Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 32
Í gegnum tíðina hafa verið gerðir alls kyns sjónvarpsþættir sem tengjast tískuheiminum á ýmsan
hátt. Sumir leiknir þættir hafa haft
mikil áhrif á tískuna, eins og Sex
and the City og Gilmore Girls, en
ýmsir raunveruleikaþættir hafa sett
tískuna alveg í forgrunn. Þeir eru
eins misjafnir og þeir eru margir
og líklega fleiri vondir en góðir. En
örfáir hafa notið mikill vinsælda og
velgengni.
Project Runway
Project Runway er bandarískur
raunveruleikaþáttur sem snýst um
tískuhönnun. Keppendur í þætt-
inum keppa um að hanna flottustu
fötin en eru takmarkaðir af tíma,
hráefni og þema. Hönnunin er
dæmd af hópi dómara og yfirleitt
er einn eða fleiri keppandi rekinn
úr þættinum í hverri viku þar til
örfáir eru eftir. Þessir lokakeppend-
ur hanna svo safn af tískufatnaði
fyrir tískuvikuna í New York og sá
vinnur sem gerir besta safnið.
Stjórnandi þáttarins er ofurfyrir-
sætan Heidi Klum. Project Runway
hefur unnið fjölmiðlaverðlaun
GLAAD, Peabody-verðlaun og
tvenn Emmy-verðlaun.
Sextánda sería af Project Runway
er að klárast en það er búið að stað-
festa að tvær þáttaraðir í viðbót
Bestu þættirnir um tísku
Það eru til ótal raunveruleikaþættir sem snúast um útlit og tísku. Langflestir endast skammt og
njóta takmarkaðra vinsælda en nokkrir hafa slegið rækilega í gegn og haft mjög mikil áhrif.
Heidi Klum og
Tim Gunn eru
í forsvari fyrir
Project Runway.
MYND/NORDIC
PHOTOS/GETTY
Tyra Banks og J.
Alexander, dóm-
arar í America’s
Next Top Model.
MYND/NORDIC
PHOTOS/GETTY
RuPaul Charles með Emmy-verð-
launin sem hann vann fyrir RuPaul’s
Drag Race. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
eru væntalegar. Sex hliðarþættir
tengdir Project Runway hafa verið
framleiddir og auk þess hafa 26
staðbundnar útgáfur af þættinum
verið framleiddar víða um heim.
America’s Next Top Model
America’s Next Top Model er
bandarískur raunveruleikaþáttur
þar sem upprennandi fyrirsætur
keppa um að hefja feril sinn sem
atvinnufyrirsæta. Fyrirsæturnar
keppa í myndatökum og
alls kyns áskorunum
sem tengjast fyrir-
sætustörfum og
eru dæmdar af
hópi dómara. Einn
keppandi fer heim í
hverri viku og sigurveg-
arinn fær yfirleitt umfjöllun
í stóru tískutímariti, samning við
umboðsskrifstofu og fleira.
Þátturinn var búinn til af ofur-
fyrirsætunni Tyru Banks, sem er
líka aðalframleiðandi, stjórnandi
og aðaldómari þáttanna.
Það hafa verið gerðar 23 þátta-
raðir af America’s Next Top Model
og sú 24. er á leiðinni. Auk þess
hafa yfir 30 útgáfur af þáttunum
verið framleiddar víðs vegar um
heiminn.
RuPaul’s Drag Race
RuPaul’s Drag Race er banda-
rískur raunveruleikaþáttur þar
sem dragdrottningar keppa í alls
kyns áskorunum. Þær eru dæmdar
af hópi dómara og yfirleitt er einn
keppandi sendur heim í hverri
viku. Dragdrottningin RuPaul er
stjórnandi, kennari og aðaldómari
þáttanna.
Titill þáttarins leikur sér með
hugtökin „drag queen“, eða drag-
drottning, og „drag racing“ eða
spyrnu og upphaf þáttarins og
þemalagið vísa líka í spyrnu.
Níu þáttaraðir hafa verið
sýndar og sú tíunda er væntanleg.
Auk þess hafa komið út tveir
hliðarþættir og þáttaröð sem gefur
nánari innsýn bak við tjöldin.
Þættirnir hafa verið sýndir víða
um heim en það er líka til sílesk
útgáfa og bresk útgáfa er sögð
væntanleg. Árið 2015 tilkynnti
RuPaul að kvikmynd með öllum
keppendunum væri í vinnslu.
RuPaul fékk Emmy-verðlaun
fyrir stjórn þáttarins árið 2016
og þátturinn sjálfur hefur meðal
annars unnið fjölmiðlaverðlaun
GLAAD.
What Not to Wear
What Not to Wear er breskur raun-
veruleikaþáttur sem snýst um að
fríska upp á útlit fólks. Í þáttunum
eru einstaklingar sem eru taldir
smekklausir tilnefndir af vinum
sínum og þeim gefin tískuráð. Þeir
fá svo 2.000 pund til að kaupa sér
ný föt. Fylgst er með verslunarferð-
inni og svo er fjallað um hvernig
gekk. Seinna var fyrirkomulaginu
breytt þannig að stjórnendur
völdu þá sem fengu nýtt útlit út
frá innsendum myndböndum frá
áhorfendum.
Trinny Woodall og
Susannah Constantine
stjórnuðu fyrstu
fimm þáttaröð-
unum en nýir
stjórnendur
tóku við í síð-
ustu tveimur
þáttaröðunum.
Þátturinn
var tilnefndur
til BAFTA-verð-
launa og gerði
stjórnendurna
landsþekkta í
Bretlandi. Þær gáfu
út bækur sem byggðu á
þáttunum og stjórnuðu hliðar-
þætti sem fjallaði um tísku á rauða
dreglinum.
Þátturinn hefur verið sýndur
víða um heim og það er til banda-
rísk, ítölsk og rússnesk útgáfa af
þættinum.
Queer Eye
Queer Eye, sem hét upprunalega
Queer Eye for the Straight Guy,
var bandarískur raunveruleika-
þáttur sem snerist um að samkyn-
hneigðir karlmenn kenndu fólki
að klæða sig, snyrta sig, innrétta,
haga sér og sjá um mat. Í hverjum
þætti var einhver sem var ekki með
þessa hluti á hreinu tekinn fyrir og
frískað upp á þetta.
Þátturinn naut mikilla vinsælda
og leiddi til sölu á ýmsum varningi
og hliðarþáttar sem snerist um
konur og ól af sér tólf staðbundnar
útgáfur.
Queer Eye hlaut bæði Emmy-
verðlaun og fjölmiðlaverðlaun
GLAAD.
Gerðar voru fimm þáttaraðir en
í byrjun þessa árs tilkynnti Netflix
að ný þáttaröð væri væntanleg
með nýjum stjórnendum.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
12.990
502 STRETCH SVARTAR
Vörunúmer: 29507-0031
Danmörk kr 14.870*
Svíþjóð kr. 12.314*
*Skv. levi.com og gengiskrán. Isl.banka 15.11.17
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-8
B
B
4
1
E
3
B
-8
A
7
8
1
E
3
B
-8
9
3
C
1
E
3
B
-8
8
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K