Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.11.2017, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 20.11.2017, Qupperneq 12
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi www.apotekarinn.is - lægra verð Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Strefen-5x10-apotekarinn.indd 1 14/09/2017 09:46 júlían heimsmeistari Kraftlyftingamaðurinn júlían j. K. jóhannsson varð um helgina heimsmeistari í réttstöðulyftu annað árið í röð. júlían lyfti 370 kílóum, sem dugði til sigurs í greininni. júlían reyndi við 400 kg, sem er heims- metið í greininni, en án árangurs. Okkar maður var með 1.060 kg í samanlögðum árangri sem skilaði honum bronsi í yfirþungavigt (+120 kg flokki). úkraínumaðurinn Volodymyr svistunov og tékkinn David lupac lyftu báðir 1127,5 kílóum. júlían lyfti 390 kg í hnébeygju og 300 kg í bekkpressu. Viktor samúelsson úr Kraftlyft- ingafélagi akureyrar keppti í gær í 120 kg flokki. honum tókst ekki að fá gilda hnébeygju og var því úr leik í samanlagðri keppni. ValDís tryggði réttinn atvinnukylfingurinn Valdís Þóra jónsdóttir varð í þriðja sæti á móti í evrópumótaröðinni um helgina en það fór fram í Kína. Þetta var hennar besti árangur á mótaröð- inni en hún hafði best náð 22. sæti áður. Fyrir þennan árangur fékk hún 2,2 milljónir króna. Það sem meira er að þessi árangur tryggir henni áframhald- andi keppnisrétt á evrópumóta- röðinni sem er sú næststerkasta í heiminum. 80 efstu kylfingarnir á peningalistanum hvert ár fá áfram- haldandi þátttöku- rétt. Valdís Þóra stökk úr 113. sætinu í sæti 50 með þessum magnaða árangri um helgina. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir endaði svo í kringum 60. sæti á lokamóti lPga- mótaraðarinnar sem er sterkasta mótaröðin. hún var þegar búin að tryggja sér þátttökurétt á mótaröðinni á næsta keppnistímabili. Júlían vinnur heimsmeistaratitil á hverju ári. fréttablaðið/anton mma Björn lúkas haraldsson fór á kostum á hm áhugamanna í blönd- uðum bardagalistum, mma, sem kláraðist um nýliðna helgi í Barein. Þar fór mjölnismaðurinn alla leið í úrslit í millivigtinni. Þar mætti hann svíanum Khaled laallam í úrslitum og varð að sætta sig við tap á dómaraúrskurði. Björn lúkas flaug alla leið inn í úrslit en hann kláraði alla andstæðinga sína í fyrstu lotu áður en hann lenti í klóm svíans. „ég er alveg í skýjunum með þetta. hef ekki verið í þessu sporti lengi, fékk stórt tækifæri og gæti ekki verið sáttari,“ segir hinn 22 ára gamli Björn lúkas er íþróttadeild heyrði í honum eftir mótið. „ég var ekki að búast við neinu sérstöku fyrir þetta mót. renndi blint í sjóinn þannig séð og ætlaði bara að gera mitt besta. Þetta gekk svo bara ótrúlega vel hjá mér. ég fór bara eftir flæðinu hverju sinni og er sterkur alls staðar þó svo ég hafi klárað flesta bardagana á armlás.“ Svíinn var betri eftir að hafa klárað fjóra bardaga á samtals sjö og hálfri mínútu kom að því að Björn lúkas fór allar þrjár loturnar í úrslitabardaganum. „mér fannst ég hafa unnið fyrstu lotuna þar sem ég reyndi stíft að klára bardagann. svo tók hann seinni tvær loturnar. helvíti sterkur og flottur gaur. hann var bara betri þennan dag og átti skilið að vinna,“ segir Björn lúkas auðmjúkur. „nú veit ég hvar ég stend í þessum bransa. ég á alveg heima meðal þeirra bestu. ég mætti hingað með tvo bardaga á bakinu og sá fyrsti var fyrir hálfu ári. nú veit ég að ég á fullt erindi í þetta.“ Þó svo Björn lúkas sé ekki búinn að vera lengi í mma þá kom hann inn í íþróttina með flottan bak- grunn. „ég hef æft mma í tvö ár en á undan því var ég í júdó, tækvondó, brasilísku jiu-jitsu og hnefaleikum. ég kom því með sterkan grunn sem þurfti að púsla saman í mma,“ segir okkar maður en hann ætlar sér stóra hluti í íþróttinni á næstu árum. Ætlar alla leið „ég ætla bara að slaka á núna og svo ákveða næsta skref hjá mér. loka- markmið hjá mér að fara alla leið og það hefur alltaf verið þannig. UFC eða Bellator. Það eru líka stór samtök hérna úti í Barein og það var flott sýning hjá þeim. ég er búinn að skapa mér nafn núna og hver veit nema mér verði boðið aftur út hingað.“ grindvíkingurinn er búinn að næla sér í mikla reynslu á þessu móti og líka í því að tala við fjöl- miðla sem er fylgifiskur þess að ná árangri. hann þurfti að mæta á blaðamannafundi og fannst það mjög erfitt. „Það var eiginlega erfiðara en að berjast. mér hefur sjaldan liðið eins óþægilega. Þarna var ég kominn út fyrir þægindarammann minn,“ segir Björn lúkas og hlær en það verður spennandi að fylgjast með honum á komandi árum. henry@frettabladid.is Ég á heima meðal þeirra bestu Bardagakappinn Björn Lúkas Haraldsson kemur heim með silfur af heimsmeistaramóti áhugamanna í MMA. Grindvíkingurinn sló í gegn á mótinu þar sem hann pakkaði andstæðingum sínum saman. Sigurreifur. björn lúkas fagnar hér einum af sigrum sínum á HM áhugamanna í MMa sem fram fór í barein. Mynd/Jorden Curran/ iMMaf 2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a b L a ð i ð sport 2 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 4 1 -4 8 9 C 1 E 4 1 -4 7 6 0 1 E 4 1 -4 6 2 4 1 E 4 1 -4 4 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.