Fréttablaðið - 20.11.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.11.2017, Blaðsíða 6
Veldu milli sjö mismunandi karfa og bættu við annarri matvöru, víni eða g jafavöru. Við sjáum um pökkunina þér að kostnaðarlausu. Frábær jólag jöf til viðskiptavina eða starfsmanna. Kíktu á ms.is - einfalt og fljótlegt. J Ó L A G J Ö F S Æ L K E R A N S H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Gómsætar jólagjafirGómsætar jólagjafir Utanríkismál Kostnaður af komu hælisleitenda og móttöku flótta­ manna hingað til lands flokkast sem alþjóðleg þróunarsamvinna. Af þeim sjö milljörðum sem Íslend­ ingar veittu til þróunarmála í fyrra er kostnaður við móttöku hælisleit­ enda um 1,6 milljarðar króna. Árið 2015 vörðu Íslendingar 5,2 milljörðum króna til þróunarsam­ vinnumála. Ári seinna voru fram­ lög stjórnvalda komin upp í sjö milljarða. Hækkun málaflokksins ræðst að miklu leyti af þremur liðum. Móttaka hælisleitenda hækkaði um 1.150 milljónir milli ára en einnig varð hækkun í mála­ flokknum um móttöku flóttafólks. Í þriðja lagi greiddi íslenska ríkið 150 milljónir króna í stofnframlag asíska þróunar bankans AIIB. Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ ríkisráðherra  segir flest öll ríki innan nefndar OECD um þróunar­ samvinnumál fara eins að í þessum efnum. „Þróunarsamvinnunefnd OECD setur reglur hvað þetta varð­ ar. Langflest lönd innan nefndar­ innar hafa þennan háttinn á. Við verðum að vera samanburðarhæf hvað tölurnar varðar,“ segir Guð­ laugur Þór.  „Við getum líka fært rök fyrir því að móttaka flóttamanna frá öðrum svæðum heimsins er að sönnu þróunaraðstoð þar sem íslensk stjórnvöld veita einstakl­ ingum betra líf og betri aðstæður en þeir ella hefðu fengið án aðstoðar íslenskra stjórnvalda.“ Steinunn Þóra Árnadóttir, fulltrúi VG í þróunarsamvinnunefnd utan­ ríkisráðuneytisins, segir Ísland ekki gera nægilega vel í þessum efnum. „Þetta er eitt af því sem rætt hefur verið í nefndinni. En þetta er leyfi­ legt samkvæmt reglunum. Ég hef bent á að þó það sé leyfilegt þýði það ekki endilega að það eigi að viðhafa þessi vinnubrögð. Ég setti spurningamerki við þetta vinnulag. Því þarna þurfum við að gera betur.“ Framlög til hælisleitenda hafa því hækkað framlög okkar til þróunar­ samvinnu án þess að pólitískur vilji sé endilega fyrir þeirri hækkun. Ísland hefur samt sem áður skuld­ bundið sig til að hækka framlögin upp í 0,7 prósent af vergri lands­ framleiðslu eða á annan tug millj­ arða króna að núvirði. „Þjóðartekjur okkar hafa aukist gríðarlega á síðustu árum og því er ekki raunhæft að ætla á mjög skömmum tíma að komast að umræddu viðmiði um að leggja 0,7 prósent af vergum þjóðartekjum til þróunarmála,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. „Útgjöld til þróunarmála hafa að sama skapi aukist gríðarlega á mjög skömmum tíma, eða úr þremur milljörðum í sjö á fáum árum. Ef við ætluðum að ná markmiðinu þyrftum við að auka framlögin um þrettán milljarða króna sem er nán­ ast sama upphæð og við leggjum til alls málaflokksins sem er utanríkis­ mál. Því þurfum við að gera þetta í skrefum og markmið okkar eru klár í þeim efnum,“ segir hann. sveinn@frettabladid.is Móttaka flóttamanna talin þróunarsamvinna Kostnaður af komu hælisleitenda og móttöku flóttamanna hingað til lands flokkast sem alþjóðleg þróunarsamvinna. Hækkun á framlagi til þróunarmála skýrist að miklu leyti af komu flóttamanna og hælisleitenda hingað til lands. 2012 3.268 milljónir 2013 4.264 milljónir 2014 4.461 milljónir 2015 5.257 milljónir 2016 7.072 milljónir 2014 333,6 milljónir 2015 491,9 milljónir 2016 1.634 milljónir 2017* 965 2016 1.132 2014 354 *Fyrstu tíu mánuði ársins. ✿ Framlög íslands til þróunarmála. ✿ kostnaður vegna hælisleitenda ✿ Umsókn um hæli hér á landi síðustu þrjú ár. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra. dómsmál Hjón sem búa við Heið­ vang í Hafnarfirði hafa kært Garða­ bæ vegna áforma um að loka veg­ tengingu á milli sveitarfélaganna. Í bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis­ og auðlindamála krefj­ ast hjónin þess að deiliskipulag fyrir Garðahraun sem Garðabær sam­ þykkti í haust verði fellt úr gildi hvað snertir lokun vegtengingar milli Herjólfsbrautar og Garðahrauns­ vegar. Hjónin segjast hafa verið meðal þeirra sem árangurslaust hafi mót­ mælt breytingunni á deiliskipulag­ inu áður en hún var samþykkt. Segja þau breytinguna verulega íþyngjandi fyrir íbúa hverfisins. „Ekki hafa verið færð nein rök fyrir að loka tengingunni,“ segir í kærunni. Vegur sem hafi verið lagður fyrir opinbert fé og notaður áratugum saman verði ekki lengur í boði fyrir verulegan hluta þeirra sem noti hann daglega. „Þetta veldur því að umferð um hverfi kæranda verður þyngri og erfiðari þar sem lokað er á mikilvæga tengingu milli samfélaga. Þetta felur í sér veruleg óþægindi fyrir umrætt hverfi með tilheyrandi afleiðingum,“ segja hjónin  í kærunni og nefna lækkun fasteignaverðs á svæðinu sem dæmi um hugsanlega afleiðingu. „Að mati kæranda er hér verið að opna á þróun sem getur ekki talist heppileg þar sem eitt sveitarfélag fer þá leið að loka vegtengingu við annað bæjarfélag án þess að þurfa að taka á nokkurn hátt tillit til hags­ muna íbúanna í hinu sveitarfélag­ inu,“ segir áfram í kærunni. Hún var lögð fram í bæjarráði Garða­ bæjar  sem fól Gunnari Einarssyni bæjarstjóra meðferð málsins. – gar Hjón kæra Garðabæ fyrir að loka vegi Lokað verður á tengingu milli Herjólfsbrautar og Garðahraunsvegar. FréttabLaðið/EyÞór 2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m á n U d a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 2 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 4 1 -4 D 8 C 1 E 4 1 -4 C 5 0 1 E 4 1 -4 B 1 4 1 E 4 1 -4 9 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.