Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Tækifærið sem við fáum núna, eftir rassskellingu ríkisins í héraði og fyrir EFTA-dóm- stólnum, er því tímabært og mikilvægt. Viðhorfsbreytinga er þörf gagnvart iðn- og starfsnámi á Íslandi. Hér á landi er hægt að velja úr fjölbreyttum iðngreinum sem allar skipta miklu máli fyrir samfélagið. Við viljum fag- fólk og fagleg vinnubrögð á öllum sviðum. Skortur er á iðnmenntuðu starfsfólki á vinnumarkaði og því mikilvægt að hvetja ungmenni til að sækja sér dýr- mæta þekkingu í fjölbreyttu iðnnámi. Undanfarin misseri hafa umbætur verið gerðar á náminu sjálfu og það lagað að nútímanum. Fyrirkomulag á að vera skýrara og öryggi nemenda aukið, svo þeir hafi við upphaf náms vissu fyrir því að geta lokið námi óháð aðstæðum hjá iðnmeisturum. Þá er unnið að því að brúa bilið milli iðnnáms og háskólanáms sem eykur möguleika á frekari menntun síðar meir. Um árabil hafa ráðamenn talað um að efla iðn- menntun í landinu, en velviljinn hefur ekki dugað til. Viðhorf þeirra í garð iðn- og starfsmenntunar er framþróun til trafala. Þau birtust okkur fyrir skemmstu þegar í ljós kom að erlendir iðnnemar fá ekki lengur dvalarleyfi til náms á Íslandi eftir breyt- ingu á útlendingalögum. Nám í skilningi laganna er eingöngu nám á háskólastigi. Frumvarpið var sam- þykkt mótatkvæðalaust á Alþingi 2016. Hér á landi skráðu einungis 14% nemenda sig á starfsnámsbrautir að loknum grunnskóla haustið 2007 en sambærilegt hlutfall meðal ríkja Evrópusam- bandsins var 50%. Viðhorfsbreytingu og aukið fjár- magn til verknámsskóla þarf til að bæta úr. Mennta- kerfið þarf að vera sveigjanlegt þegar fólk hefur störf við tiltekna iðn og aflar sér svo réttinda og þekkingar síðar þegar ákveðinni færni er náð og áhuginn á iðninni er staðfestur. Það ætti að vera eitt af fyrstu verkum nýs þings að efla iðnnám og leiðrétta þau mistök sem gerð voru samhliða breytingum á útlendingalöggjöfinni á síðasta ári svo iðnnám standi jafnfætis háskólanámi. Viðhorfsbreytingin þarf að eiga sér stað víða í sam- félaginu og væri óskandi að ráðamenn þjóðarinnar færu fremstir í flokki og hömpuðu iðnnámi. Það þarf að auka veg þess og virðingu. Sýnum iðnnámi virðingu Sigurður Hannesson framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins Hér á landi skráðu einungis 14% nemenda sig á starfsnáms- brautir að loknum grunnskóla haustið 2007 en sambæri- legt hlutfall meðal ríkja Evrópusam- bandsins var 50%. Fyrirkomulag innflutningstakmarkana á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvöru var í tvígang í vikunni dæmt ólögmætt. EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að slíkar takmarkanir brytu gegn ákvæðum EES-samningsins. Ríkið tapaði einnig í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar inn- heimta ríkisins á útboðsgjaldi á heimild til að flytja inn búvörur á lægri tollum var sögð brjóta gegn stjórnarskrá. Starfandi landbúnaðarráðherra sagði í kvöld- fréttum Stöðvar 2 að íslenska ríkið hefði „brotið gegn EES og um leið gegn hagsmunum íslenskra neytenda með því að koma í veg fyrir innflutning á vörum sem hefði stuðlað að aukinni samkeppni og líklega lægra vöruverði.“ Augljóslega er brýn þörf á að bregðast við þessu með laga- og reglugerðarbreytingum. Enda hafa hagsmunir neytenda greinilega ekki verið hafðir að leiðarljósi. Niðurstaða dómstólanna er eitthvað sem ætti ekki að koma neinum á óvart. Þannig er þörf á nýrri hugmyndafræði í þessum efnum en samhliða þarf að horfast í augu við þá ömurlegu staðreynd að verksmiðjubúskapur sem síðustu hálfa öld hefur verið knúinn áfram af sýkla- lyfjum er meiriháttar hnattrænt vandamál. Í þeirri orðahríð sem brýst út með fyrirsjáan- legum hætti í hvert skipti sem innflutningur búvara er til umræðu verður að hafa þetta í huga. Lausnin verður að felast í því að bæta hag neytenda, bæði með betra og hagstæðara úrvali matvæla og að þeir séu varðir fyrir þeim hættum sem fylgja gegndar- lausri ofnotkun sýklalyfja. Fersk matvæli, eins og grænmeti og kjöt, geta borið fjölónæmar bakteríur, og aukið sýklalyfja- ónæmi með ofnotkun sýklalyfja í mönnum og dýrum er einhver mesta heilsufarsógn sem mann- kyn stendur frammi fyrir. Um leið og við höfum náð árangri í landbúnaði þá erum við einnig og óbeint að framleiða ónæmar bakteríur. Íslenskar landbúnaðarvörur hafa algjöra sér- stöðu með tilliti til smithættu og það eru forrétt- indi þeirra sem hér búa að hafa aðgang að öruggum matvælum, að minnsta kosti þegar sýklalyfja- ónæmi og smithætta er annars vegar. Þeirra, sem fá það brýna verkefni að endurmóta fyrirkomulag innflutnings, bíður því sú erfiða vinna að samþætta þessi tvö sjónarsmið. Þetta risa- vaxna verkefni þyrfti að vinna á alþjóðlegum vett- vangi, þar sem þjóðir taka höndum saman um að samræma reglur og eftirlit með sýklalyfjanotkun. Tækifærið sem við fáum núna, eftir rassskellingu ríkisins í héraði og fyrir EFTA-dómstólnum, er því tímabært og mikilvægt. Hagsmunir neytenda ára Starfsmanna- og munaskápar www.rymi.is Þori ég, vil ég, get ég? Samhliða gerð stjórnarsáttmála vinnur nú hópur að því innan VG að hringja í flokksráðsmeð- limi til að tryggja að samstarf flokkanna verði samþykkt af grasrótinni. Dylst engum hversu erfitt verður fyrir margan vinstrimanninn að kyngja samstarfinu. Róttækir vinstrimenn og femínistar innan VG klóra sér í hausnum yfir vegferðinni þessa dagana og skilja hvorki upp né niður. Þora þeir, vilja þeir og geta þeir farið í samstarf með höfuðand- stæðingi flokksins? Þetta hljóta allir að sjá Svandís Svavarsdóttir, einn valdamesti pólitíkusinn í VG, sló þetta svo sannarlega út af borðinu fyrir kosningar árið 2016. „Vera kann að samstarf af þessu tagi hafi verið á dagskrá í gamla daga,“ sagði Svandís. „Það er hins vegar óhugsandi við núverandi kringumstæður eftir aðdraganda kosninga og uppljóstranir úr Panama- skjölum. Þetta hljóta allir að sjá.“ það hefur ekkert breyst síðan þá, nema bæst ofan á téðar kringumstæður Svan- dísar; uppreist æru, þöggun og höfum hátt. En hins vegar þarf pólitískan kjark fyrir vinstri menn til að taka þátt í ríkis- stjórn með Sjálfstæðisflokki. Greinilegt er að Katrín og Svandís búa yfir þeim kjarki. sveinn@frettabladid.is 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð SKOÐUN 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 B -5 A 5 4 1 E 3 B -5 9 1 8 1 E 3 B -5 7 D C 1 E 3 B -5 6 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.