Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 19
Stelsjúkt fólk er þjófótt, það vitum við öll, en þjófótt fólk þarf ekki að vera stelsjúkt.
Þessi greinarmunur hástigs og
lægri stiga á víða við. Tilætlunar-
semi getur t.d. komizt á svo hátt
stig að henni sé betur lýst sem
tilætlunarsýki. Tökum t.d. Pálínu,
eiginkonu Ægis Ó. Ægis, for-
stjóra Gleðilegra jóla hf. Hún er
aukapersóna í Deleríum búbónis,
gamanleik Jónasar og Jóns Múla
Árnasona. Frú Pálína er friðlaus
nema hún komist yfir bílnúmerið
R-9. „Líf mitt er einskis virði án
þess,“ segir hún og lætur sig engu
varða að Gunnar Hámundarson
leigubílstjóri hefur átt númerið
frá öndverðu, níu er happatalan
hans og konunnar og hann vill
ekki láta það af hendi.
Klárt fyrir þrjú
Deleríum búbónis heyrðist fyrst í
útvarpinu 1954 þegar ferill fyrstu
helmingaskiptastjórnar Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar
var rösklega hálfnaður. Þar er
þeim lýst Ægi forstjóra og mági
hans, jafnvægismálaráðherran-
um, bróður frú Pálínu. Þeir selja
Afríkumönnum maðkétinn fisk
og hafa lagt undir sig innflutning
á ávöxtum og öðrum jólavarningi.
Heilbrigðiseftirlitið setur skipið
sem flytur varning þeirra til
landsins í sóttkví vegna gruns um
hættulegan kvikfjársjúkdóm um
borð.
Ægir hringir í forstjóra Heil-
brigðiseftirlitsins og segir: „mágur
minn bað mig að skila til þín að
það losni prófessorsembætti við
Háskólann á nýárinu ef þetta
verður klárt fyrir þrjú.“ Jafnvægis-
flokkurinn er dreginn sundur og
saman í háði. Í upprunalegri gerð
leiksins leysist flækjan með því
að kvitturinn um kvikfjársjúk-
dóminn reynist stafa af saklausri
misheyrn, skipið losnar úr kvínni
og vinirnir þurfa því ekki að láta
Alþingi fresta jólunum.
Harðari tónn
Í nýrri gerð leikritsins sem birtist
á prenti 1961 kveður við harðari
tón. Nú beinist háðið jöfnum
höndum að Jafnvægisflokknum
og Dreifbýlisflokknum. Einar í
Einiberjarunni, „aðalfjármálaséní
Dreifbýlisflokksins“, kom ekki við
sögu í frumgerðinni nema sem
þögul aukapersóna utan sviðs,
en í nýju gerðinni birtist hann í
öllu sínu veldi. Ægir forstjóri spyr:
„Hvernig stendur eiginlega á því
að svona þriðja klassa karamellu-
sali lætur sér detta í hug að hann
komist inn í jólabissnissinn sem 50
prósent maður – eiga þessi helm-
ingaskipti að gilda alls staðar eða
hvað?“ Einar er heimspekingur:
„Frjáls samkeppni er auðvitað góð
út af fyrir sig … en það sér hver
maður að okkar litla samfélag þolir
ekki svona.“
Nú er saklausri misheyrn ekki
lengur til að dreifa heldur tekur
Einar símtöl upp á segulband til að
fjárkúga mágana og mútar frænda
sínum í Heilbrigðiseftirlitinu til
að ljúga upp kvikfjársmitinu til
að knýja mágana til helminga-
skipta. Hann kúgar síðan R-9 út
úr bílstjóranum til að gleðja frú
Pálínu í sárabætur með því að segja
bílstjóranum að ráðherranum við-
stöddum að ríkisstjórnin sé í þann
veginn að setja bráðabirgðalög
um að taka öll einsstafsbílnúmer
Landið okkar góða, þú og ég
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
eignarnámi. Mágarnir hafa hitt
ofjarl sinn.
Horfin tíð?
Deleríum búbónis var sýnt í Iðnó
1959 og í Þjóðleikhúsinu 1968.
Leikdómari Morgunblaðsins
taldi það „ákaflega tímabundið“,
en bætti við eins og til öryggis:
„það heyrir allt til horfinni tíð,
þó við kunnum að eiga von á
einhverju svipuðu í framtíðinni.“
Þegar verkið var fært upp 1996,
sagði Valgeir Skagfjörð, leikstjóri
sýningarinnar, við Morgun-
blaðið: „Allt sem kemur fyrir í
textanum rímar mjög vel við það
sem er að gerast í þjóðfélaginu.“
Það er eftir mínu höfði hárréttur
skilningur á verkinu. Andrúmið
í leikritinu rímar að ýmsu leyti
vel við ástand Íslands enn í dag.
Hver ríkisstjórnin á eftir annarri
hefur nú hrökklazt frá völdum
vegna leynimakks og spillingar.
Meint sakamál eru látin fyrnast.
Hneykslin hrannast upp. Íslenzk
stjórnmál eru athlægi um allan
heim.
Spillingarslóðinn sem einkum
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sókn draga á eftir sér nær marga
áratugi aftur í tímann. Minni
flokkar hafa margir dansað með.
Vandinn er kerfislægur. Þar sem
fákeppni ræður ríkjum er spilling
yfirleitt ekki langt undan. Stjórn-
málaflokkarnir hegða sér eins og
hagsmunasamtök stjórnmála-
manna eins og Mikael Karlsson,
prófessor í heimspeki, hefur lýst.
Tilætlunarsýki stjórnmálastétt-
arinnar æpir á fólkið í landinu
nánast frá degi til dags. Látum eitt
dæmi duga. „Bjarni þarf fimm eða
sex ráðherraembætti“, var sagt
um starfandi forsætisráðherra í
Fréttablaðinu um daginn eins og
blaðamanninum fyndist ekkert
sjálfsagðara. Í nýju stjórnar-
skránni stendur: „ráðherrar skulu
ekki vera fleiri en tíu.“
En hvað eru fimm eða sex ráð-
herraembætti milli vina? Ægir
Ó. Ægis og mágur hans jafn-
vægismálaráðherrann ættu ekki
í miklum vandræðum með að
afgreiða svo einfalda pöntun, allra
sízt með Einar í Einiberjarunni
innan borðs.
En hvað eru fimm eða sex
ráðherraembætti milli vina?
Ægir Ó. Ægis og mágur hans
jafnvægismálaráðherrann
ættu ekki í miklum vand-
ræðum með að afgreiða svo
einfalda pöntun, allra sízt
með Einar í Einiberjarunni
innan borðs.
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 1 6 . n ó v e M B e R 2 0 1 7
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-5
0
7
4
1
E
3
B
-4
F
3
8
1
E
3
B
-4
D
F
C
1
E
3
B
-4
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K