Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 19
Stelsjúkt fólk er þjófótt, það vitum við öll, en þjófótt fólk þarf ekki að vera stelsjúkt. Þessi greinarmunur hástigs og lægri stiga á víða við. Tilætlunar- semi getur t.d. komizt á svo hátt stig að henni sé betur lýst sem tilætlunarsýki. Tökum t.d. Pálínu, eiginkonu Ægis Ó. Ægis, for- stjóra Gleðilegra jóla hf. Hún er aukapersóna í Deleríum búbónis, gamanleik Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Frú Pálína er friðlaus nema hún komist yfir bílnúmerið R-9. „Líf mitt er einskis virði án þess,“ segir hún og lætur sig engu varða að Gunnar Hámundarson leigubílstjóri hefur átt númerið frá öndverðu, níu er happatalan hans og konunnar og hann vill ekki láta það af hendi. Klárt fyrir þrjú Deleríum búbónis heyrðist fyrst í útvarpinu 1954 þegar ferill fyrstu helmingaskiptastjórnar Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar var rösklega hálfnaður. Þar er þeim lýst Ægi forstjóra og mági hans, jafnvægismálaráðherran- um, bróður frú Pálínu. Þeir selja Afríkumönnum maðkétinn fisk og hafa lagt undir sig innflutning á ávöxtum og öðrum jólavarningi. Heilbrigðiseftirlitið setur skipið sem flytur varning þeirra til landsins í sóttkví vegna gruns um hættulegan kvikfjársjúkdóm um borð. Ægir hringir í forstjóra Heil- brigðiseftirlitsins og segir: „mágur minn bað mig að skila til þín að það losni prófessorsembætti við Háskólann á nýárinu ef þetta verður klárt fyrir þrjú.“ Jafnvægis- flokkurinn er dreginn sundur og saman í háði. Í upprunalegri gerð leiksins leysist flækjan með því að kvitturinn um kvikfjársjúk- dóminn reynist stafa af saklausri misheyrn, skipið losnar úr kvínni og vinirnir þurfa því ekki að láta Alþingi fresta jólunum. Harðari tónn Í nýrri gerð leikritsins sem birtist á prenti 1961 kveður við harðari tón. Nú beinist háðið jöfnum höndum að Jafnvægisflokknum og Dreifbýlisflokknum. Einar í Einiberjarunni, „aðalfjármálaséní Dreifbýlisflokksins“, kom ekki við sögu í frumgerðinni nema sem þögul aukapersóna utan sviðs, en í nýju gerðinni birtist hann í öllu sínu veldi. Ægir forstjóri spyr: „Hvernig stendur eiginlega á því að svona þriðja klassa karamellu- sali lætur sér detta í hug að hann komist inn í jólabissnissinn sem 50 prósent maður – eiga þessi helm- ingaskipti að gilda alls staðar eða hvað?“ Einar er heimspekingur: „Frjáls samkeppni er auðvitað góð út af fyrir sig … en það sér hver maður að okkar litla samfélag þolir ekki svona.“ Nú er saklausri misheyrn ekki lengur til að dreifa heldur tekur Einar símtöl upp á segulband til að fjárkúga mágana og mútar frænda sínum í Heilbrigðiseftirlitinu til að ljúga upp kvikfjársmitinu til að knýja mágana til helminga- skipta. Hann kúgar síðan R-9 út úr bílstjóranum til að gleðja frú Pálínu í sárabætur með því að segja bílstjóranum að ráðherranum við- stöddum að ríkisstjórnin sé í þann veginn að setja bráðabirgðalög um að taka öll einsstafsbílnúmer Landið okkar góða, þú og ég Þorvaldur Gylfason Í dag eignarnámi. Mágarnir hafa hitt ofjarl sinn. Horfin tíð? Deleríum búbónis var sýnt í Iðnó 1959 og í Þjóðleikhúsinu 1968. Leikdómari Morgunblaðsins taldi það „ákaflega tímabundið“, en bætti við eins og til öryggis: „það heyrir allt til horfinni tíð, þó við kunnum að eiga von á einhverju svipuðu í framtíðinni.“ Þegar verkið var fært upp 1996, sagði Valgeir Skagfjörð, leikstjóri sýningarinnar, við Morgun- blaðið: „Allt sem kemur fyrir í textanum rímar mjög vel við það sem er að gerast í þjóðfélaginu.“ Það er eftir mínu höfði hárréttur skilningur á verkinu. Andrúmið í leikritinu rímar að ýmsu leyti vel við ástand Íslands enn í dag. Hver ríkisstjórnin á eftir annarri hefur nú hrökklazt frá völdum vegna leynimakks og spillingar. Meint sakamál eru látin fyrnast. Hneykslin hrannast upp. Íslenzk stjórnmál eru athlægi um allan heim. Spillingarslóðinn sem einkum Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sókn draga á eftir sér nær marga áratugi aftur í tímann. Minni flokkar hafa margir dansað með. Vandinn er kerfislægur. Þar sem fákeppni ræður ríkjum er spilling yfirleitt ekki langt undan. Stjórn- málaflokkarnir hegða sér eins og hagsmunasamtök stjórnmála- manna eins og Mikael Karlsson, prófessor í heimspeki, hefur lýst. Tilætlunarsýki stjórnmálastétt- arinnar æpir á fólkið í landinu nánast frá degi til dags. Látum eitt dæmi duga. „Bjarni þarf fimm eða sex ráðherraembætti“, var sagt um starfandi forsætisráðherra í Fréttablaðinu um daginn eins og blaðamanninum fyndist ekkert sjálfsagðara. Í nýju stjórnar- skránni stendur: „ráðherrar skulu ekki vera fleiri en tíu.“ En hvað eru fimm eða sex ráð- herraembætti milli vina? Ægir Ó. Ægis og mágur hans jafn- vægismálaráðherrann ættu ekki í miklum vandræðum með að afgreiða svo einfalda pöntun, allra sízt með Einar í Einiberjarunni innan borðs. En hvað eru fimm eða sex ráðherraembætti milli vina? Ægir Ó. Ægis og mágur hans jafnvægismálaráðherrann ættu ekki í miklum vand- ræðum með að afgreiða svo einfalda pöntun, allra sízt með Einar í Einiberjarunni innan borðs. kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a hátíðí bæ S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 1 6 . n ó v e M B e R 2 0 1 7 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 B -5 0 7 4 1 E 3 B -4 F 3 8 1 E 3 B -4 D F C 1 E 3 B -4 C C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.