Skúla og tvo samstarfsmenn hans fyrir skilasvik, ranga skýrslugjöf og skjalabrot og það er gersamlega frá- leitt að tala um útbreiðslu rangra sakargifta þegar fyrir liggur að hér- aðssaksóknari vísar ekki frá kærum þrotabúsins heldur hefur ákveðið að setja sakamálarannsókn af stað,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæsta- réttarlögmaður, sem Skúli Gunnar Sigfússon og fleiri menn hafa kært til héraðssaksóknara fyrir ólögmæt- ar þvinganir og rangar sakargiftir, vegna háttsemi hans sem skipta- stjóri þrotabús félagsins EK1923. „Ef ég vissi ekki að lítið fer fyrir skopskyninu hjá viðkomandi myndi ég halda að þetta væri grín. Það er spurning hvort ég bæti við kæru á hendur þessum aðilum fyrir rangar sakargiftir,“ segir Sveinn Andri, sem kom af fjöllum þegar blaðamaður hafði samband til að inna hann eftir viðbrögðum við kærum þeirra Skúla og félaga á hendur honum. Í kærunni er því meðal annars beint til héraðssaksóknara að hann taki til rannsóknar hvort skipta- stjóri hafi gert tilraun til að kúga fé af kærendum með hótun um kæru sem byggist á röngum sakargiftum en háttsemi hans renni stoðum undir að annarleg sjónarmið og per- sónulegir hagsmunir hans ráði för fremur en hagsmunir þrotabúsins. Sveinn Andri segir það mikinn misskilning að kærurnar hafi verið lagðar fram til að þvinga fram greiðslur eins og byggt er á í kær- unni og úrskurðarnefnd Lögmanna- félagsins féllst á með kærendum í úrskurði frá 9. október síðastliðinn. „Þessu er einmitt öfugt farið því ég vakti athygli Skúla og hinna á því að ég teldi þarna hafa verið brotið gegn ákvæðum laga og gaf mönnum kost á því að vinda ofan af því sem ég taldi vera auðgunarbrot en það var ekki gert.“ Sveinn lætur þess getið, eins og kemur fram í kæru Skúla og félaga, að þegar mál þetta var tekið fyrir í héraðsdómi fyrir nokkru, hafi héraðsdómari talið að hann hefði átt að tilkynna  hin  meintu brot strax. „Lögmaður þeirra kvart- aði undan því við héraðsdómara að ég hefði ekki kært strax í staðinn fyrir að gefa þeim kost á fresti og vera almennilegur,“ segir Sveinn Andri. Samkvæmt 84. gr. gjaldþrotalaga er skiptastjóra uppálagt að tilkynna grun um refsivert athæfi til héraðs- saksóknara. Í málinu er meðal ann- ars um það deilt hvort skiptastjóri hafi rétt á, í stað tilkynningar, að ráðast sjálfur í rannsókn og kæra svo á grundvelli hennar.  Í öðru lagi hvort heimilt sé með vísan til hinnar fortakslausu tilkynningar- skyldu að sleppa mönnum við til- kynningu til saksóknara, inni menn umkrafðar greiðslur af hendi.  „Málið er að skilin eru mjög óljós á milli  gerninga sem hægt er að rifta í einkamáli og refsiverðra skila- svika,“ segir Sveinn Andri aðspurður um túlkun 84. gr. og bendir á að það varði aðallega huglæga afstöðu manna og ásetning. „Ég hef hins vegar leitt að því óyggjandi rök að þarna væru menn fullkomlega grandsamir um að gerningar þeirra væru riftanlegir.“ adalheidur@frettabladid.is Ásökunum Skúla vísað á bug Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir ávirðingar Skúla og viðskiptafélaga hans fráleitar. Vildi vera almennilegur og gefa Skúla og hinum kost á að vinda ofan af gerningum sem hann taldi auðgunarbrot. Skúli í Subway telur að annanarleg sjónarmið ráði hjá Sveini. Fréttablaðið/GVa Sveinn andri Sveinsson Ef ég vissi ekki að lítið fer fyrir skop­ skyninu hjá viðkomandi myndi ég halda að þetta væri grín. Það er spurning hvort ég bæti við kæru á hendur þessum aðilum fyrir rangar sakargiftir. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður. Þjóðkirkjan Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu mun ekki upplýsa um hvort farið verði í frumkvæðis- rannsókn á meintum kynferðisbrot- um sr. Ólafs Jóhannssonar, sóknar- prests í Grensáskirkju, á hendur fimm konum. Konurnar fimm hafa kært Ólaf til úrskurðarnefndar þjóð- kirkjunnar um meðferð kynferðis- brota en nefndin fer almennt með rannsóknarvald í slíkum málum, nema annars sé óskað af þolendum. Lögreglunni er hins vegar heimilt að taka málin upp á eigin spýtur. „Það er skylda lögreglu, sam- kvæmt lögum um meðferð saka- mála, að bregðast við kærum ef þær koma fram, eða ef við fáum upplýsingar um meinta refsiverða háttsemi. Kæra þarf ekki að koma til til þess að hafin sé rannsókn hjá lögreglu – það er hið almenna,“ segir Grímur Grímsson, yfirmaður mið- lægrar rannsóknardeildar lögreglu. Sr. Ólafur var sendur í leyfi eftir ásakanir um kynferðislega áreitni. Konurnar tengjast kirkjunni nánum böndum og störfuðu fyrir kirkjuna þegar meint brot voru framin. Þær rituðu Agnesi M. Sigurðar- dóttur, biskupi Íslands, bréf þar sem þær segjast bera fullt traust til úrskurðarnefndar kirkjunnar, og las Agnes upp úr bréfinu á kirkjuþingi á mánudag. Ólafur hefur neitað sök í málinu. – sks Lögreglu heimilt að bregðast við Grensáskirkja. Fréttablaðið/GVa 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F i m m T U D a G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 B -7 3 0 4 1 E 3 B -7 1 C 8 1 E 3 B -7 0 8 C 1 E 3 B -6 F 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.